Fótbolti
228 229 230 231 232 233 234 235 236 … 334 ›
Ian Jeffs hættir með ÍBV Ian Jeffs er hættur sem þjálfari hjá ÍBV. Hann var aðstoðarþjálfari karlaliðsins, ásamt því að stýra kvennaliðinu seinni part sumars eftir að Andri Ólafsson hætti með liðið. Fótbolti 23.9.2021 22:31
Alberti og félögum mistókst að lyfta sér upp úr fallsæti Albert Guðmundsson og félagar hans í AZ Alkmaar heimsóttu FC Twente í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Byrjunin á tímabilinu hefur ekki verið upp á marga fiska hjá AZ Alkmaar og liðið mátti þola 2-1 tap í kvöld. Fótbolti 23.9.2021 20:55
Tammy Abraham skaut Roma aftur á sigurbraut Roma vann 1-0 sigur þegar að liðið tók á móti Udinese í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Lærisveinar José Mourinho eru nú með fjóra sigra í fyrstu fimm leikjunum eftir tap í síðustu umferð. Fótbolti 23.9.2021 20:41
ÍBV yfirgefur Lengjudeildina með sigri Grótta tók á móti ÍBV í lokaumferð Lengjudeildar karla í dag. Sigurður Arnar Magnússon tryggði Eyjamönnum 3-2 sigur þegar rúmar fimm mínútur voru til leiksloka eftir að liðið hafði lent 2-1 undir. Íslenski boltinn 23.9.2021 19:30
Jón Dagur skoraði þegar AGF fór áfram í danska bikarnum Jón Dagur Þorsteinsson og félagar hans í AGF heimsóttu C-deildarliðið BK Frem í 32-liða úrslitum danska bikarsins í dag. Jón Dagur skoraði fyrsta mark AGF þegar að liðið vann öruggan 3-0 sigur. Þá var Ágúst Eðvald Hlynsson í byrjunarliði Horsens sem sló Silkeborg úr leik í Íslendingaslag með 3-2 sigri. Fótbolti 23.9.2021 17:51
Vill halda fund með samfélagsmiðlafyrirtækjum til að berjast gegn kynþáttaníð Romelu Lukaku, framherji Chelsea og belgíska landsliðsins, segir að leikmenn geti gert mun meira í baráttunni gegn kynþáttafordómum en bara að taka hné fyrir leiki. Hann vill að samfélagsmiðlafyrirtæki og leikmenn hittist og ræði hvað sé hægt að gera. Fótbolti 23.9.2021 17:33
Dæmdur í 48 leikja bann í austurríska fótboltanum Rússneski knattspyrnumaðurinn Raschid Arsanukaev spilar ekki mikið skipulagðan fótbolta næstu árin. Fótbolti 23.9.2021 16:01
Varaforsetinn útdeildi seðlum í klefanum Knattspyrnusamband Norður- og Mið-Ameríku, Concacaf, hefur hafið rannsókn vegna myndbands sem sýnir hinn sextuga Ronnie Brunswijk útdeila seðlum eftir að hafa spilað leik í keppni á vegum sambandsins. Fótbolti 23.9.2021 13:01
Guðni kannast við nafnlaust bréf en enga formlega ábendingu Guðni Bergsson, fyrrverandi formaður KSÍ, hafnar því að honum hafi borist formleg ábending um að tveir landsliðsmenn væru sakaðir um kynferðisofbeldi. Hann hafi þó séð frásögn af málinu sem deilt var á samfélagsmiðlum. Innlent 23.9.2021 12:33
Ronaldo toppar Messi með stjarnfræðilegum tekjum Cristiano Ronaldo kemur til með að þéna um það bil 16,2 milljarða króna, fyrir skatt, á sinni fyrstu leiktíð eftir endurkomuna til Manchester United. Fótbolti 23.9.2021 09:31
Segir Kolbein verða að „gangast við því að hann sé gerandi“ og hjálpa öðrum Ef að Kolbeinn Sigþórsson á að spila aftur fyrir lið IFK Gautaborgar krefst það afar mikillar vinnu af hálfu bæði hans og félagsins, svo að fólki geti liðið vel með að hann njóti þeirra forrétinda. Sumum mun ekki líða vel með það. Fótbolti 23.9.2021 08:00
Segir að Zlatan hafi næstum brotið á sér olnbogann Manchester United og Burnley skildu jöfn 0-0 í ensku úrvalsdeildinni þann 29. október 2016. Tom Heaton, markvörður Burnley þann daginn, hefur nú staðfest að hann hafi næstum brotið á sér olnbogann er hann varði skot Zlatan Ibrahimović í leiknum. Enski boltinn 23.9.2021 07:31
Sextugur fimmtíu barna faðir og forseti félagsins ákvað að stilla sér upp í framlínunni Ronnie Brunswijk spilaði 54 mínútur í 6-0 tapi Inter Moengotapoe gegn Olimpia frá Hondúras í 16-liða úrslitum CONCACAF-keppninnar. Brunswijk hefur ekki verið leikmaður liðsins í meira en áratug en lét það ekki stöðva sig. Hann er forseti félagsins og getur greinilega gert það sem honum sýnist. Fótbolti 23.9.2021 07:00
Ósáttur með slaka byrjun og sagði sína menn hafa átt að fá vítaspyrnu Ole Gunnar Solskjær var ekki sáttur með slaka byrjun sinna manna er Manchester United tapaði 0-1 gegn West Ham United á heimavelli í enska deildarbikarnum í kvöld. Enski boltinn 22.9.2021 22:31
