Lög og regla

Fréttamynd

Kveikt í bátaskýli í Hafnarfirði

Kveikt var í bátaskýli í Hafnarfirði í gærkvöldi og brann það til kaldra kola. Skýlið stóð við Hvaleyrarhæð og var tilkynnt um eldinn á áttunda tímanum. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en skýlið stóð í röð slíkra skýla og var gengið úr skugga um að eldur hefði ekki borist í þau.

Innlent
Fréttamynd

Slasaðist lítillega í bílveltu

Farþegi slasaðist lítillega þegar bíll valt á Suðurlandsvegi austan við Selfoss í gærkvöldi. Tveir voru í bílnum og var sá sem meiddist farþegi. Báðir voru í bílbelti. Að sögn lögreglu virðist sem ökumaðurinn hafi verið kominn of langt út í hægri vegkantinn og því sveigt snögglega til vinstri með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af þeim megin og hafnaði á hliðinni í skurði.

Innlent
Fréttamynd

Kominn úr öndunarvél eftir bílslys

Ungi maðurinn sem fluttur var á gjörgæsludeild eftir bílslys í Öxnadal í síðustu viku, er kominn úr öndunarvél. Hann liggur þó enn á gjörgæsludeild. Fjórir ungir karlmenn voru í bílnum sem fór út af veginum, tveir létust en hinir tveir slösuðust alvarlega.

Innlent
Fréttamynd

Vörubíll valt á hliðina í Ölfusi

Bílstjóri meiddist þegar vörubíll valt á hliðina við Nátthaga í Ölfusi í morgun. Verið var að sturta mold af bílnum þegar pallurinn seig á hliðina og bíllinni með. Ökumaðurinn kvartaði undan eymslum í hálsi og baki og eftir skoðun á heilsugæslustöðinni á Selfossi var hann fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi til nánari rannsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Sumarlöng leit að klámi í tölvum

Lögreglan í Reykjavík vinnur enn að rannsókn tveggja mála tengdum misnotkun barna og barnaklámi sem upp komu um miðjan mánuðinn. Annar maðurinn er grunaður um að hafa misnotað og myndaðp fjögur stúlkubörn, en hinn var handtekinn og leitað hjá honum í alþjóðlegum aðgerðum Europol.

Innlent
Fréttamynd

36 rán að meðaltali á ári

Að meðaltali eru framin 36 rán á Íslandi á ári. Flest rán voru framin árið 1999 en fæst árið 2002. Þetta kemur fram í úttekt sem nemi í félagsfræði við Háskóla Íslands vann fyrir ríkislögreglustjórann.

Innlent
Fréttamynd

Hass og hraðakstur

Upp komu tvö fíkniefnamál um helgina á Sauðárkróki. Lögregla fann við reglubundið eftirlit með ökumönnum, annars vegar áhöld til neyslu efna og hins vegar lítilræði af tóbaksblönduðu hassi.

Innlent
Fréttamynd

Borgin sýknuð af launakröfum

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í gær Reykjavíkurborg af kröfum heimilisfræðikennara um vangoldin laun upp á tæpar 700 þúsund krónur. Konan vísaði til samþykktar borgarráðs frá því í júní árið 1981 um að greiða bæri heimilisfræðikennurum tvær klukkustundir á viku fyrir matarinnkaup.

Innlent
Fréttamynd

Slagsmál eftir dansleik á Súðavík

Lögreglan á Ísafirði þurfti tvívegis að stöðva slagsmál eftir dansleik sem haldinn var á Súðavík í gærkvöld. Mikill fjöldi tók þátt í slagsmálum sem brutust fyrst út klukkutíma eftir dansleikinn og þegar lögreglan hélt að hún hefði róað lýðinn, hlupu menn aftur saman og héldu fjörinu áfram.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í Hafnarfirði

Eldur kviknaði í bátaskýli við Ásbraut í Hafnarfirði laust fyrir klukkan hálf átta í gærkvöldi.

Innlent
Fréttamynd

Maðurinn látinn

Ökumaður bílsins sem lenti á steinstólpa við Reykjanesbraut í morgun er látinn. Bifreiðin lenti á stólpa þar sem Reykjanesbraut liggur undir brú á Miklubraut. Maðurinn var einn á ferð á leið í suðurátt. Hann var rúmlega fertugur að aldri, búsettur í Reykjavík. Tildrög slyssins eru óljós.

Innlent
Fréttamynd

Ók á steinstólpa við Elliðaárbrú

Karlmaður um fertugt slasaðist alvarlega þegar bíll hans lenti á steinstólpa við Elliðaárbrúna í Reykjavík í morgun. Maðurinn var einn á ferð á leið í suðurátt. Bíll hans skemmdist mikið og þurfti að klippa manninn úr bílnum.

Innlent
Fréttamynd

Þrettán látnir í ár

Banaslys varð þegar reykvískur karlmaður á fimmtugsaldri keyrði á steinstólpa brúar þar sem Reykjanesbraut liggur undir Miklubraut í gærmorgun. Var hann að keyra suður eftir Reykjanesbrautinni.

Innlent
Fréttamynd

35 teknir fyrir hraðakstur

Þrjátíu og fimm ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Akureyri í gærkvöldi og nótt. Þar af voru þrjátíu og þrír teknir innanbæjar.

