Viðskipti

Úrvalsvísitalan hangir við 4.000 stigin
Nokkur viðsnúningur varð á gengi banka og fjármálafyrirtækja í Kauphöllinni eftir hækkun í fyrstu viðskiptum. Í byrjun dags leiddi Eimskipafélagið nokkra hækkun. Nú er gengi skipaflutningafélagsins hins vegar eitt á uppleið á meðan gengi bankanna hefur lækkað.

Gengi bankanna hækkar
Gengi Landsbankans, Straums, Glitnis og Kaupþings hefur hækkað mest í dag ef frá er skilin mikil hækkun á gengi Eimskipafélagsins. Bréf í skipaflutningafélaginu rauk upp um rúm tíu prósent á fyrstu mínútum viðskiptadagsins og bætti tæpum þremur prósentum við sig nokkrum mínútum síðar.

Eimskip skýst upp um 10 prósent
Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu rauk upp um rétt rúm tíu prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni í morgun. Fram hefur komið að feðgarnir Björgólfur Guðmundsson og Björgólfur Thor Björgólfsson fari fyrir hópi fjárfesta sem er tilbúinn til að veita Eimskip víkjandi lán uppá 26 milljarðar fari svo að ábyrgð vegna XL Leisure Group falli á félagið.

Krónan styrkist lítillega
Gengi íslensku krónunnar hefur styrkst um 0,3 prósent í upphafi dags á gjaldeyrismarkaði og stendur gengisvísitalan í 168,5 stigum. Vísitalan endaði í rétt rúmum 169 stigum í gær og hafði þá aldrei verið hærri, eða síðan Seðlabankinn tók að skrá vísitöluna um áramótin 1993.

Lækkun á flestum mörkuðum
Hlutabréf hafa almennt lækkað í verði á meginlandi Evrópu og í Asíu í dag. Hrun gengis á bandaríska fjárfestingabankanum Lehman Brothers dró alþjóðlega hlutabréfamarkaði niður í gær.

Gengi Lehmans Brothers hrundi um 40 prósent
Gengi hlutabréfa í Lehman Brothers, fjórða umsvifamesta fjárfestingabanka Bandaríkjanna hrundi um 45 prósent á hlutabréfamarkaði í dag og dró markaðinn með sér í fallinu vestanhafs.

Lækkunarhrina í Kauphöllinni
Lækkunarhrina einkenndi daginn í Kauphöllinni í dag. Gengi hlutabréfa í Eik banka og Bakkavör var það eina sem hækkaði á meðan gengi annarra lækkaði.

Bréf Eimskips sigldu niður
Gengi bréfa í Eimskipafélaginu féll um rúm 8,2 prósent í dag. Félagið hefur misst tæpan fjórðung af markaðsverðmæti sínu á tveimur dögum.

Bandaríkjadalur kominn í níutíu kallinn
Gengi íslensku krónunnar hefur veikst um 0,95 prósent innan dags í dag og stendur gengisvísitalan í 167,9 stigum. Bandaríkjadalur hefur styrkst nokkuð að sama skapi og kostar nú rúmar 90,3 krónur. Hann hefur ekki verið dýrari síðan snemma í júní árið 2002.

Spron og Eimskip lækka mest
Gengi hlutabréfa Spron féll um 2,9 prósent við upphaf viðskiptadagsins í Kauphöllinni í morgun. Bréf Eimskipafélagsins fór niður um 1,45 prósent á sama tíma. Bréf félagsins voru færð á Athugunarlista í morgun. Gengi bréfa í félaginu féll um tæp 16,5 prósent í gær. Við áramótin stóð gengið í 34,9 krónum á hlut og nemur fall þess nú 70,7 prósentum á þeim tíma.

Hlutabréf hækka í Evrópu
Gengi hlutabréfa hefur almennt hækkað á hlutabréfamörkuðum í Evrópu í dag, annan daginn í röð. Hækkanahrina gekk yfir fjármálaheiminn í gær eftir að bandarísk stjórnvöld tilkynntu um tímabundna yfirtöku á hálfopinberu fasteignalánasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac á sunnudag.

Bréf Eimskips sett á athugunarlista Kauphallarinnar
Hlutabréf í Eimskipafélaginu hafa verið færð á athugunarlista í Kauphöllinni. Þetta er gert í tengslum við skilyrði Kauphallarinnar fyrir töku hlutabréfa til viðskipta, vegna umtalsverðrar óvissu varðandi verðmyndun vegna hættu á ójafnræði meðal fjárfesta, líkt og segir í tilkynningu.

Olíuverðið við hundrað dali á tunnu
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur lækkað nokkuð í dag og liggur það nú í rúmum 102 dölum á tunnu. Fundur Samtaka olíuútflutningsríkja (OPEC-ríkjanna) sem haldinn verður síðar í dag skýrir lækkunina. Reiknað er með að OPEC-ríkin ákveði að halda framleiðslukvótum óbreyttum.

"Þjóðnýtingin" gladdi bandaríska fjárfesta
Gengi hlutabréfa hækkaði almennt á bandarískum fjármálamarkaði í dag í kjölfar yfirtöku ríkisins á fasteignalánasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac. Þetta er jafnframt umfangsmesta björgunaraðgerð í sögu fjármálageirans.