Asensio með þrennu í stórsigri Real Real Madríd vann 6-1 stórsigur á Mallorca í La Liga, spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta, í kvöld. Sigurinn lyfti Real upp á topp deildarinnar. Fótbolti 22.9.2021 22:00
Þægilegt hjá Arsenal | Búið að draga í sextán liða úrslit Öllum sex leikjum kvöldsins í 32-liða úrslitum enska deildarbikarsins er nú lokið. Þá er búið að draga í 16-liða úrslit keppninnar, Arsenal verður þar ásamt Manchester City og fleiri liðum. Enski boltinn 22.9.2021 21:31
Milan jafnt Inter á toppnum eftir sigur á Venezia AC Milan vann 2-0 sigur á Venezia í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni, í kvöld. Bjarki Steinn Bjarkason sat allan tímann á varamannabekk Venezia. Fótbolti 22.9.2021 21:15
Tottenham henti frá sér tveggja marka forystu en slapp fyrir horn Tottenham Hotspur er komið í 16-liða úrslit enska deildarbikarsins eftir sigur í vítaspyrnukeppni gegn Wolves. Leiknum lauk með 2-2 jafntefli og því þurfti vítaspyrnur til að útkljá viðureignina. Enski boltinn 22.9.2021 18:15
Chelsea áfram eftir vítaspyrnukeppni Evrópumeistarar Chelsea eru komnir áfram í 16-liða úrslit enska deildarbikarsins eftir sigur á Aston Villa í vítaspyrnukeppni. Enski boltinn 22.9.2021 18:15
Kólumbíumaðurinn farinn til Katar James Rodríguez hefur yfirgefið enska knattspyrnufélagið Everton og mun nú leika listir sínar með Al Rayyan í Katar. Hvorki kemur fram hvað kappinn kostaði né hversu langan samning hann gerir í Katar. Fótbolti 22.9.2021 19:01
Dramatísk endurkoma er Juventus vann loks leik Ítalska stórliðið Juventus er loks komið á blað í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta, eftir 3-2 útisigur á Spezia. Fótbolti 22.9.2021 18:36
Andri Fannar og Ísak Bergmann byrjuðu báðir er FCK hrundi út úr bikarnum | Þægilegt hjá Elíasi Rafni Íslendingalið FC Kaupmannahöfn tapaði einkar óvænt gegn Nykobing í danska bikarnum í fótbolta í kvöld, lokatölur 3-0. Elías Rafn Ólafsson stóð vaktina í marki Midtjylland sem fór örugglega áfram. Fótbolti 22.9.2021 18:11
Vill afsökunarbeiðni frá KSÍ og íhugar bótamál Lögmaður Kolbeins Sigþórssonar vill að Knattspyrnusamband Íslands biðjist afsökunar á því að hafa tekið leikmanninn úr leikmannahópi landsliðsins undir lok ágústmánaðar. Þá segir lögmaðurinn að sambandið gæti þurft að greiða miska- og fjártjónsbætur. Fótbolti 22.9.2021 17:24
Vanda býður sig fram til formanns KSÍ Vanda Sigurgeirsdóttir, lektor í tómstunda- og félagsmálafræði við mennta-vísindasvið Háskóla Íslands og knattspyrnuþjálfari, hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Knattspyrnusambands Íslands. Hún greinir frá ákvörðun sinni á Facebook. Sport 22.9.2021 10:13
Fundirnir sem leiddu til falls Guðna og stjórnar KSÍ Guðni Bergsson, fyrrverandi formaður KSÍ, lagði til að hann myndi víkja sæti tímabundið en stjórn sambandsins samþykkti ekki þá tillögu. Í kjölfarið ákvað Guðni að segja af sér. Fótbolti 22.9.2021 10:05
Lewandowski hlaut gullskóinn Pólski framherjinn, Robert Lewandowski, hlaut í gær gullskó Evrópu fyrir seinasta tímabil. Gullskóinn hlýtur markahæsti leikmaður álfunnar, en Lewandowski skoraði 41 mark í þýsku úrvalsdeildinni á seinasta tímabili. Fótbolti 22.9.2021 07:00
Þjálfari Juventus segir að liðið sé á leið í sex stiga fallbaráttuslag Juventus heimsækir Spezia í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu annað kvöld. Þjálfari liðsins, Massimilian Allegri, segir að leikurinn sé sex stiga fallbaráttuslagur. Fótbolti 21.9.2021 23:30
Messi var tekinn af velli vegna meiðsla og gæti misst af leiknum gegn City Mauricio Pochettino, þjálfari Paris Saint-Germain, hefur upplýst stuðningsmenn félagsins um það að Lionel Messi hafi verið tekinn af velli í leiknum gegn Lyon á sunnudag vegna hnjámeiðsla. Fótbolti 21.9.2021 23:01
Ungverjar leika tvo leiki fyrir luktum dyrum Ungverska landsliðið í knatttspyrnu mun þurfa að spila tvo leiki fyrir luktum dyrum eftir að leikmenn enska landsliðsins urðu fyrir kynþáttafordómum af hálfu stuðningsmanna Ungverja í byrjun mánaðar. Fótbolti 21.9.2021 22:30
KSÍ vill að nefnd skoði viðbrögð sambandsins vegna kynferðisofbeldismála Stjórn Knattspyrnusambands Íslands hefur beðið Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands um að stofnuð verði nefnd sem gera eigi úttekt á viðbrögðum og málsmeðferð KSÍ vegna kynferðisofbeldismála sem tengst hafa leikmönnum í landsliðum Íslands. Fótbolti 21.9.2021 22:06