Tilkynningar um heimilisofbeldi milli foreldra og barna tvöfaldast Lovísa Arnardóttir skrifar 24. september 2026 13:23 Lögreglu um land allt er tilkynnt um heimilisofbeldi um sjö sinnum á dag. Vísir/Viktor Freyr Tilkynningum um heimilisofbeldi fjölgar á milli ára en tilkynningum um ágreining á milli skyldra eða tengdra hefur fjölgað milli ára. Á tímabilinu var tilkynnt um 236 tilvik þar sem þolandi og gerandi tengdust fjölskylduböndum. Þar vóg þyngst ofbeldi foreldris í garð barns, 103 tilvik, og ofbeldi barns í garð foreldris, 102 tilvik.
Alls bárust lögreglunni um land allt 1.188 tilkynningar um heimilisofbeldi og ágreining á milli skyldra eða tengdra einstaklinga á tímabilinu janúar til júní á þessu ári. Í samantekt ríkislögreglustjóra segir að um sé að ræða þriggja prósenta fækkun tilkynninga miðað við sama tímabil síðustu þrjú ár. Sé aðeins litið til síðasta árs er um sex prósenta fækkun tilkynninga að ræða. Sjö tilkynninga á dag Samkvæmt tilkynningu jafngildir það að meðaltali tæplega sjö tilkynningum á dag, eða 198 á mánuði. Ný skýrsla ríkislögreglustjóra um tilkynningar til lögreglu um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra/tengdra aðila fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 var í dag birt á vefsvæði lögreglunnar. Þar kemur einnig fram að ef einungis sé litið til heimilisofbeldismála, það er tilvika þar sem grunur er um brot á borð við líkamsárásir, hótanir eða eignaspjöll, þá hafi tilvikin verið 637, eða rúmlega sjö prósentum fleiri en ef miðað er við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára og um þremur prósentum fleiri miðað við árið 2025. Flest heimilisofbeldismál voru tilkynnt í mars, eða 122. Tilkynningar um ágreining milli skyldra/tengdra aðila voru samkvæmt skýrslunni 551, eða um 13 prósentum færri miðað við meðaltal síðustu þriggja ára og 14 prósentum færri miðað við árið 2025. Fækkun tilkynninga í heild skýrist því af færri ágreiningsmálum en ekki færri heimilisofbeldismálum. Í skýrslunni kemur jafnframt fram að þegar tengsl eru skoðuð komi í ljós að heimilisofbeldismál milli hjóna, sambúðarfólks eða para, núverandi eða fyrrverandi, voru 380, eða um 60 prósent málanna, og stóð fjöldinn í stað milli ára. Þar af var ofbeldi af hendi maka 263 tilvik og hafa þau ekki verið fleiri á fyrri árshelmingi frá árinu 2019. Börn og foreldrar Tilvik vegna ofbeldis af hendi fyrrverandi maka voru 117 og hafa ekki verið færri á sama tímabili samkvæmt skýrslunni en hlutfall fyrrverandi maka af heildarfjölda tilkynninga vegna ofbeldis í parsamböndum hefur þannig lækkað úr 42 prósentum árið 2019 í 31 prósent árið 2026. Tilvik þar sem gerandi og þolandi tengjast fjölskylduböndum voru 236 á tímabilinu og hafa ekki verið fleiri á fyrri árshelmingi frá árinu 2019. Í tilkynningu ríkislögreglustjóra segir að sé miðað við mannfjölda hafi tíðni slíkra mála hækkað um þriðjung frá árinu 2023, á meðan tíðni ofbeldis af hendi maka eða fyrrum maka hafi lækkað um 12 prósent. Þar vegi þyngst ofbeldi foreldris í garð barns, 103 tilvik, og ofbeldi barns í garð foreldris, 102 tilvik, en í báðum flokkum er talið óháð aldri barns. Frá árinu 2019 hefur tíðni beggja flokka miðað við mannfjölda nær tvöfaldast en þetta má m.a. rekja til markvissari skráningar í þessum málum. Í fjölskyldumálum voru 38 prósent þolenda börn undir 18 ára aldri. Þá kemur einnig fram í tilkynningu að tilvik þar sem lífi, heilsu eða velferð fjölskyldumeðlims hafi endurtekið eða á alvarlegan hátt verið ógnað hafi verið 93 samanborið við 77 á sama tímabili í fyrra og hafi ekki verið fleiri á fyrri árshelmingi frá gildistöku ákvæðisins árið 2016. Fleiri beiðnir um nálgunarbann Beiðnir um nálgunarbann og/eða brottvísun af heimili fyrstu sex mánuði ársins voru 65, eða 18 prósentu fleiri miðað við meðaltal sama tímabils síðustu þriggja ára á undan. Miðað við árið 2025 fjölgaði beiðnum um 10 prósent. Heimilisofbeldi er skilgreint sem ofbeldi sem einstaklingur verður fyrir af hendi nákomins, þ.e. árásaraðili og árásarþoli eru skyldir, tengdir eða hafa sögu um tengsl og eru tilvikin ekki bundin við heimili fólks. Útköll lögreglu þar sem ekki er grunur um brot eru skráð sem ágreiningur á milli skyldra og tengdra. Tíðni miðað við mannfjölda byggir á tölum Hagstofu Íslands um mannfjölda 1. janúar hvers árs.
Heimilisofbeldi Ofbeldi gegn börnum Kynbundið ofbeldi Lögreglumál Ofbeldi barna Tengdar fréttir Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Saksóknari í Súlunesmálinu svokallaða krefst þess að refsing Margrétar Höllu Hansdóttur Löf verði þyngd í sautján ára fangelsi. Málsmeðferð fyrir Landsrétti lauk í liðinni viku og er dóms beðið í málinu. 18. september 2026 06:48 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Saksóknari í Súlunesmálinu svokallaða krefst þess að refsing Margrétar Höllu Hansdóttur Löf verði þyngd í sautján ára fangelsi. Málsmeðferð fyrir Landsrétti lauk í liðinni viku og er dóms beðið í málinu. 18. september 2026 06:48