Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Sveinn Rúnar Hauksson, læknir og heiðursborgari í Palestínu, ver jólunum ásamt eiginkonu sinni í Betlehem í Palestínu. Hann segir dýrmætt að fagna jólunum í Fæðingarkirkjunni sjálfri en að hátíðarhöldin séu mikið lituð af átökum og sorg. 25.12.2024 15:01
Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Vegagerðin býst ekki við því að hægt verði að opna Hellisheiði og Þrengsli í dag samkvæmt veðurspá. Hún bendir á Suðurstrandarveg til Grindavíkur sem hjáleið en að þar sé hvasst, hálka og éljagangur. 25.12.2024 14:29
Útköll víða vegna óveðurs Björgunarfélag Akraness var kallað út undir hádegið vegna báts í Akraneshöfn sem var við það að slitna frá bryggju vegna hvassviðris. 25.12.2024 13:52
Ólympíufari í snjóbrettafimi lést í snjóflóði Ólympíusnjóbrettakappinn Sophie Hediger lést í snjóflóði í Arosa í Sviss á mánudaginn síðasta. Svissneska skíðasambandið greinir frá andláti hennar. 25.12.2024 09:51
Dyr Péturskirkjunnar standa opnar Frans páfi opnaði dyr Péturskirkju í gærkvöldi og ýtti þannig júbileumsári kaþólsku kirkjunnar úr vör. Áætlað er að á fjórða tug milljóna pílagríma muni gera sér ferð til Rómarborgar á næsta ári, sem er svokallað fagnaðarár. 25.12.2024 08:57
Farþegaflugvél hrapaði í Kasakstan Farþegaflugvél hrapaði í nágrenni borgarinnar Aktau í Kasakstan í morgun. Fyrstu fréttir gefa til kynna að einhverjir hafi lifað hrapið af. 25.12.2024 07:52
Appelsínugular viðvaranir og vegir víða lokaðir Jólahretið er hressilegt þennan jóladagsmorgun. Búast má við suðvestanátt í dag með hvassviðri eða stormi víða með dimmum éljum, einkum um landið sunnan- og vestanvert. 15-25 m/s og frosti frá 0 og upp í 5 stig. 25.12.2024 07:32
Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Tveir gistu fangaklefa á jólanótt og talsvert var um umferðaróhöpp í hálkunni í gærkvöldi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í jólanæturdagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. 25.12.2024 07:13
Vegir víða um land gætu lokast með litlum fyrirvara Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi á vegum víða um landið vegna veðurs. Varað er við því að vegir gætu lokast með litlum fyrirvara. 24.12.2024 15:59
Kristnir mótmæla í Sýrlandi vegna brennu á jólatré Hundruðir mótmælenda marséruðu um kristin hverfi Damaskusborgar í Sýrlandi í dag til að mótmæla því að jólatré hafi verið brennt í norðanverðu landinu. Mótmælendur krefjast þess að ný ríkisstjórn standi vörð um réttindi kristinna og annarra minnihlutatrúarhópa. 24.12.2024 14:39