Kristín Hrefna tekur við sem framkvæmdastjóri Hopp Kristín Hrefna Halldórsdóttir hefur tekið við stöðu framkvæmdastjóra Hopp Reykjavíkur, sem sér um starfsemi Hopp á höfuðborgarsvæðinu. Kristín tekur við keflinu af Sæunni Ósk Unnsteinsdóttur. Sæunn tekur við sem stjórnarformaður Hopp Reykjavíkur. 14.10.2025 12:36
Aftur á fjöllum og í veiði á fjórhjóli fyrir fólk með skerta hreyfigetu Jón Gunnar Benjamínsson segir lífið gjörbreytt og tækifæri hans miklu fleiri til tómstunda og leikja eftir að hann keypti sér rafmagnsfjórhjól sem er sérstaklega hannað fyrir fólk með skerta hreyfigetu. Jón Gunnar hefur verið í hjólastól frá árinu 2007. 14.10.2025 11:21
Meirihluti hlynntur aðskilnaði ríkis og kirkju Alls eru 52 prósent svarenda í könnun Prósents hlynnt aðskilnaði ríkis og kirkju, 27 prósent eru hvorki hlynnt né andvíg og 21 prósent eru andvíg. Þau sem eru á aldrinum 18 til 24 ára eru marktækt hlynntari aðskilnaði ríkis og kirkju en þau sem eru 35 ára og eldri. 65 ára og eldri eru marktækt andvígari aðskilnaði en þau sem eru 54 ára og yngri. 14.10.2025 09:01
„Aðstoðin verður að fá greiða leið inn á Gasa“ Gísli Rafn Ólafsson, framkvæmdastjóri Rauða kross Íslands, segir neyðarsöfnun samtakanna fyrir Gasa fara vel af stað. Það sé risa verkefni framundan við að koma hjálpargögnum og vinnuvélum inn á Gasa og hefja uppbyggingu innviða á ný. Alþjóðaráð Rauða krossins tók í gær á móti Ísraelum og Palestínumönnum sem voru í haldi Ísraela og Hamas og vinnur nú að því að koma mannúðaraðstoð inn á svæðið. 14.10.2025 08:16
Eldur í nýbyggingu í Gufunesi Eldur kviknaði í bílakjallara í nýbyggingu í Gufunesi í morgun. Samkvæmt upplýsingum frá Sigurjóni Ólafssyni, aðstoðarvarðstjóra hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, komu iðnaðarmenn á svæðið í morgun og urðu varir við eld. Eldsupptök liggja ekki fyrir að svo stöddu. 14.10.2025 08:08
Vindur fyrir norðan og rigning og þokusúld vestanlands Í dag gengur í suðvestan 10 til 18 metra á sekúndu um norðanvert landið en vindur verður mun hægari sunnan heiða samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings. Það má samkvæmt hugleiðingum búast við þokusúld eða rigningu, einkum vestanlands, en það verður þurrt og bjart austantil á landinu. Hiti verður líklega á bilinu átta til 16 stig, hlýjast eystra. 14.10.2025 07:24
Vilja nýja leið fyrir strætó í Fossvogi í gegnum tvo botnlanga Strætó hefur óskað eftir því að Reykjavíkurborg og Kópavogur hefji undirbúning að byggingu strætóvegar milli Stjörnugrófar og Fossvogsbrúnar. Í minnisblaði sem var til umræðu á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni kemur fram að samhliða breytingunum þurfi að setja upp hlið til að stöðva aðra umferð og tvær nýjar stoppistöðvar, við Víkina og Fossvogsbrún. 14.10.2025 06:45
Enn vesen í Vesturbæjarlaug Reykjavíkurborg hefur, í samráði við starfsfólk heilbrigðiseftirlitsins, tekið ákvörðun um að loka laugarkari Vesturbæjarlaugar tímabundið á meðan unnið er að lausn á flögnun á málningu. Fólk getur því ekki synt en þó notað heitu pottana, þann kalda og gufuböð. 13.10.2025 14:49
Algengast að fólk láni eða fái lánuð verkja- og róandi lyf Niðurstöður samevrópskrar rannsóknar sýna að um 40 prósent Íslendinga hafa fengið lánað eða lánað lyfsseðilsskyld lyf síðasta árið. Algengast var að fólk fengi lánuð eða lánaði verkjalyf eða róandi lyf. Sextán prósent þeirra sem höfðu lánað eða fengið lánað sögðu það hafa verið gert í neyð. 13.10.2025 09:09
Samfylkingin með mesta fylgi allra flokka Samfylkingin mælist með mesta fylgi allra flokka á landsvísu samkvæmt nýrri könnun Prósents. Rúm 30 prósent segjast myndu kjósa Samfylkinguna yrði kosið til Alþingis í dag. Samkvæmt könnun er fylgið marktækt meira hjá konum og hjá þeim sem búa á höfuðborgarsvæðinu. Ríkisstjórnarflokkarnir eru samanlagt með 54 prósent fylgi. 10.10.2025 13:29