Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Kristín Hrefna Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavíkur, á ekki von á því að breyting innviðaráðherra á stöðvarskyldu leigubílstjóra verði til þess að bílstjórar og farþegar upplifi meira öryggi. Akstur með mæli skapi mikið óöryggi meðal beggja og lagabreyting um stöðvarskyldu breyti því ekki. 6.3.2026 10:59
„Brýn nauðsyn“ geti kallað á rof þagnarskyldu heilbrigðisstarfsfólks Sé brýn nauðsyn eða lífi eða heilsu sjúklings ógnað með yfirvofandi hætti á þagnarskylda heilbrigðisstarfsfólks að víkja fyrir verndarskyldu. Gunnar Ármannsson lögmaður segir að annars eigi þagnarskyldan að gilda. Skrá eigi ofbeldi eða grun um það og tilkynna fáist leyfi frá sjúklingi. Hafni sjúklingur aðstoð verði heilbrigðisstarfsfólk að meta hættu og tilkynna telji þeir brýna nauðsyn til. 6.3.2026 08:41
Kröpp lægð yfir landinu og úrkoman blönduð Kröpp og djúp lægð er núna vestur af landinu. Samkvæmt hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar gengu skilin yfir landið í nótt og erum við nú í hlýjasta hluta veðurkerfisins. Úrkoman á engu að síður að vera blönduð samkvæmt spá, rigning, slydda og jafnvel snjókoma á köflum. 6.3.2026 07:28
Vilja gagnagrunn um hatursorðræðu og hatursglæpi á Íslandi Nefnd Evrópuráðsins gegn kynþáttafordómum og umburðarleysi (ECRI) gagnrýnir íslensk stjórnvöld fyrir að hafa ekki enn komið upp heildstæðum gagnagrunni um hatursorðræðu og hatursglæpi á Íslandi . Nefndin hvetur íslensk stjórnvöld til að dreifa fræðsluefni um bann við mismunun á fleiri tungumálum en íslensku. 5.3.2026 06:30
Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendastofa hefur nú til skoðunar tíu ábendingar vegna ofrukkunar fargjalda hjá Strætó. Notendur Android-síma hafa lent í því að vera rukkaðir um fargjald þó svo að þeir séu með áskriftarkort í símanum. Jóhannes Rúnar Svavarsson framkvæmdastjóri Strætó segir einhverja tugi hafa tilkynnt slíka rukkun til Strætó og þær hafi allar verið endurgreiddar. 4.3.2026 22:17
Átján Íslendingar óskað eftir sæti í björgunarferðum Átján Íslendingar hafa óskað eftir því að fá sæti í skipulögðum björgunarferðum frá Jórdaníu og Sádí-Arabíu á morgun og á föstudag. Ekki liggur fyrir hversu mörg sæti verða í boði fyrir Íslendinga í ferðunum. 4.3.2026 11:57
Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Gosfélagið hefur ráðið Hrafn Davíðsson í stöðu framleiðslustjóra fyrirtækisins. Hrafn kemur til Gosfélagsins frá Össuri. Gosfélagið tók síðasta haust yfir sölu og dreifingu á Klaka og er með sína eigin framleiðslu í undirbúningi. 4.3.2026 11:17
Eigendur Ítalíu í þriggja ára atvinnurekstrarbann Elvar Ingimarsson og Björgvin Narfi Ásgeirsson, fyrrum eigendur Ítalgest ehf., rekstrarfélags veitingastaðarins Ítalíu, hafa verið úrskurðaðir í atvinnurekstrarbann til þriggja ára. Landsréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms frá því í janúar. 4.3.2026 10:36
Með skerta athygli af óþekktum ástæðum þegar slysið varð Rannsóknarnefnd samgönguslysa hvetur þá sem flytja inn ökutæki til að flytja ekki inn bíla sem eru án loftpúða fyrir farþega í framsæti. Í nýrri skýrslu nefndarinnar um banaslys við Kross í Berufirði í mars í fyrra segir að meginorsök slyssins hafi verið að öðrum bílnum hafi verið ekið yfir á rangan vegarhelming og að ökumaður hafi verið með skerta athygli. 4.3.2026 09:22
„Erum við ekki að fara aðeins fram úr okkur“ Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segist skoða það þegar að því kemur hvort hún myndi ráða sig sem bæjarstjóra í Vestmannaeyjum eða annars staðar. Íris tilkynnti nýlega að hún ætli ekki aftur fram. Íris var til viðtals í Bítinu og ræddi þar einnig samgöngumál til Vestmannaeyja sem hún segir óboðleg á þessari stundu. 4.3.2026 08:30