Glitnir með tæp níu prósent í Atorku
Glitnir keypti í dag 300 milljón hluti í Atorku Group fyrir rúma 1,4 milljarða króna. Hlutirnir voru í eigu Atorku, samkvæmt flöggun félagsins. Þetta jafngildir 8,89 prósenta hlut í félaginu.

Gengi Eimskipafélagsins féll um 16,5 prósent
Gengi hlutabréfa í Eimskipafélaginu féll um tæp 16,5 prósent undir lok viðskipta í Kauphöllinni í dag. Að öðru leyti einkenndist dagurinn af hækkun hlutabréfaverðs.

Gengi Fannie Mae og Freddie Mac hrundi
Gengi hlutabréfa í hálfopinberu fasteignalánasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac hrundi um rúm áttatíu prósent við upphaf viðskiptadagsins í Bandaríkjunum í dag. Þetta er nokkurn vegin í samræmi við væntingar eftir að tilkynnt var í gær að stjórnvöld hafi tekið yfir stjórn stjóðanna.

Stefnir í mikla hækkun vestanhafs
Allt stefnir í mikla hækkun á bandarískum hlutabréfamarkaði við upphafi viðskiptadagsins. Skýringin liggur í mikilli bjartsýni fjárfesta beggja vegna Atlantsála á yfirtöku ríkisins á hálfopinberu fasteignalánasjóðunum Fannie Mae og Freddie Mac.

Bilun í bresku kauphöllinni
Viðskipti liggja niðri í kauphöllinni í Lundúnum í Bretlandi vegna bilunar. Kauphöllin segir um tæknileg vandræði að ræða. Óvenjumikil velta með hlutabréf í dag kunni að hafa ofkeyrt kauphallarkerfið.

Spron upp um tæp 11 prósent
Gengi hlutabréfa í Spron rauk upp um 10,77 prósent í hækkanahrinu við upphaf viðskipta í Kauphöllinni í dag. Gengið stendur í 3,6 krónum á hlut, sem eru svipaðar slóðir og það stóð í við upphaf mánaðar.

Wood & Company eykur hlutdeild sína utan Tékklands
Tékkneski fjárfestingabankinn Wood & Company, sem Straum-Burðarás á helmingshlut í, jók í ágústmánuði hlutdeild sína í miðlun verðbréfa í kauphöllum utan Tékklands. Hlutdeildin hefur aldrei verið hærri í Póllandi.

Krónan styrkist eftir mikla veikingu
Gengi íslensku krónunnar hefur hækkað um 0,5 prósent á gjaldeyrismarkaði í dag og stendur gengisvísitalan í 162,8 stigum. Gengið lækkaði nokkuð í síðustu viku, þar af féll það um tvö prósent á föstudag.

Kaupþingsbréf stökkva upp í erlendri hækkanahrinu
Hlutabréf í Kaupþingi sem skráð eru á markað í Stokkhólmi í Svíþjóð hafa hækkað um 3,32 prósent það sem af er dags. Þetta er nokkuð í samræmi við þróunina á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum sem almennt einkennast af mikilli hækkun.

Vísitölur enduðu beggja vegna núllsins
Helstu hlutabréfavísitölur Bandaríkjanna enduðu beggja vegna núllsins í dag og batt þar með enda á fjögurra daga samfellt lækkunarferli á þarlendum fjármálamörkuðum.

Atvinnuleysi eykst í Bandaríkjunum
Atvinnuleysi mældist 6,1 prósent í síðasta mánuði, samkvæmt nýjustu tölum bandarísku vinnumálastofnunarinnar, sem birtar voru í dag. Þetta er 0,4 prósentustiga á milli mánaða en atvinnuleysið hefur ekki verið jafn mikið í tæp fimm ár.

Olíuverð lækkar - í samræmi við styrkingu bandaríkjadals
Heimsmarkaðsverð á hráolíu hefur lækkað lítillega í dag. Þetta er í samræmi við styrkingu á gengi bandaríkjadals gagnvart helstu myntum, þar á meðal íslensku krónunni.

Krónan fellur um tvö prósent
Gengi íslensku krónunnar hefur verið á viðstöðulausri niðurleið í morgun og nemur fall hennar nú rúmum tveimur prósentum. Gengisvísitalan stendur nú í 164,9 stigum.

Rabobank gefur út 13 milljarða krónubréf
Hollenski bankinn Rabobank gaf í dag út krónubréf til eins árs fyrir þrettán milljarða króna. Þetta er stærsta útgáfan frá því í mars, eða síðan þrenginga fór að gæta á innlendum gjaldeyrisskipamarkaði.

Krónan veikist skyndilega á hálftíma
Gengi krónunnar hefur veikst hastarlega frá því viðskipti hófust á gjaldeyrismarkaði í dag, eða um 1,67 prósent, og stendur gengisvísitalan í 164,3 stigum.

Eik banki einn á uppleið - önnur félög lækka
Gengi hlutabréfa í hinum færeyska Eik banka hefur hækkað um 0,94 prósent í Kauphöllinni í dag eftir 6,2 prósenta fall í gær. Á móti einkennist upphaf viðskiptadagsins af lækkun hlutabréfaverðs.