„Allt eðlilegt en samt ekki eðlilegt“ Ísak Snær Þorvaldsson segir enn óljóst hvað hafi valdið því að hann endaði á spítala í gærkvöld með verki fyrir brjósti, eftir að hafa verið að spila með U21-landsliðinu í fótbolta. 9.6.2022 16:34
Einn sigur á heilu ári fyrir skyldusigurinn í kvöld Á síðustu 365 dögum hefur íslenska karlalandsliðið í fótbolta aðeins unnið einn sigur en það var á heimavelli gegn Liechtenstein, 4-0, í október í fyrra. Í kvöld gefst kærkomið tækifæri á öðrum sigri, gegn San Marínó sem er neðst á heimslista FIFA. 9.6.2022 15:31
PGA-mótaröðin setur kylfingana sem spila í dag í bann Forráðamenn vinsælustu golfmótaraðar heims, PGA-mótaraðarinnar, hafa nú ákveðið að banna þá kylfinga sem keppa munu á fyrsta móti sádi-arabísku LIV-mótaraðarinnar sem hefst í dag. 9.6.2022 14:24
Vanda með áskorun til foreldra: „Þurfum að setja okkur inn í þennan veruleika“ Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður KSÍ, hvetur foreldra yngri iðkenda í fótbolta til að vera meðvituð um þann raunveruleika sem blasir við íþróttakrökkum á fámennari svæðum landsins. KSÍ skoðar nú hvort breyta þurfi reglum til að þeir krakkar fái að spila sína heimaleiki án vandræða. 9.6.2022 10:01
Sjáðu hraðþrennu Kötlu, sigurmark Hildar og Eyjakonur bæta fyrir mistökin Mörkunum rigndi í 8. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta og hér á Vísi má sjá öll mörkin úr umferðinni. Sautján ára leikmaður Þróttar skoraði þrennu á tuttugu mínútum. 8.6.2022 14:01
Í fjögurra ára bann fyrir höggið eftir sigur City Stuðningsmaður Manchester City, sem fagnaði Englandsmeistaratitlinum í maí með því að veitast að Robin Olsen, markverði Aston Villa, var sektaður og úrskurðaður í fjögurra ára bann frá fótboltaleikjum. 8.6.2022 12:30
Sádar borga til að mæta Íslandi: „Skil alveg að það séu ekki allir sáttir“ Vanda Sigurgeirsdóttir, formaður knattspyrnusambands Íslands, kveðst skilja það að ekki séu allir sáttir við þá ákvörðun KSÍ að þiggja boð Sádi-Arabíu um vináttulandsleik. Hún telji þó betra að eiga samtal og reyna að nýta fótboltann til góðs en að sniðganga þjóðir. 8.6.2022 08:00
María á EM og markmiðið er verðlaun María Þórisdóttir er á sínum stað í norska landsliðshópnum sem fer á Evrópumótið í fótbolta í Englandi í næsta mánuði. Norðmenn kynntu lokahóp sinn í dag. 7.6.2022 16:29
Þrír Blikar og Víkingur til San Marínó en þrír fá hvíld Fjórar breytingar hafa verið gerðar á karlalandsliði Íslands í fótbolta fyrir vináttulandsleikinn ytra gegn San Marínó á fimmtudaginn. 7.6.2022 09:13
Vilja hjálpa Ómari að verða aftur markakóngur Eftir að hafa orðið markakóngur í Þýskalandi í fyrra og markakóngur EM í janúar getur Ómar Ingi Magnússon bætt við öðrum markakóngstitli í Þýskalandi á næstu sjö dögum. 5.6.2022 08:01