Körfubolti

Fréttamynd

Keflvíkingar töpuðu í Sviss

Keflavík beið lægri hlut gegn svissneska liðinu Olympic Fribourg, 103-95, í fyrri viðureign liðana í fyrstu umferð úrslitakeppni Evrópubikarsins í körfuknattleik, en staðan í hálfleik var 54-47, heimamönnum í vil. Möguleikar Keflvíkinga verða að teljast góðir fyrir seinni leikinn sem fram fer eftir viku.

Sport
Fréttamynd

Phoenix á siglingu

Phoenix vann einn eina ferðina,  en í gærkvöldi var Miami fórnarlambið og úrslitin 122-107. Amare Stoudamire skoraði 34 stig fyrir sigurliðið og Shawn Marion 26. Shaquille O´Neal og Dwane Wade skoruðu samtals 57 stig fyrir Miami, Shaq 34 og Wade 23.

Sport
Fréttamynd

Jefferson meiddur út tímabilið

Lið New Jersey Nets í NBA-körfuboltanum varð fyrir áfalli í leik gegn núverandi meistara, Detroit Pistons, þegar Richard Jefferson, stigahæsti maður liðsins, meiddist á úlnlið.

Sport
Fréttamynd

Haukastúlkur til Keflavíkur

Tveir leikir eru í 1. deild kvenna í körfubolta í kvöld. Keflavík og Haukar mætast í Keflavík og KR og ÍS takast á í Vesturbænum. Leikir kvöldsins hefjast klukkan 19.15.

Sport
Fréttamynd

Keflavík taplausar á toppnum

Keflavík er enn taplaust og á toppi úrvalsdeildar kvenna í körfubolta eftir sigur á Haukum í kvöld, 100-76. Á sama tíma tapaði KR fyrir ÍS 49-57 og eru Vesturbæjarstúlkur enn án stiga eftir 12 umferðir.

Sport
Fréttamynd

Guðlaugur hættur hjá Grindavík

Guðlaugur Eyjólfsson, körfuknattleiksmaður úr Grindavík, er hættur að leika með liðinu. Þetta er töluvert áfall fyrir liðið sem ekki hefur gengið vel í deildinni og var slegið út úr bikarnum um helgina.

Sport
Fréttamynd

Lakers skellti Minnesota

Fimm leikir voru í NBA-deildinni í körfubolta í gærkvöldi. Los Angeles Lakers skellti Minnesota Timberwolves á útivelli 105-96. Þetta var sjötta tap Minnesota í síðustu sjö leikjum. Kobe Bryant skoraði 31 stig fyrir Lakers.

Sport
Fréttamynd

Karfan: Dregið í undanúrslitin

Dregið var til undanúrslita í bikarkeppni KKÍ & Lýsingar í dag. Fyrstu deildarlið Breiðabliks fær Njarðvíkinga í heimsókn í Smárann og Hamar/Selfoss mætir Fjölni fyrir austan. Í kvennaflokki leika bikarmeistarar Keflavíkur gegn Haukum á Ásvöllum og 2. deildarlið Laugdæla fær Grindavík í heimsókn.

Sport
Fréttamynd

Phoenix burstaði Indiana

Phoenix Suns burstaði Indiana Pacers 124-89 í NBA-deildinni í körfuknattleik í gærkvöldi. Þetta var 30. sigur Phoenix í vetur en liðið hefur aðeins tapað fjórum leikjum.

Sport
Fréttamynd

Njarðvík lagði Keflavík

Njarðvík lagði bikarmeistara Keflavíkur 88-85 í átta liða úrslitum bikarkeppni KKÍ í gærkvöldi. Leikurinn var æsispennandi og fór fram á heimavelli bikarmeistarana. Anthony Lackey skoraði 30 stig og Brenton Birmingham 20 fyrir Njarðvíkinga.

Sport
Fréttamynd

Fyrrum þjálfari reiðist McGrady

Johnny Davis, sem þjálfaði Orlando Magic í NBA-körfuboltanum um nokkurra ára skeið, er ekki sáttur við ummæli Tracy McGrady sem féllu á dögunum.

Sport
Fréttamynd

Kobe-málið fer fram í Denver

Konan sem kærði Kobe Bryant hjá Los Angeles Lakers í NBA-körfuboltanum fyrir nauðgun mun ekki höfða einkamál á hendur Bryant í Kaliforníu.

Sport
Fréttamynd

Reshea Bristol á heimleið

Reshea Bristol, leikmaður Keflvíkinga í meistaraflokki kvenna í körfuknattleik, heldur af landi brott á morgun og leikur ekki meira með Keflavík í vetur.

Sport
Fréttamynd

Guðlaugur hættur hjá Grindavík

Körfuboltalið Grindavíkur varð fyrir enn einu áfallinu þegar stórskyttan Guðlaugur Eyjólfsson tilkynnti í gær að hann væri hættur að leika með liðinu. Brotthvaf hans kemur í kjölfar þess að Grindavík ákvað að bæta við þriðja Bandaríkjamanninum eftir að Darrel Lewis fékk íslenskan ríkisborgararétt.

