Kemur til Ísafjarðar eftir að hafa keppt á Ólympíuleikunum Handknattleiksliðið Hörður Ísafjörður hefur heldur betur styrkt sig fyrir komandi tímabil í næstefstu deild hér á landi. Liðið hefur sótt þrjá erlenda leikmenn, þar af einn frá Japan sem mun taka þátt á Ólympíuleikunum sem fara af stað síðar í dag. 23.7.2021 09:01
Upplifir loks drauminn og uppfyllir í leiðinni loforð sem hann gaf ömmu sinni Pólski framherjinn Lukas Podolski upplifir loks æskudraum sinn á sunnudag þegar hann spilar sinn fyrsta leik fyrir Gornik Zabrze í pólsku úrvalsdeildinni. Á sama tíma uppfyllir hann loforð sem hann gaf ömmu sinni meðan hún var enn á lífi. 23.7.2021 08:32
Talið að Osaka verði síðust til að bera Ólympíukyndilinn í ár Talið er að tennisstjarnan Naomi Osaka muni bera Ólympíukyndilinn síðustu metrana og kveikja í Ólympíueldinum sem mun brenna á meðan leikarnir standa yfir í Tókýó. 23.7.2021 08:00
Eiður Smári meðal þeirra sem eru nefndir til sögunnar hjá Swansea Eiður Smári Guðjohnsen, aðstoðarlandsliðsþjálfari íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, er meðal þeirra sem er orðaður við stjórastöðuna hjá Swansea City sem spilar í ensku B-deildinni. 23.7.2021 07:31
Þeir eru með aðeins meiri gæði en við Matthías Vilhjálmsson var ekki sáttur með 0-2 tap FH á heimavelli gegn Rosenborg í 2. umferð undankeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Matthías lék lengi vel með norska liðinu og fékk frábært færi til að minnka muninn. 22.7.2021 21:16
Umfjöllun, viðtöl og myndir: FH - Rosenborg 0-2 | Gestirnir refsuðu Góð lið refsa alltaf og það sannaði Rosenborg í kvöld er liðið vann 2-0 sigur á FH er liðin mættust í Kaplakrika í 2. umferð Sambandsdeildar Evrópu. Það er því á brattan að sækja fyrir Hafnfirðinga í síðari leiknum sem fram fer eftir viku. 22.7.2021 21:00
Þurfa að vera á pari við AC Milan og Tottenham þegar kemur að launum Spænsku stórveldin Barcelona og Real Madrid hafa ekki fjárhagslegt bolmagn til að kaupa leikmenn dýrum dómum og borga jafn há laun og þau hafa gert undanfarin ár. Reglugerð La Liga, spænska úrvalsdeildin í knattspyrnu, sér til þess. 22.7.2021 20:00
Segir Arnór Ingva og félaga ekki betri á pappír en þeir séu með góða liðsheild og spili sem lið Inter Miami tapaði sínum sjötta leik í röð í MLS-deildinni í knattspyrnu er Arnór Ingvi Traustason setti tvö í 5-0 sigri New England Revolution í nótt. 22.7.2021 15:02
Pelé hrósaði Mörtu fyrir að hvetja milljónir um heim allan og skapa betri heim Brasilíska goðsögnin Pelé hrósaði samlöndu sinni Mörtu fyrir þá hvatningu sem hún veitir fólki um heim allan. Marta er af mörgum talin ein albesta knattspyrnu heims og jafnvel frá upphafi. 22.7.2021 14:30
Richarlison byrjar með látum og Mexíkó pakkaði Frakklandi saman Ólympíuleikarnir í knattspyrnu karla hófust í dag með átta leikjum. Af nægu er að taka en helst það að frétta að Richarlison skoraði öll mörk Brasilíu í 4-2 sigri á Þýskalandi, Mexíkó vann 4-1 sigur á Frakklandi og Ástralía lagði Argentínu 2-0. 22.7.2021 13:31