Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Til­boð Icelandair það eina og langt yfir á­ætlun

Eitt tilboð barst í áætlunarflug Vegagerðar milli Ísafjarðar og Reykjavíkur. Tilboðið var frá Icelandair og er langt yfir áætluðum kostnaði Vegagerðar. Upplýsingafulltrúi segir tilboðið í yfirferð hjá Vegagerðinni.

Enginn meðal­maður eða meðal­kona til í al­vörunni

Hagstofan birti á konudaginn samantekt á tölum um það hvernig konur verja degi sínum. Upplýsingarnar eru fengnar úr tímarannsókn sem framkvæmd var af Hagstofunni fyrir félags- og vinnumarkaðsráðuneytið árið 2023. Deildarstjóri hjá Hagstofunni segir meðaltal í raun ekki lýsa neinum einum. Svarhlutfall í rannsókninni hafi verið afar lágt og því ekki hægt að birta niðurstöður nema við eina breytu. 

Einar fundar með borginni um mál­efni mið­borgar

Skrifstofa borgarstjóra ætlar að funda með Einari Bárðarsyni, framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja á veitingamarkaði, um ýmis mál er varða veitingarekstur í miðborginni. Þau vilja ekki kalla það „friðarviðræður“ eins og Einar hefur kallað eftir en Eva Bergþóra Guðbergsdóttir, samskiptastjóri borgarinnar, segir eiga að ræða ýmis mál er varða miðborgina á fundinum.

Vissi alltaf að sonurinn myndi ekki þrífast í skóla­kerfinu

Nýr skóli fyrir einhverf börn, Þorláksskóli, verður opnaður í Garðabæ í haust. Vigdís Gunnarsdóttir hefur unnið að stofnun skólans frá því í fyrra en sonur hennar verður einn fimm nemenda skólans. Vigdís segist snemma hafa gert sér ljóst að sonur hennar, sem hefur sína skólagöngu í haust, myndi ekki þrífast í umhverfi hefðbundins skólahverfis.

Ellefu í fram­boði í próf­kjöri Pírata

Ellefu eru í framboði í prófkjöri Pírata í Reykjavík. Prófkjör fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor hefst á morgun. Tveir sækjast eftir fyrsta sæti, fjórir eftir öðru til fimmta sæti og fjöldi eftir neðri sætum. 

Rúmar sex hundruð milljónir til sjö stjórn­mála­flokka

Sjö stjórnmálasamtök hafa fengið samtals greiddar samtals 605 milljónir króna úr ríkissjóði fyrir árið 2026. Samfylkingin fær hæsta framlagið, 130 milljónir, og Sósíalistaflokkurinn lægsta framlagið, 22,5 milljónir. 

Snjó­koma á höfuð­borgar­svæði í dag og á morgun

Það á að snjóa á höfuðborgarsvæðinu í dag og á morgun. Veðurfræðingur segir ekki um mjög mikið magn að ræða en það gæti breyst. Það eru engar viðvaranir í gildi en ef magnið breytist verða þær sendar út.

Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vit­laust festir

Samgöngustofa minnir á mikilvægi þess að huga vel að börnum í bíl og að þau séu í stól við hæfi miðað við aldur. Ökumenn geta fengið allt að 30 þúsund króna sekt fyrir að nota ekki réttan öryggisbúnað fyrir barn í bíl. 

„Við erum að vinna með fólki sem hefur lent í miklum á­föllum“

Steinunn Bergmann, formaður Félagsráðgjafafélags Íslands, segir niðurstöður nýrrar könnunar um ofbeldi gegn félagsráðgjöfum í starfi gefa tilefni til að kanna hvað sé hægt að gera til að tryggja góða eftirfylgni á vinnustöðum og að félagsráðgjafar fái þann stuðning sem þeir þurfa til að sinna vinnu sinni vel. 

Sjá meira