Innlent
Fréttamynd

Vopnað rán í Lyf og heilsu

Vopnað ráð var framið í lyfjaversluninni Lyf og heilsa við Háaleitisbraut í Reykjavík um sexleytið í gærkvöld. Tveir menn á tvítugsaldri ógnuðu starfsfólki með sprautunálum og komust á brott með tíu pakka af rítalíni og öðrum morfínskyldum efnum.

Innlent
Fréttamynd

Lyfjum stolið í Austurveri

Vopnað rán var framið í Lyfjum og heilsu í Austurveri í fyrrakvöld. Tveir menn gengu inn í apótekið og otuðu sprautunálum að starfsfólki.

Innlent
Fréttamynd

Ólæti á Akureyri

Fangageymslur voru fullar á Akureyri aðfaranótt laugardags. Mikill hasar var í bænum, töluvert um hópamyndanir og slagsmál. Nóttin var viðburðarík hjá lögreglunni, ölvun var veruleg en þó voru engin stórmál á ferð.

Innlent
Fréttamynd

Róleg nótt í borginni

Rólegt var hjá lögreglunni í Reykjavík í nótt og segjast menn þar á bæ vera stoltir af því að aðeins 92 bókanir hafi verið gerðar. Nóttin gekk þó ekki alveg stórslysalaust fyrir sig en fjórar minniháttar líkamsárásir voru gerðar í miðbænum og voru fjórir stöðvaðir fyrir ölvunarakstur. Öllu meira var að gera hjá lögreglunni á Akureyri.

Innlent
Fréttamynd

Róleg þjóðhátíð

17. júní var tiltölulega rólegur fyrir lögregluna í Reykjavík. Óvenjulítið var um skemmtanahald og þurfti lögreglan ekki að hafa nein afskipti af ölvun unglinga.

Innlent
Fréttamynd

Ökklabrotnaði í Rauðuskörðum

Björgunarsveitir frá Ólafsvík og Dalvík voru kallaðar út í dag til aðstoðar vegna göngufólks sem hafði lent í vandræðum í Rauðuskörðum Ytri Árdal. Kona í hópnum datt og öklabrotnað. Tólf björgunarsveitarmenn héldu fótgangandi á staðinn á sjötta tímanum í kvöld og var reiknað með að þeir kæmu á tíunda tímanum í kvöld með konuna í sjúkrakörfu, niður að sjúkrabíl sem flytur hana til Akureyrar.

Innlent
Fréttamynd

Parið úrskurðað í gæsluvarðhald

Erlent par, sem er talið hafa flutt tvo bílaleigubíla úr landi með Norrænu og er auk þess grunað um fjárdrátt og skjalafals, var seint í gærkvöldi úrskurðað í gæsluvarðhald fram á fimmtudag. Nauðsynlegt þótti að tryggja að fólkið færi ekki úr landi og var parið því úrskurðað í gæsluvarðhald á forsendum rannsóknarhagsmuna.

Innlent
Fréttamynd

Endaði sár á spítala

Eftirför lögreglunnar á Selfossi vegna ökumanns sem sinnti í engu stöðvunarmerkjum endaði með því að viðkomandi ók bíl sínum útaf og þurfti að flytja hann á slysadeild.

Innlent
Fréttamynd

Tuttugu teknir fyrir hraðakstur

Tuttugu voru stöðvaðir fyrir of hraðan akstur í Öxnadal milli klukkan sjö í gærkvöld og tvö í nótt. Sá sem hraðast ók mældist á 164 kílómetra hraða.

Innlent
Fréttamynd

Hraðakstur vandamál

Áberandi mikið var um hraðakstur á þjóðvegum landsins í gær og fyrradag og höfðu flest lögregluembætti við þjóðveginn nóg að gera við eftirlit.

Innlent
Fréttamynd

Nektarmyndir af stúlkubörnum

Meðal þess sem lögreglan fann í tölvu reykvísks manns sem sætir nú rannsókn vegna gruns um kynferðisofbeldi gegn fjórum stúlkubörnum, voru nektarmyndir af þeim.

Innlent
Fréttamynd

Vilja að Gill verði látinn laus

Íslendingarnir tveir sem tóku þátt í mótmælaaðgerðunum á Nordica-hótelinu ásamt Englendingnum Paul Gill telja gæsluvarðhaldsúrskurðinn yfir Gill óskiljanlegan og ranglátan. Meðferðinni á Gill verður mótmælt við dómsmálaráðuneytið klukkan tvö í dag.

Innlent
Fréttamynd

Bíll fastur undir Höfðabakkabrú

Umferðartafir hafa orðið á Vestulandsvegi undir Höfðabakkabrúnni í vestur en þar er flutningabíll fastur. Bíllinn, sem er frá fyrirtækinu BM-Vallá, var með mikið járnvirki á pallinum, þar af stóð járnsúla hátt upp í loftið og hún rakst undir brúna með þeim afleiðingum að bíllinn er fastur.

Innlent
Fréttamynd

Geymdi þýfi fyrir litla bróður

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær þrítugan mann í sjö mánaða fangelsi fyrir að taka við og geyma þýfi fyrir sex árum yngri bróður sinn. Fimm mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir í þrjú ár.

Innlent
Fréttamynd

Sameining dæmd lögleg

Sveitarstjórn Norður-Héraðs fór að lögum þegar sameining sveitarfélagsins Fellahrepps og Austur-Héraðs stóð fyrir dyrum og því hafnaði Hæstiréttur í gær kröfu átta einstaklinga sem kröfðust þess að staðfesting Félagsmálaráðuneytisins á sameiningunni væri dæmd ógild.

Innlent