Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Til skoðunar hvort um hryðju­verk sé að ræða

Enginn hefur enn verið handtekinn vegna sprengingar við sendiráð Bandaríkjanna í Osló í nótt. Lögregla segir sprenginguna hafa verið ætlaða sendiráðinu og að það sé til skoðunar hvort að um hryðjuverk sé að ræða, og hvort tengsl séu við stríð Bandaríkjanna og Ísraela í Íran. Norskir ráðherrar hafa verið í sambandi við sendiherrann en sendiráðið hefur ekkert gefið út um sprenginguna.

Rósa Björk nýr for­maður VG

Rósa Björk Brynjólfsdóttir er nýr formaður Vinstri grænna. Rósa Björk var kjörin með 95 prósent atkvæða samkvæmt tilkynningu. Bjarki Hjörleifsson var kjörinn varaformaður VG með 99 prósent atkvæða

Sprenging við banda­ríska sendi­ráðið í Osló

Sprenging varð við bandaríska sendiráðið í Osló um klukkan eitt í nótt. Samkvæmt norska miðlinum NRK sakaði engan í sprengingunni. Lögreglan leitar eins eða fleiri gerenda með drónum, hundum og í þyrlu. Lögregla segir ekki frekari hættu á svæðinu.

Hóta öllum mögu­legum arf­tökum Khamenei

Donald Trump forseti Bandaríkjanna útilokar ekki að senda bandaríska hermenn til Mið-Austurlanda en segist hafa nánast gjöreytt írönsku stjórninni. Á sama tíma er greint frá því á Guardian að nokkuð víðtæk samstaða hafi náðst um eftirmann æðsta leiðtoga Írans, Ayatollah Ali Khamenei. Það sagði Ayatollah Mohammadmehdi Mirbaqeri, meðlimur sérfræðingaráðsins, í dag, að sögn fréttastofunnar Mehr.

Él og slyddu­él í dag og önnur lægð á morgun

Í dag má búast við suðlægri átt og fimm til 13 metrum á sekúndu og él eða slydduél, en lengst af að það verði þurrt norðaustanlands framan af degi. Eftir hádegi gengur í suðaustan 13 til 20 metra á sekúndu og bætir í él um tíma á austanverðu landinu.

Ógnaði fólki með hníf og beitti svo lög­reglu­mann of­beldi

Einn var handtekinn á skemmtistað í miðbænum í nótt eftir að hafa ógnað fólki með hnífi. Maðurinn var handtekinn og færður á lögreglustöð þar sem hann beitti svo lögreglumann ofbeldi. Samkvæmt dagbók lögreglu eru bæði málin til rannsóknar og í ferli.

Þó­nokkuð margir búnir að stytta leikskóla­vist á föstu­dögum

Fimmtán prósent foreldra eða forráðafólks leikskólabarna í Reykjavík hafa breytt dvalartíma barna sinna vegna innleiðingar Reykjavíkurleiðarinnar. Skrifstofustjóri á leikskólasviði Reykjavíkurborgar segir marga stytta dvalartíma á föstudögum. Það sé ánægjulegt hversu margir hafa þegar brugðist við.

„Ég tel þetta ekki vera á­kveðna höfnun á Alexöndru“

Efstu tíu sæti lista Pírata í Reykjavík verða staðfest í dag og listinn kynntur eftir helgi. Prófkjöri lauk í gær. Kristinn Jón Ólafsson, nýr oddviti flokksins, segir spennandi tíma framundan. Ekki liggur fyrir hvort Alexandra Briem þiggi eða hafni öðru sæti listans en Kristinn segir að þó svo að niðurstaða sé bindandi geti fólk beðið um að vera fært neðar eða hafnað sæti.

Sjá meira