Lög og regla

Fréttamynd

Vildi borga vínflösku með kveri

Rúmlega þrítugur maður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa í janúar pantað sér vínflösku sem kostaði 5.300 krónur á veitingastaðnum Kaffi Reykjavík án þess að geta greitt fyrir hana. Maðurinn taldi sig hafa samið við þjóninn um að greiða fyrir vínið með ljóðakveri en við það vildi þjónninn ekki kannast.

Innlent
Fréttamynd

Fisi lent við Litlu kaffistofuna

Lögreglunni á Selfossi barst í gærkvöld tilkynning um að svonefndu fisi, vélknúinni svifflugvél, hefði verið lent við Litlu kaffistofuna. Að sögn lögreglu mátti gera ráð fyrir að vélinni hefði verið lent þarna í neyð, en þegar lögregla kom á staðinn var vélin á bak og burt.Virtist sem flugmaðurinn hefði lent til að taka bensín.

Innlent
Fréttamynd

Annir vegna hraðaksturs

Lögreglan í Hafnarfirði hafði í nógu að snúast vegna hraðaksturs í gærkvöldi og nótt, en ellefu ökumenn voru teknir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni. Sá sem hraðast ók var á 139 kílómetra hraða en hinir óku litlu hægar. Annars var nóttin róleg hjá lögreglu víðast hvar um landið, reyndar svo róleg að lögreglan í Reykjavík hafði varla fengið símtal í alla nótt.

Innlent
Fréttamynd

Slapp ótrúlega vel í ljótu slysi

Maðurinn sem slapp ótrúlega vel eftir að vörubíll hans valt á Þjórsárdalsvegi á sunnudag hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi. Þetta er í annað skiptið á ævinni sem hann sleppur svona vel frá alvarlegu slysi.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í kjallara fjölbýlishúss

Slökkvilið höfuðborgasvæðisins var kallað út eftir að mikils reyks var vart í kjallara í fjölbýlishúsi að Háaleitisbraut um klukkan hálf fimm í gær. Eldur hafði komið upp í þvottavél og þurfti reykkafara til að komast að honum.

Innlent
Fréttamynd

Þrír handteknir á Selfossi

Þrír menn voru handteknir á Selfossi á fimmtudaginn eftir að nokkurt magn af amfetamíni, kannabisefnum og -plöntum fannst við húsleit lögreglunnar.

Innlent
Fréttamynd

Lögeglumaður lenti í árekstri

Lögeglumaður viðbeinsbrotnaði eftir að hann lenti í árekstri á bifhjóli sínu við bifreið á gatnamótum Háteygvegsvegi og Stakkahlíðar um fimmleytið í gær

Innlent
Fréttamynd

Erill hjá lögreglu í nótt

Það voru víða Evróvisjón-partý í nótt og töluvert að gera í lögregluumdæmum í kringum landið vegna hávaðaútkalla. Lögreglan í Reykjavík var kölluð nokkuð oft út vegna hávaða í heimahúsum sem víða stóð fram yfir miðnætti. Þá voru þrettán ökumenn stöðvaðir í Reykjavík grunaðir um ölvun við akstur.

Innlent
Fréttamynd

Heppinn að lifa af

Ökumaður velti bifreið sinni á Borgarhálsi í Hrútafirði í fyrrinótt. Hann var sendur talsvert lemstraður með sjúkrabíl á Heilsugæslustöðina á Hvammstanga.

Innlent
Fréttamynd

Víða ölvaðir ökumenn

Margir keyrðu fullir um helgina að sögn lögreglu víða um land. Tólf ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu í fyrrinótt.

Innlent
Fréttamynd

Á sokkunum að næsta bæ

Ökumaður sem grunaður er um ölvunarakstur velti bifreið sinni á Upphéraðsvegi nálægt Egilsstöðum um níuleytið í gærmorgun. Maðurinn rotaðist og meiddist á fæti, en hafðiekki önnur úrræði þegar hann rankaði við sér en að ganga á sokkaleistunum um þrjá til fjóra kílómetra að Hreiðarsstöðum þar sem hann fékk aðhlynningu.

Innlent
Fréttamynd

Gæsluvarðhald vegna bílainnbrota

Kona og karlmaður voru úrskurðuðí gæsluvarðhald í eina viku vegna innbrota í bíla í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Parið er grunað um að hafa brotist inn í um 30 bíla upp á síðkastið. Þau voru staðin að verki við Rauðavatn í gær og í bifreið þeirra fundust 15 til 20 geislaspilarar og útvarpstæki úr bílum.

Innlent
Fréttamynd

Ákærður fyrir árás á lögreglumenn

Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur tæplega fertugum manni fyrir eignaspjöll, hótanir, brot gegn valdstjórninni og sérstaklega hættulega líkamsárás á heimili sínu 6. júní í fyrra. Þegar lögregla hafði afskipti af hinum ákærða í kjölfar atvika þann dag lagði hann einu sinni með hnífi til eins lögreglumanns og tvívegis til annars lögreglumanns.

Innlent
Fréttamynd

Dómstólar eiga síðasta orðið

Ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins segir að dómstólar eigi síðasta orðið í ættleiðingarmáli Lilju Sæmundsdóttur. Hann segir réttindi barnsins, öryggi og hamingju í fyrirrúmi í ákvarðanatöku ráðuneytisins hverju sinni. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Karlar fá margfalt fleiri punkta

Karlar fá fleiri refsipunkta og valda fleiri alvarlegum slysum en konur. Þó telja þeir sig mun betri ökumenn.Nýleg rannsókn segir þó engan mun á kynjunum þegar kemur að ökuleikni.

