Gill segist ekki atvinnumótmælandi 20. júní 2005 00:01
Paul Gill, mótmælandinn sem úrskurðaður var í gæsluvarðhald eftir að hafa slett skyri á Nordica-hóteli, neitar því að hann sé atvinnumótmælandi. Hann var látinn laus úr gæsluvarðhaldi á laugardaginn og er í farbanni til 1. júlí. Sama dag og Paul Gill var úrskurðaður í gæsluvarðhald var úrskurðurinn kærður til Hæstaréttar. Þegar Gill var úrskurðaður í gæsluvarðhald fyrir héraðsdómi neitaði hann því að vera atvinnumótmælandi. Lögmaður hans er ósáttur við þann úrskurð. Hann segir að engin gögn liggi fyrir um að hann sé atvinnumótmælandi og að mati þeirra sé sú fullyrðingi úr lausu lofti gripin. Því hafi þeim þótt mjög hæpið að gæsluvarðhaldsúrskurðurinn byggðist í og með á því atriði. Í stað gæsluvarðhaldsins var Gill úrskurðaður í farbann til 1. júlí og þarf hann að tilkynna sig hjá lögreglustjórum tvisvar á dag, á milli klukkan 10 og 11 á morgnana og aftir á milli klukkan 6 og 7 á kvöldin. Lögmaður Gill segir að það verði skoðað hvort reynt verði að fá farbanninu hnekkt. Fréttastofa Stöðvar 2 reyndi að ná tali af Paul Gill í dag en hann sagðist ekki hafa neinn áhuga á að tala við fjölmiðlamenn og skellti á. Að sögn lögmannsins var hann ekki í einangrun í varðhaldinu. Hann sé grænmetistæta og hafi ekki verið sáttur við matinn á Litla-Hrauni og hafi því orðið fegnastur þegar hann hafi fengið almennilega að borða þegar hann hafi komið út. Það hafi verið það eina sem hann hafi viljað segja um gæsluvarðhaldsvistina.
Fréttir Innlent Lög og regla Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Fleiri fréttir Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Sjá meira