Neyddust til að aflýsa flugferðum vegna rafmagnsleysis Öllum flugferðum til og frá tveimur stærstu flugstöðvunum á flugvellinum í Manchester-borg í Englandi var aflýst í dag vegna rafmagnsleysis í byggingu flugvallarins. Icelandair neyddist til að aflýsa flugferðum sínum til og frá Manchester í dag. 23.6.2024 15:10
Fara enn huldu höfði þrátt fyrir fjölda vísbendinga Mennirnir tveir sem brutust inn í veitingasal Brunnhóls á Mýrum í Hornafirði í gær og höfðu þaðan með sér öryggiskassa fara enn huldu höfði. Lögreglunni á Suðurlandi hefur borist þó nokkrar vísbendingar síðan að eigandi Brunnhóls birti myndskeið af mönnunum að fara ránshendi um gistihúsið. 23.6.2024 14:34
Segir öldrun þjóðarinnar eitt helsta áhyggjuefnið „Það er nánast ekki tekið tillit til þessa. Þegar ég hef verið að lesa gögnin þá kemur verulega á óvart hvað þetta fær litla umfjöllun og lítið vægi og á nokkrum stöðum hef ég fundið umfjöllun um það að þetta breyti ekki miklu til skamms tíma en þetta er bara að gerast núna.“ 23.6.2024 14:30
Landris gæti aukist en of snemmt að segja til um goslok Veðurstofa Íslands tilkynnti í gær að eldgosinu við Sundhnúkagígaröð, sem hófst þann 29. maí, væri sennilega lokið. Benedikt Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, segir of snemmt til að fullyrða um það og bendir á að goslok gætu haft áhrif á landris í Svartsengi. 23.6.2024 12:18
Beit stóran bita úr eyra eftir orðaskak á skemmtistað Tveir karlmenn eru í haldi lögreglu eftir að hafa ráðist á annan mann inni á salerni á skemmtistað á Laugaveginum í miðbæ Reykjavíkur. Átök mannanna hófust með orðaskaki þeirra á milli en endaði á því að einn maðurinn beit hluta úr eyra hins. 23.6.2024 11:49
Umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu samþykktar Alþingi samþykkti í gærkvöldi frumvarp félags- og vinnumarkaðsráðherra um umfangsmiklar breytingar á örorkulífeyriskerfinu. Alls munu 95 prósent örorkulífeyrisþega fá hærri greiðslur í nýja kerfinu. 23.6.2024 09:54
Ein helsta perla Ítalíu lokuð ferðamönnum Bæjarstjóri Capri-eyju á Ítalíu fyrirskipaði að ferðamönnum yrði meinaður aðgangur að eyjunni klukkan níu í morgun. Neyðarástand ríkir á eyjunni vegna skorts á vatni. 22.6.2024 17:00
„Þetta er ekki það sem ég kalla að vinna frítt“ „Þetta er ótrúleg fullyrðing. Það er svo margt í þessari stuttu færslu sem maður gæti gert athugasemdir við. Ég gæti í allan dag nefnt dæmi um það hvernig borgin hefur orðið fyrir miklu fjárhagslegu tjóni með því að hafa Dag í stóli borgarstjóra. Ég held að borgarbúar hefðu farið betur úr því að fá nýjan borgarstjóra og greiða biðlaun.“ 22.6.2024 16:18
Eldgosinu líklegast lokið Eldgosinu sem hófst 29. maí virðist vera lokið. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Veðurstofu Íslands. 22.6.2024 15:18
Auka við listamannalaun í fyrsta sinn í fimmtán ár Alþingi samþykkti í dag breytingu á lögum um listamannalaun sem fela í sér fjölgun launasjóða sem starfslaun eru veitt úr og umtalsverða fjölgun árlegra úthlutunarmánaða. Fjöldi starfslauna hefur verið óbreyttur í fimmtán ár frá því að lögin tóku gildi árið 2009. 22.6.2024 14:43