Engin kátína innan ferðaþjónustu með hærri gistináttaskatt Eftir helgi, þegar nýtt ár gengur í garð þarf að rukka ferðamenn um svokallaðan gistináttaskatt. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar er ósáttur við hátt í hundrað prósent hækkun með svo litlum fyrirvara og segir greinina eiga í vanda með að útfæra innheimtuna því mikið af sölunni fyrir næsta ár hefur þegar átt sér stað. 28.12.2023 11:52
„Við fylgjumst bara með fjölskyldu okkar deyja smám saman“ Palestínumenn með samþykkta fjölskyldusameiningu hafa reist tjöld fyrir utan Alþingi til að minna á fjölskyldur sínar sem hafast við í tjöldum á götum Gasa við skelfilegar aðstæður. Þeir segja tímann á þrotum og að þeir neyðist til að fylgjast með fjölskyldum sínum vera því sem næst við dauðans dyr. 27.12.2023 20:28
Kynþáttur hafi verið handtökunni óviðkomandi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist í engu kannast við þá atvikalýsingu sem komið hefur fram vegna handtöku karlmanns sem handtekinn á aðfangadagskvöld. Stöðvarstjóri segir ekkert óeðlilegt við handtöku mannsins og að kynþáttur hans sé málinu óviðkomandi. 27.12.2023 11:56
Halda sig innandyra eftir mannskæða skotárás Fimmtán létust og á þriðja tug særðust í skotárás í Karlsháskóla í miðborg Prag í dag. Lögregluyfirvöld í Tékklandi telja að hættan sé liðin hjá en árásarmaðurinn er látinn. Hann var tuttugu og fjögurra ára. Líkið af honum fannst í skólanum. Lögregluyfirvöld segja þá að faðir árásarmannsins hafi í dag fundist látinn skammt frá Prag. 21.12.2023 18:15
Óttast að þjóðin fái leiða á Grindvíkingum og fjari undan hjálpseminni Fjölskyldufaðir sem býr í Grindavík óttast að þjóðin muni fá leið á Grindvíkingum og að fjara muni undan hjálpseminni sem var svo mikil í upphafi. Nú sé ljóst að Grindvíkingar muni þurfa á stuðningi og skilningi að halda lengur en áður var talið. Margir viti ekki einu sinni hvar þeir muni búa á nýju ári. 20.12.2023 14:22
Segir fjárlögin ekki endurspegla veruleikann í íslensku samfélagi Dagana fyrir þinghlé voru afgreidd mörg stór mál sem varða losunarheimildir, gistináttaskatt, húsnæðismál Grindvíkinga og kílómetragjald fyrir eigendur rafknúinna ökutækja, lög um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir svo fátt eitt sé nefnt. Þá voru fjárlögin samþykkt með halla sem nemur 51 milljarði króna sem Hönnu Katrínu Friðriksson, þingflokksformanni Viðreisnar þykir allt of mikill. 18.12.2023 15:48
Grunur um að hinir handteknu tengist Hamas Þýskir saksóknarar fullyrða að þeir þrír sem voru handteknir í Þýskalandi í dag og sá fjórði í Hollandi að beiðni þýskri yfirvalda hafi tengsl við Hamas-samtökin. Þrír til viðbótar voru handteknir í umfangsmiklum lögregluaðgerðum í Danmörku. Allir sjö eru grunaðir um skipulagningu hryðjuverka. 14.12.2023 17:09
Segir það ekki þjóna hagsmunum Palestínu að Ísland slíti stjórnmálasambandi Utanríkisráðherra segir það ekki þjóna hagsmunum neins, og ekki heldur Palestínu, að Ísland slíti stjórnmálasambandi við Ísrael vegna framgöngu þeirra á Gasa. Ráðherrann flutti munnlega skýrslu um stöðuna fyrir botni Miðjarðarhafs á Alþingi fyrir hádegi. 14.12.2023 12:46
Hjálparbeiðnum fjölgar mikið og enn meiri dýrtíð spáð í desember Hjálparbeiðnum hefur fjölgað mikið hjá Hjálparstarfi kirkjunnar og neyðin í samfélaginu er gríðarleg. Þetta segir félagsráðgjafi hjálparsamtakanna. Verðbólgan sé augljós skaðvaldur en greiningardeildir bankanna spá enn meiri dýrtíð í desember. 13.12.2023 21:37
Fundi lauk án árangurs og verkfall á fimmtudag Samningafundi Félags flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins, fyrir hönd Isavia, lauk um fimmleytið án árangurs. Næsti fundur í kjaradeilunni verður á fimmtudag klukkan tvö. Það er því ljóst að sú vinnustöðvun sem boðuð hefur verið næsta fimmtudag kemur til framkvæmda. 12.12.2023 17:26