Leyniþjónustan gómaði barn Barn náði að troða sér í gegnum girðinguna hjá Hvíta húsinu, bústað forseta Bandaríkjanna, í gær. Viðvörunarkerfi leyniþjónustu Bandaríkjanna fór við það í gang. Fulltrúum hennar tókst að hafa uppi á barninu og koma því aftur til foreldra sinna. 19.4.2023 14:26
Sjónarmið Íslands hljóti að mæta skilningi Löggjöf um breyttar reglur um losunarheimildir í flugi var samþykkt á Evrópuþinginu í gærmorgun. Forsætisráðherra segir löggjöfina hafa hlutfallslega mikil áhrif á flugsamgöngur til og frá Íslandi. Hún trúir að raunhæf lausn náist í málinu, sjónarmið Íslands hljóti að mæta skilningi. 19.4.2023 12:24
2.000 tonn af salti og 195 tonn af olíu um borð Engin merki eru um olíuleka frá flutningaskipinu Wilson Skaw sem strandaði við Ennishöfða í Húnaflóa í gær. Tæplega tvö þúsund tonn af salti og 195 af olíu eru um borð í skipinu. Útlit er fyrir að létta þurfi skipið áður en ráðist verður í björgun þess og ljóst er að það verður ekki fært strax. 19.4.2023 11:09
Atli Viðar ráðinn samhæfingarstjóri í móttöku flóttafólks Atli Viðar Thorstensen hefur verið ráðinn sem samhæfingarstjóri í móttöku flóttafólks hjá forsætisráðuneytinu. Alls sóttu sextán um starfið sem var auglýst í mars síðastliðnum. 18.4.2023 16:31
Daníel færist á milli skrifstofustjóraembætta Daníel Svavarsson hefur verið skipaður skrifstofustjóri á skrifstofu samhæfingar og stefnumála í forsætisráðuneytinu. Daníel mun flytjast úr embætti skrifstofustjóra í menningar- og viðskiptaráðuneytinu. 18.4.2023 16:03
„Hefði hjálpað okkur Bjarka heil ósköp“ Ástrós Rut Sigurðardóttir, varaþingmaður Viðreisnar, flutti jómfrúarræðu sína á Alþingi í dag. Í ræðunni fagnar Ástrós þingsályktunartillögu um umboðsmann sjúklinga. Ástrós missti eiginmann sinn árið 2019 eftir langa baráttu við krabbamein. Hún segir að umboðsmaður sjúklinga hefði getað hjálpað þeim á sínum tíma. 18.4.2023 15:40
Arndís Ósk ráðin framkvæmdastjóri hjá Vegagerðinni Arndís Ósk Ólafsdóttir Arnalds hefur verið ráðin í starf framkvæmdastjóra mannvirkjasviðs Vegagerðarinnar. Ásamt því tekur hún sæti í yfirstjórn og framkvæmdastjórn Vegagerðarinnar. Alls bárust tuttugu og ein umsókn um starfið. 18.4.2023 13:51
Inga Hlín ráðin framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins Inga Hlín Pálsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins og mun hún hefja störf í byrjun maí. Alls bárust þrjátíu og sjö umsóknir um starfið. 18.4.2023 11:25
Kjarnorkuknúnir kafbátar fá að hafa viðkomu við Ísland Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra hefur tilkynnt bandarískum stjórnvöldum að kjarnorkuknúnum kafbátum sjóhers þeirra verður heimilt að hafa stutta viðkomu við Ísland. Kafbátarnir sem fá heimild til að að hafa viðdvöl hér bera ekki kjarnavopn og eru ekki útbúnir til þess. Búist er við að fyrsti kafbáturinn komi á næstunni. 18.4.2023 11:09
Margrét Anna skipuð sendiherra ELTA fyrir Ísland Margrét Anna Einarsdóttir, framkvæmdastjóri og stofnandi Justikal, hefur verið skipuð sem sendiherra Evrópusamtakanna í lögfræðitækni (ELTA). Meginmarkmið samtakanna er að efla tækni í lögfræðigeiranum í Evrópu. 18.4.2023 10:36