Innlent
Fréttamynd

Rannsókn stendur enn yfir

Rannsókn stendur enn yfir á máli þriggja ungra kínverskra stúlkna sem voru stöðvaðar við komu til landsins ásamt kínverskum manni og fylgdarmanni frá Singapúr. Að sögn Jóhanns R. Benediktssonar, sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli, eru öll skref í málinu tekin í samráði við barnaverndaryfirvöld en í ljós kom við yfirheyrslur að stúlkurnar væru undir lögaldri.

Innlent
Fréttamynd

Kviknaði tvisvar í á sama stað

Útkall barst til slökkviliðsins í Reykjavík klukkan 16:36 vegna bruna á horni Njálsgötu og Rauðarárstígs.Íbúar að Njálsgötu 112 létu vita af eldinum. Skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöldi var svo aftur tilkynnt um eld á sama stað.

Innlent
Fréttamynd

Fjárdráttarmál hjá söfnuði í Ósló

Tveir starfsmenn íslenska safnaðarins í Ósló hafa sagt af sér vegna fjárdráttar sem afleysingastarfsmaður hans varð uppvís að. Maðurinn segir ástæðu fjádráttarins vera spilafíkn, að því er Stöð tvö greindi frá.

Innlent
Fréttamynd

Lögregla leitar innbrotsþjófa

Lögreglan leitar nú þess eða þeirra sem brutust inn í apótekið á Hellu í nótt. Rúða var brotin í apótekinu og skemmdir unnar þar. Ekki er ljóst hvort einhverju var stolið en þó er víst að það hafi ekki verið mikið.

Innlent
Fréttamynd

GT verktakar sýknaðir

Héraðsdómur Austurlands sýknaði í gær GT verktaka ehf. af ákæru fyrir brot gegn lögum um atvinnuréttindi útlendinga og lög um útlendinga. Var það niðurstaða dómsins að Lettar sem fyrirtækið réð til að sinna störfum við fólksflutninga á Kárahnjúkasvæðinu hefðu ekki þurft atvinnuleyfi hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Eldur í húsi við Rauðarárstíg

Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út vegna elds í húsi á horni Rauðarárstígs og Njálsgötu. Ekki er vitað hvort fólk sé í húsinu. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu logar eldur út um þakglugga hússins.

Innlent
Fréttamynd

Dró sér fé af kirkjureikningum

Fyrrverandi afleysingastarfsmaður íslensku kirkjunnar í Ósló hefur viðurkennt að hafa dregið sér umtalsvert fé af reikningum safnaðarins. Hann segir ástæðuna vera spilafíkn. Tveir starfsmenn safnaðarins hafa sagt af sér vegna málsins.

Innlent
Fréttamynd

Æðra stjórnvald stjórni ekki

Yfirvöld eiga ekki að skipta sér af ættleiðingarferli ef barnaverndarnefnd hefur skorið úr um hvort einhver sé hæfur til að ættleiða eða ekki. Þetta segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, um mál Lilju Sæmundsdóttur sem hefur verið hafnað um að fá að ættleiða vegna þess að hún þykir of feit.

Innlent
Fréttamynd

Enginn sagður í húsinu

Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrir stundu eftir að tilkynnt var um eld í þakíbúð skammt frá gatnamótum Rauðarárstígs og Njálsgötu. Að sögn slökkviliðsins logar töluverður eldur út um glugga íbúðarinnar. Enginn er sagður vera í húsinu.

Innlent
Fréttamynd

Vélarvana við Garðskaga

Vélarvana snekkja var dregin til hafnar í Sandgerði í gærkvöldi. Báturinn er hollenskur, um 250 og nefnist Daphne, en hann var að sögn tilkynningaskyldunnar á leið til Grænlands og þaðan til Bandaríkjanna.

Innlent
Fréttamynd

Tveimur mönnum bjargað

Mannbjörg varð þegar Hildur ÞH-38 sökk á Þistilfirði um 7 sjómílur austsuðaustur af Raufarhöfn. Tveir skipverjar höfðu komist í björgunarbát og var síðan bjargað um borð í björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Gunnbjörgu frá Raufarhöfn. Vaktstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning frá flugstjórn um að flugvél hefði tilkynnt um neyðarsendingar kl: 12:43.

Innlent
Fréttamynd

Neitað um ættleiðingu vegna offitu

Kona, sem dómsmálaráðuneytið neitaði um að ættleiða barn vegna offitu, hefur höfðað mál gegn íslenska ríkinu. Málið, sem var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag, er það fyrsta sinnar tegundar hér á landi.

Innlent
Fréttamynd

Stuðningsfjölskylda tilnefnd strax

Lilja Sæmundsdóttir, einhleyp kona sem dómsmálaráðuneytið bannaði að ættleiða barn, kvaðst fyrir dómi í gær hafa tilnefnt stuðningsfjölskyldu við sig og barn sitt í því tilfelli að eitthvað kæmi upp á. Þetta hafi hún gert strax í upphafi umsóknarferlisins, líkt og einhleypu fólki sé skylt að gera.

Innlent
Fréttamynd

Skattsvik tengd Lífsstíl

Fimm menn, þar af fjórir sem hlotið hafa dóma í svokölluðu Landssímamáli, báru af sér sakir fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þeir eru sakaðir um að hafa svikið undan skatti í rekstri fjölda fyrirtækja sem rekin voru undir hatti Lífsstíls ehf.

Innlent
Fréttamynd

Ragnar átelur dómsmálaráðuneytið

"Það viðhorf gagnvart umbjóðanda mínum einkennir málsmeðferð dómsmálaráðuneytisins, að hún sé með einhverjum hætti öðruvísi en annað fólk," sagði Ragnar Aðalsteinsson lögmaður konu sem synjað hefur verið um að ættleiða barn frá Kína.

Innlent