Sögurnar í fyrra: Starfsframinn og alls konar tækifæri Við höldum áfram að rifja upp sögur og viðtöl úr Atvinnulífinu í fyrra og í þetta sinn horfum við á starfsframann og tækifærin. Sem svo sannarlega geta verið alls konar. 22.1.2023 12:00
„Ég fæ mér ekki lengur morgunmat á virkum dögum til að spara tíma“ Það tekur Eggert Benedikt Guðmundsson, leiðtoga sjálfbærrar þróunar í forsætisráðuneytinu, þó nokkurn tíma að komast í vinnuna. Enda býr hann í Mosfellsbæ en starfar í miðbæ Reykjavíkur. Sem hann segir ekkert endilega svo gáfulegt. Að búa við rætur Helgafells bætir það þó upp. 21.1.2023 10:00
Breytingar að skila sér: „Það þarf alltaf að byrja á því að taka til í eigin garði“ Mikilvægt að sporna við heilbrigðiskerfissóun segir Markús I. Eiríksson forstjóri HSS. 19.1.2023 07:00
Algengt að starfsfólk missi trúna á stefnumótun og stjórnendum Of algengt er að fyrirtæki og stofnanir fari í stefnumótunarvinnu sem á endanum breytir litlu sem engu. 18.1.2023 07:01
Hamsturshjól eða hamingja: „Núna vakna ég glöð alla morgna“ „Ég viðurkenni alveg að það var skrýtin tilfinning að segja yfirmanninum mínum að ég væri að segja upp eftir 15 ár í góðu starfi. Með fjárhagslegt öryggi og öllu því sem fylgir. En starfið var hætt að gefa mér lífsfyllingu. Mér fannst ég vera orðin eins og hamstur í hamsturshjólinu sem bara hljóp og hljóp,“ segir Jónína Fjeldsted sem nú rekur kaffihúsið Lekaff í Kaupmannahöfn. 16.1.2023 07:01
Á döfinni í fyrra: Því að lífið er svo miklu meira en vinna Á sunnudögum í janúar ætlum við að rifja upp ýmiss viðtöl og efni úr Atvinnulífinu í fyrra eða á vegum umsjónarmanns Atvinnulífsins. 15.1.2023 08:00
Hláturskast: „Ég lýsi því samt ekkert nánar til að vernda mannorð þeirra“ Kristín Edwald hæstaréttarlögmaður og stjórnarformaður LEX, segist eiga frekar auðvelt með að fá hláturskast. Ekki síst yfir sínum eigin klaufaskap. Í haust grenjuðu hún og vinkonur hennar af hlátri yfir óvæntu atriði herranna sinna, sem Kristín segir þó ekki hægt að segja nánar frá. Því það þurfi hreinlega að vernda mannorð þeirra. 14.1.2023 10:01
Nýtt trend: Í tísku að vinna ekki umfram það sem greitt er fyrir „Quiet quitting“ er orðatiltæki á ensku sem um þessar mundir er sífellt oftar að dúkka upp í umræðunni erlendis. Það sem „quiet quitting“ þýðir snýst samt ekkert um að við séum að hætta á einhvern þögulan hátt í vinnunni okkar. 13.1.2023 07:01
Trendin 2023: „Við getum ekki lengur treyst á reynslu fortíðarinnar“ „Við getum ekki lengur treyst á reynslu fortíðarinnar heldur verðum við að horfa til framtíðar og vera tilbúin að bregðast við óþekktri framtíð,“ segir Íris Sigtryggsdóttir stjórnendaráðgjafi hjá Eldar Coaching og stjórnarkona í Mannauði, félagi mannauðsfólks á Íslandi, um áherslur í mannauðsmálum framundan. 12.1.2023 07:00
Trendin 2023: Hæfni en ekki starfsheiti eða prófgráður verður málið „Hæfniþættir verða miðjan í vinnunni, ekki starfsheiti eða prófgráður. Við munum gera spár um mannaflaþörf, ráðningar, skipulag fræðslu, starfsþróun og fleira út frá hæfniþáttum en ekki starfsheitum eða deildum,“ segir Herdís Pála Pálsdóttir stjórnunarráðgjafi og annar stofnenda Opus Futura meðal annars um áherslur í mannauðsmálum árið 2023. 11.1.2023 07:00