„Framkvæmdastjórnin virðir vilja íslensku þjóðarinnar“ Stofnanir ESB segjast virða fullkomlega vilja íslensku þjóðarinnar eftir að meirihluti kjósenda sagði nei við því að hefja aðildarviðræður að nýju við Evrópusambandið. 30.8.2026 16:46
„Landsbyggðin okkar stendur sterk” Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, sagði ríkisstjórnina í góðu sambandi við landsbyggðina. Landsbyggðin standi sterk en niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar geti þýtt að staða fólks á höfuðborgarsvæðinu sé verri en þeirra á landsbyggðinni. Sterkara ákall hafi verið á höfuðborgarsvæðinu um áframhaldandi viðræður en á landsbyggð. 30.8.2026 15:27
Ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og taki málið af dagskrá Formenn ríkisstjórnarflokkanna segjast stoltar af því að hafa lagt málið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðin hafi fengið sitt að segja og ríkisstjórnin virði niðurstöðuna og ætli ekki að halda viðræðum áfram. Utanríkismálanefnd Alþingis kemur saman á morgun til að ræða niðurstöðuna og framhaldið. 30.8.2026 14:18
Niðurstaðan sé töluvert áfall fyrir ríkisstjórnina Formenn stjórnarandstöðu segja niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar mikið áfall fyrir ríkisstjórnina. Þau árétta að Evrópusamstarf sé Íslandi enn mikilvægt en skilaboð þjóðarinnar séu skýr til ríkisstjórnar um að einbeita sér að þeim verkefnum sem þau voru kjörin til að leysa, eins og að ná niður verðbólgu og vöxtum. Þau hafi ætlað að gera það með Evrópusambandinu en meirihluti þjóðar hafi ekki trúað á þá lausn. 30.8.2026 12:45
Ætla að opnan nýjan unglingaskóla í Ármúla Samþykkt var á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni að breyta byggingu í Ármúla 28 til 30 og gera þar unglingaskóla fyrir um 250 nemendur. Gert er ráð fyrir að börn í Múlum og Skeifunni geti sótt þar nám. Ekki kemur fram hvenær framkvæmdum á að ljúka og hvenær skólastarf á að hefjast. 30.8.2026 07:02
Brynjar tekur við af Líf Brynjar Níelsson er nýr formaður stjórnar Faxaflóahafna en ný stjórn var kjörin á framhaldsaðalfundi félagsins 26. ágúst. Fimm af sjö aðalmönnum stjórnar eru nýir. 28.8.2026 14:35
Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Jón Hrói Finnsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Langanesbyggðar. Greint er frá ráðningu hans í tilkynningu á vef sveitarfélagsins. 28.8.2026 14:02
Inga segir já Inga Sæland formaður Flokks fólksins og mennta- og barnamálaráðherra hefur þegar greitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni á morgun, og sagði já. Inga segir hótanir, ósannindi og falsfréttir í aðdraganda kosninga yfirgengilegar. Henni hafi verið hótað eins og fleiri ráðherrum. 28.8.2026 12:34
Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Brotist var inn í Hygge bakarí á Barónsstíg í nótt. Töluverðum fjármunum var stolið úr peningakassa auk tölvu og síma sem var á staðnum. Axel Þorsteinsson, eigandi Hygge, segist feginn að ekkert starfsfólk var á staðnum. Öryggi þeirra sé í forgangi. 28.8.2026 11:36
Þorgerður beygði af í Bítinu Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hafa borist alvarlegar hótanir síðustu vikur og átti erfitt með að ræða þær í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Hún segir þær til skoðunar hjá lögreglu. Hún segist þó telja sig örugga. Hún sagðist berjast fyrir bættum lífskjörum Íslendinga og að atkvæðagreiðslan á morgun snúist um það, og breytta stöðu alþjóðlega. 28.8.2026 08:52