Einn læknir sinnir þremur stjórnunarstöðum Mönnun fagfólks er ein helsta áskorunin hjá Heilbrigðisstofnun Vestfjarða, líkt og víða annars staðar, samkvæmt úttekt embættis Landlæknis. Einn læknir sinnir þremur stjórnendastöðum og eru fengnir læknar frá Danmörku til að manna stöður. Þá fer rafmagnið reglulega af í húsnæði stofnunarinnar á Patreksfirði. 20.2.2026 12:54
Aftur brotist inn í Húrra Reykjavík Í nótt var brotist inn í verslun Húrra Reykjavík á Hverfisgötu, í þriðja skipti á rúmri viku. Eigandann grunar að um sama mann sé að ræða. Lögreglan segir málið til rannsóknar. 20.2.2026 10:54
Rannsóknarprófessor og stofnandi Bláa lónsins hlutu Ásuverðlaunin Sigurður Reynir Gíslason, rannsóknarprófessor við Háskóla Íslands, og Grímur Sæmundsen, stofnandi Bláa Lónsins,, hlutu í dag heiðursverðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu Guðmundsdóttir Wright. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, afhenti verðlaunin á Bessastöðum í dag. 19.2.2026 16:07
Skipulagsstofnun lögð niður Alþingi hefur samþykkt sameiningu Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. HMS tekur við verkefnum Skipulagsstofnunar og mun nú heita Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun en heldur samt sem áður skammstöfuninni HMS. 19.2.2026 15:34
Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Á rúmri viku hefur tvisvar sinnum verið brotist inn í verslun Húrra Reykjavík við Hverfisgötu, síðast í nótt. Þýfið er virði hundraða þúsunda króna. Eigandinn segir málið hræðilegt og telur það vera dæmi um fjölgun innbrota. 19.2.2026 14:48
Sölvi genginn til liðs við KAPP Sölvi Sturluson Snæfeld hefur verið ráðinn sem rekstrarstjóri fiskeldis hjá KAPP. Markmiðið með ráðningu hans er að styrkja þjónustu félagsins og lausnir fyrir fiskeldi. 19.2.2026 13:03
Heitavatnslög gaf sig í Varmahlíðarskóla Heitavatnslögn gaf sig í Varmahlíðarskóla í Skagafirði aðfaranótt þriðjudags og lak vatnið niður þrjár hæðir í forstofu skólans. Aðstoðarskólastjóri hælir skjótum viðbrögðum starfsfólksins. Nemendur fengu snemmbúið vetrarfrí. 19.2.2026 11:36
Miðflokkurinn skarar fram úr í kjördæmi formannsins Fylgi Miðflokksins dalar örlítið samkvæmt nýjasta þjóðarpúlsi Gallups og er Samfylkingin enn stærst. Þróunin er þó öfug í kjördæmi formanns Miðflokksins þar sem flokkurinn mælist með mesta fylgið. 19.2.2026 11:22
Deilt um kjör Wolt-sendla Deilur um stöðu og kjör sendla Wolt hafa vaknað eftir að fulltrúar ASÍ gagnrýndu harðlega starfsemi Wolt á Íslandi. ASÍ heldur því fram að viðskiptamódel fyrirtækisins grafi undan kjarasamningbundnum réttindum. Wolt hafnar ásökununum og segir útreikninga ASÍ ranga. 18.2.2026 00:09
Loka sundlaugum fram yfir helgi vegna kuldans Allar sundlaugar í Árborg verða lokaðar fram yfir helgi vegna lakrar vatnsstöðu heita vatnsins. Staðan er vegna mikils kulda og þurrkatíðar undanfarna daga. 17.2.2026 23:00