Fréttamaður

Lovísa Arnardóttir

Lovísa er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna

Meira en helmingur þátttakenda í könnun Maskínu fyrir Fjölmiðlanefnd um gervigreind og samfélagsmiðla segir upplifun sína af samfélagsmiðlum verri nú en þegar þeir byrjuðu að nota þá. Um helmingur sagðist oft vera í símanum á salerninu, um þriðjungur segist eiga erfitt með að horfa á mynd, þátt eða íþróttaviðburð án þess að kíkja í símann og 19 prósent eiga erfitt með að borða án þess að skoða símann.

Snúist ekki um að í­búar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið

Íbúar í hverfi 108 í Reykjavík eru uggandi yfir flutningi kaffistofu Samhjálpar í hverfið. Þeir segjast óttast að börn verði fyrir aðkasti eða vitni að ofbeldi eða vímuefnaneyslu sem þau gætu tekið inn á sig. Þeir óttast einnig að innbrotum muni fjölga samhliða flutningi kaffistofunnar. Þeir, ásamt fleirum, standa fyrir opnum íbúafundi um flutninginn í kvöld. 

Skapi ó­öryggi þegar lög­regla sé allt í einu mætt á svæðið

Steinunn Þórðardóttir formaður Læknafélags Íslands kallar eftir því að sett verði á stofn sérstök nefnd, sem samsvari rannsóknarnefnd samgönguslysa, til að rannsaka andlát og alvarleg atvik í heilbrigðiskerfinu. Það valdi heilbrigðisstarfsfólki óöryggi þegar lögregla sé farin að skoða mál án þess að það hafi verið metið af sérfræðingum innan heilbrigðiskerfisins.

Lög­regla að fá skýrari mynd af and­láti konunnar

Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurlandi, segir enn skýrslutökur vegna andláts konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Landsréttur hefur ekki úrskurðað um gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar en farið var fram á gæsluvarðhald tveggja starfsmanna en því hafnað í héraðsdómi.

Símafrí í grunn­skólum Kópa­vogs

Sáttmáli um símafrí í skóla- og frístundastarfi í Kópavogi hefur verið samþykktur að undangengnu samráði við nemendur, foreldra og fagfólk í grunnskólum í Kópavogi. Í sáttmálanum felst meðal annars að símar eru ekki sýnilegir í skóla- og frístundastarfi og frímínútur verða skjálausar.

Eins og að kasta kjarn­orku­sprengju inn í fjöl­skyldur

Benedikta Eik Eiríksdóttir stofnaði á dögunum félagið Mitt DNA sem er félag rangfeðraðra. Hún segist vilja veita þeim stuðning sem eru í þessari stöðu og segir fólk alltaf verða að taka ábyrgð á mistökum sínum. Ekki eiga að leyna fólki upplýsingum um uppruna sinn.

Ekki stað­fest að veikindi fimm tengist listeríu í salati

Reykjavíkurborg hefur fengið tilkynningu um veikindi fimm einstaklinga í kjölfar þess að listería fannst í salati við reglubundna sýnatöku í framleiðslueldhúsi borgarinnar á Vitatorgi. Ekki hefur verið staðfest að listería hafi olli veikindunum en það verður aðeins gert með sýnatöku.

Miklar launa­hækkanir stærra vanda­mál en verð­tryggingin

Þórður Gunnarsson hagfræðingur segir verðtrygginguna ekki aðalvandamálið. Þegar fólk pirri sig á verðtryggingu sé það í raun að pirra sig á verðbólgunni. Hann segir miklar launahækkanir stærra vandamál. Hann kallar eftir auknu samráði á vinnumarkaði til að finna raunverulegt svigrúm og segir það líklegra til að hafa áhrif á verðbólgu en afnám verðtryggingar. 

Sjá meira