Kvöldfréttir Stöðvar 2 Það gæti slokknað í faraldri kórónuveirunnar á næstu tveimur vikum að sögn sóttvarnalæknis. Verið er að loka Covid-göngudeild Landspítalans og fela heilsugæslunni verkefni deildarinnar. 16.2.2022 18:00
Gæti slokknað í faraldrinum á næstu tveimur vikum Sóttvarnalæknir segir þjóðina á hraðri leið í hjarðónæmi nú þegar fjórðungur landsmanna hefur verið greindur með kórónuveiruna. Útbreiðslan sé líklega mun meiri og ekki sé óvarlegt að áætla að helmingur þjóðarinnar eða meira hafi smitast. 16.2.2022 13:13
Öllu aflétt eftir tíu daga og jafnvel fyrr Heilbrigðisráðherra segir stefnt að því að aflétta öllum sóttvarnaraðgerðum eftir tíu daga og jafnvel fyrr ef aðstæður leyfa. Einangrun verði þá einnig aflétt en ráðherra hvetur þá sem veikjast til þess að halda sig heima - líkt og í öðrum veikindum. 15.2.2022 11:49
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Skotvopnið sem var notað í árás í miðbæ Reykjavíkur um helgina var þrívíddarprentuð byssa. Með réttum efnum getur maður sett saman lífshættuleg vopn af þeirri gerð í ódýrum prenturum heima við. Dæmi eru um tilraunir til slíks á Íslandi. Fjallað verður nánar um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2. 14.2.2022 18:02
Reynt að forða algjöru hruni í grunnþjónustu Afganistan er í heljargreipum og um helmingur barna býr við bráða vannæringu. Framkvæmdastjóri UNICEF segir áherslu lagða á að koma í veg fyrir algjört hrun í grunnþjónustu en samtökin hafa meðal annars nýtt söfnunarfé í að greiða laun hjúkrunarfólks til þess að halda heilsugæslustöðvum gangandi. 13.2.2022 23:00
Hádegisfréttir Bylgjunnar Óvissustig vegna snjóflóðahættu er í gildi á Vestfjörðum en hættustig á Patreksfirði og Ísafirði. Grípa hefur þurfti til rýmingar á nokkrum svæðum. Fjallað er um málið í hádegisfréttum Bylgjunnar. 8.2.2022 12:02
Óttast skipsbrot rétt undan landi Lítil fyrirtæki í ferðaþjónustu sjá fram á skipsbrot rétt undan landi komi stjórnvöld ekki til móts við þau. Talskona fimm hundruð fyrirtækja samstöðuhóps furðar sig á því að styrkir vegna tekjufalls veitingastaða í samkomutakmörkunum nái ekki einnig til þeirra þar sem afbókanir hafi streymt inn. 24.1.2022 12:35
Spyr sóttvarnalækni daglega hvort hægt sé að aflétta Heilbrigðisráðherra segist spyrja sóttvarnalækni daglega hvort hægt sé að fara létta á takmörkunum og telur jákvæð teikn á lofti í faraldrinum. Tæplega 1.500 greindust með veiruna í gær 21.1.2022 13:01
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Það var mikið áfall að greinast með kórónuveiruna og missa af stórleiknum gegn Dönum segir landsliðsmaður sem gagnrýnir sóttvarnir á hóteli liðsins í Búdapest. Sex liðsmenn hafa nú greinst smitaðir. 20.1.2022 18:00
Gagnrýnir mótshaldara fyrir sóttvarnir á hótelinu í Búdapest Það var mikið áfall að greinast með kórónuveiruna segir landsliðsmaður sem gagnrýnir sóttvarnir á hóteli liðsins í Búdapest. 20.1.2022 16:26