Fyrstu loðnufarmarnir á leið til Vopnafjarðar og Norðfjarðar Búist er við að fyrstu loðnu þessarar vertíðar verði landað á Austfjörðum á morgun. Von er á farmi til Vopnafjarðar í fyrramálið og öðrum til Norðfjarðar eftir hádegi. Nýafstaðin loðnuleit gefur ekki tilefni til að auka loðnukvótann, að mati Hafrannsóknastofnunar. 12.12.2022 20:22
Loðnuveiðar hafnar en ekki talið tilefni til að auka kvóta Fyrsta loðnan á þessari vertíð er veidd og var skip Síldarvinnslunnar, Beitir, komið með ellefuhundruð tonn nú laust fyrir hádegi. Hafrannsóknastofnun telur ekki tilefni til þess að auka loðnukvótann, eftir auka loðnuleiðangur sem lauk um helgina. 12.12.2022 12:20
Endurheimt dráttarbeislisins kannski sögulok Geysisslyssins Merkum flugsöguminjum, sem tengjast Geysisslysinu á Vatnajökli, hefur verið bjargað til byggða eftir að hafa legið uppi á hálendi í meira en sjötíu ár. Sonur Alfreðs Elíassonar, stofnanda Loftleiða, sótti gripina núna í vetrarbyrjun ásamt félaga sínum í þriggja daga leiðangri að rótum Síðujökuls. 11.12.2022 22:42
Grænlendingar fagna nýrri Airbus-breiðþotu Grænlendingar fögnuðu í fyrradag komu nýrrar breiðþotu Air Greenland. Þotan tekur yfir þrjúhundruð farþega í sæti og er dýrasti farkostur sem þessi næsta nágrannaþjóð Íslendinga hefur eignast. 9.12.2022 22:50
Fyrsta flug dýrustu flugvélar Grænlands til heimalandsins Grænlendingar fögnuðu í gær nýrri breiðþotu af gerðinni Airbus A330-800neo. Hún er langstærsta fjárfesting þjóðarflugfélagsins Air Greenland, kostaði yfir 700 milljónir danskra króna, eða yfir fjórtán milljarða íslenskra, að sögn grænlenska ríkismiðilsins KNR. 8.12.2022 18:30
Síðasta Boeing 747-þotan úr flugvélaverksmiðjunni Síðasta eintak júmbóþotunnar, eða Boeing 747, fór út úr samsetningarverksmiðju Boeing í borginni Everett norðan Seattle í Washington-ríki í gærkvöldi. Þetta er fraktvél af undirtegundinni 747-8 og verður afhent bandaríska vöruflutningafélaginu Atlas Air snemma á næsta ári. 7.12.2022 16:20
Landsvirkjun áformar meiri orkuöflun á fjórum stöðum Ný orkuöflun Landsvirkjunar stefnir í að verða mjög umfangsmikil á næstu árum, að sögn forstjórans. Auk Hvammsvirkjunar áformar fyrirtækið stækkun virkjana á Þeistareykjum og við Sigöldu sem og vindorkulund við Búrfell. 6.12.2022 11:12
Varaflugvallargjaldi einnig ætlað að kosta framkvæmdir í Reykjavík Tvöhundruð króna varaflugvallargjald verður lagt á bæði innanlands- og millilandaflugfarþega, samkvæmt frumvarpi sem innviðaráðherra boðar. Gjaldinu er ætlað að standa undir framkvæmdum við flugvellina á Akureyri, Egilsstöðum og í Reykjavík. 5.12.2022 22:22
Íbúarnir buðust til að vera bakland fyrir nýju fjölskylduna „Við fluttum hingað þekkjandi engan hérna. Við höfðum aldrei komið hingað áður,“ segir Hrafnhildur Árnadóttir, sem flutti til Þorlákshafnar fyrir sjö árum ásamt manni sínum, Sigurði Steinari Ásgeirssyni, og tveimur sonum. 4.12.2022 07:57
Vill bora öll jarðgöng sem þörf er á hérlendis á næstu þrjátíu árum Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra vill að á næstu þrjátíu árum verði reynt að bora öll þau jarðgöng sem þörf er á hérlendis en fjármagna þau í allt að fimmtíu ár eftir það. 1.12.2022 22:20