Fréttamaður

Sigurgeir Þorkelsson

Sigurgeir er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Á­hrifa­valdur losar sig við stein­efni

Arnar Gauti Arnarson, markaðsstjóri Happy Hydrate, greinir frá því í tilkynningu að félagið hafi verið selt til hóps fjárfesta. Arnar Gauti, sem lesendur þekkja ef til vill betur sem Lil Curly, var áður í eigandahópi fyrirtækisins.

„Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu fé­lagi“

Katrín Oddsdóttir lögmaður, sem meðal annars hefur látið sig dýravelferð varða, gagnrýnir harðlega niðurstöðu Matvælastofnunar (MAST) um að ekki hafi verið brotið gegn lögum um velferð dýra þegar langreyður háði hálftíma langt dauðastríð. Katrín vill sjá harðari aðgerðir af hálfu MAST, líkt og beitingu stjórnvaldssekta. 

Segir erfitt að horfa upp á ná­granna missa al­eiguna

Fjöldi íbúða og heimila sem tapast hafa í stórbruna í Drammen í Noregi er kominn yfir hundrað. Arnar Jakobsson, sem búsettur hefur verið í Noregi síðastliðin tuttugu og sex ár, segist hafa mætt lögreglu- og slökkviliðsbíl um klukkan 15:35 síðdegis að staðartíma. „Þá leit ég upp í brekku og sá alelda hús,“ segir Arnar.

Kvöld­fréttir Sýnar í beinni

Forstjóri Icelandair segir það góðar fréttir að tímabundin sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Evrópusambandsins hafi verið framlengd. Varanleg lausn þurfi þó að koma til. Við hittum Boga Nils Bogason í kvöldfréttum.

Rúm­lega 50 heimili horfin í stórbruna í Drammen

Rúmlega fimmtíu heimili og íbúðir eru brunnin til grunna í bænum Drammen, sem staðsettur er tæplega 50 kílómetra suðvestur af Ósló. Samkvæmt yfirlýsingu slökkviliðs hefur enn ekki verið náð stjórn á brunanum.

Allt að fjörutíuföld mengun við skemmti­ferða­skip

Loftmengun í grennd við skemmtiferðaskip í höfn getur mælst 35 til 40 föld miðað við heilsuverndarmörk. Þörf er á uppsetningu innviða svo skipin geti tengst rafmagni þegar þau liggja við höfn og reglusetningu um notkun hreinni eldsneytisgjafa, samkvæmt sérfræðingi.

Tengivagn valt á Vestur­lands­vegi

Lögregla var kölluð til á fjórða tímanum vegna umferðaróhapps á Vesturlandsvegi þar sem flutningabíl með tengivagn í eftirdragi hafði misst tengivagninn út af svo hann valt.

Vilja reisa 140 stúdenta­í­búðir á Kársnesi

FS, Félagsstofnun stúdenta, hefur sent skipulagsfulltrúa Kópavogsbæjar erindi um uppbyggingu 144 stúdentaíbúða á Kársnesi. Um er að ræða einstaklingsíbúðir sem að meðaltali verða tuttugu og níu fermetrar að stærð. Í samtali við Heiði Önnu Helgadóttur framkvæmdastjóra FS kemur fram að stöðug vöntun sé á stúdentaíbúðum.

Ferðast um heiminn og setur Ís­lands­met

Andrea Skúladóttir setti nýverið fimm Íslandsmet í fríköfun í kvennaflokki. Dýpst kafaði Andrea niður á fimmtíu og tveggja metra dýpi. Andrea hefur búið víðs vegar um heiminn þar sem aðstæður til fríköfunar eru bestar en er þó þessa stundina stödd hér á landi til að njóta íslenska sumarsins.

Sjá meira