Rekstur Hörpu stöðugur þrátt fyrir krefjandi aðstæður Rekstur samstæðu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu ohf. var stöðugur á árinu 2025 þrátt fyrir ýmsar krefjandi ytri aðstæður, þar á meðal aukinn kostnaðarþrýsting á flestum sviðum, segir í tilkynningu. Þar segir að á síðasta ári hafi verið um 1,6 milljónir heimsókna í Hörpu og haldnir 1.344 viðburðir. 23.3.2026 14:39
Eigandi OnlyFans látinn Leonid Radvinsky, eigandi OnlyFans, er látinn, 43 ára. Hann lést úr krabbameini. OnlyFans var stofnað 2016 og Radvinsky eignaðist móðurfélag þess, Fenix International Limited, árið 2018. Í frétt Reuters segir að hann hafi verið stjórnarformaður félagsins og meirihlutaeigandi. 23.3.2026 13:31
Loka verslun Next í Kringlunni Loka á verslun Next í Kringlunni samkvæmt tilkynningu á Facebook. Versluninni verður lokað þann 4. apríl, laugardaginn í næstu viku. 23.3.2026 11:17
Átta mánaða skilorð fyrir ofbeldi í nánu sambandi og eignaspjöll Karlmaður var nýlega í Héraðsdómi Austurlands dæmdur til átta mánaða skilorðsbundins fangelsis fyrir eignaspjöll og ofbeldi í nánu sambandi gegn sambýliskonu sinni og barnsmóður. Maðurinn var ákærður í tvígang fyrir ofbeldi í nánu sambandi, fyrst 2024 og svo í janúar á þessu ári. Hann var aðeins sakfelldur í öðru tilvikinu. 23.3.2026 10:30
Fækkun aðgerða áfall fyrir marga endósjúklinga Framkvæmdastýra Endósamtakanna segir ólíðandi að fækka eigi endó-aðgerðum á Klíníkinni. Stór hópur kvenna með endómetríósu bíði eftir þjónustu og bætt þjónusta á heilsugæslu hjálpi þeim ekki í dag. Nauðsynlegt sé að gera bæði í einu. 22.3.2026 15:31
Leggja niður 4. bekk vegna plássleysis og kynjahalla Barnaskólinn í Hafnarfirði, Hjallastefnuskólinn, hefur ákveðið að leggja niður 4. bekk skólans frá og með næsta skólaári og mun því aðeins vera fyrir börn í fyrsta til þriðja bekk. Foreldrar hafa verið boðaðir til fundar vegna málsins á mánudag. Hafnarfirði var tilkynnt um breytinguna fyrir mánuði síðan. 21.3.2026 22:33
Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Jón Jóhannsson, eigandi ísgerðarinnar Skúbb, segir það nokkuð óvæntar fréttir að mjólk og rjómi séu ekki meðal helstu innihaldsefna í rjómaís frá Emmessís og mjúkís frá Kjörís. Hann segir yfirleitt ekki fleiri en fimm innihaldsefni í ísnum sem hann framleiðir og að það sé alltaf mjólk í grunninn. 20.3.2026 14:03
Hafi orðið ryksprenging í tómum tanki í Fóðurblöndunni Sprengingin í Fóðurblöndunni í morgun varð í tómum tanki í húsnæði Fóðurblöndunnar. Í yfirlýsingu kemur fram að vinna hafi verið yfirstandandi við einn af þremur tómum tönkum. Í húsinu séu alls 45 tankar. Framkvæmdastjóri telur að um ryksprengingu hafi verið að ræða. 20.3.2026 13:00
Ragna verður forstjóri Fangelsismálastofnunar Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að flytja Rögnu Bjarnadóttur, skrifstofustjóra í dómsmálaráðuneytinu, í embætti forstjóra Fangelsismálastofnunar ríkisins frá og með 15. maí næstkomandi. 20.3.2026 12:44
Lyfjaver opnar nýtt apótek í Klíníkinni Lyfjaver hefur opnað nýtt apótek í Klíníkinni við Ármúla 7–9. Þetta er fyrsta útibú fyrirtækisins frá því að apótek Lyfjavers við Suðurlandsbraut var opnað árið 2002. 20.3.2026 10:58