Sport
Fréttamynd

Kobe sýnir nýjar hliðar

Körfuboltastjarnan Kobe Bryant, sem leikur með Los Angeles Lakers, í NBA-deildinni, hefur átt undir högg að sækja að undanförnu vegna framkomu sinnar utan vallar. Hann hefur lent upp á kant við marga leikmenn í deildinni en hann sýndi á föstudaginn að honum er ekki alls varnað.

Sport
Fréttamynd

Keflavík mætir Njarðvík í kvöld

Erkifjendurnir í Keflavík og Njarðvík mætast í Keflavík í kvöld í átta liða úrslitum Bikarkeppni KKÍ. Þetta er stórleikur umferðarinnar en liðin hafa lengi eldað grátt silfur saman.

Sport
Fréttamynd

Hamilton með vafasamt met í NBA

Richard Hamilton setti vafasamt met í leik Detroit Pistons og Memphis Grizzlies þar sem núverandi NBA-meistarinn mátti þola tap, 101-79.

Sport
Fréttamynd

Áfall fyrir Snæfell

 Lýður Vignisson, leikmaður Snæfells, mun ekki leika meira með liðinu það sem eftir lifir tímabils.

Sport
Fréttamynd

Kobe-treyjan í 90. sæti

Sala á treyjum leikmanna í NBA hefur ávallt gefið vel af sér fyrir deildina. Það á hins vegar ekki við um treyjuna hans Kobe Bryant þessa daganna sem datt út af topp 50 listanum og náði meira að segja þeim vafasama árangri að komast í 90. sæti.

Sport
Fréttamynd

Tapleikjahrina Magic á enda

Orlando Magic batt enda á eigin ófarir með því að vinna Seattle Supersonics, 105-87, í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt.

Sport
Fréttamynd

Spenna í körfunni

Heil umferð var í kvöld í Intersport deildinni í körfuknattleik. Í keflavík tóku heimamenn á móti Tindastól og sigraði örugglega 97-81. Skallagrímsmenn gerðu góða ferð í Seljaskóla og sigruðu IR-inga 89-69

Sport
Fréttamynd

Keflavíkurstúlkur enn taplausar

Tveir leikir fóru fram í úrvaldsdeild kvenna í körfuknattleik í kvöld. Keflavík heldur ennþá öruggri forristu á Grindavík, en bæði lið sigruðu þó í kvöld. Keflavíkurstúlkur sigruðu nágranna sína í Njarðvík 74-51 í Njarðvík og Grindavík sigraði KR, sem enn er án stiga, 77-63 í Grindavík.

Sport
Fréttamynd

Sigurganga Heat á enda

Ray Allen og félagar í Seattle Supersonics bundu enda á 14 leikja sigurgöngu Miami Heat í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt, 98-96. Allen fór fyrir sínum mönnum og skoraði 35 stig.

Sport
Fréttamynd

Grímuball með LeBron James

Gríman, sem LeBron James lék með til að verja áverka sem hann hlaut í leik gegn Houston, kom ekki í veg fyrir góða frammistöðu kappans í leik Cleveland Cavaliers gegn Charlotte Bobcats í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt.

Sport
Fréttamynd

Eigendaskipti hjá Cleveland

Nýstirnið LeBron James skoraði 26 fyrir Cleveland sem sigraði Charlotte Bobcats 94-83 í NBA-deildinni í nótt. James lék með sérsmíðaða andlitsgrímu þar sem hann kinnbeinsbrotnaði í leik fyrir viku. Þá urðu eigandaskipti hjá Cleveland skömmu fyrir leik þegar auðkýfingurinn Dan Gilbert keypti félagið og heimavöll þess af Gordon Gund fyrir um 23 milljarða króna.

Sport
Fréttamynd

Manciel kominn til baka

Bandaríkjamaðurinn Michael Manciel, sem lék með Haukum á síðasta tímabili í Intersportdeildinni í körfubolta, er genginn til liðs við félagið á nýjan leik og mun spila með því til loka tímabilsins. Manciel leysir landa sinn Damon Flint af hólmi en Flint spilaði tvo leiki með Haukum fyrir jól og þótti ekki standa undir væntingum.

Sport
Fréttamynd

Stoudemire með 50 stig

Amaré Stoudemire setti persónlegt met þegar hann skoraði 50 stig í stórsigri Phoenix á Portland 117-84. Phoenix er með bestan árangur í deildinni með 26 sigurleiki en aðeins fjögur töp.

Sport
Fréttamynd

Cleveland Cavaliers selt

Dan nokkur Gilbert hefur fest kaup á NBA-liðinu Cleveland Cavaliers. Gilbert, sem er upphafsmaður veðréttindafyrirtækisins Quicken Loans, keypti Cavaliers af bræðrunum Gordon og George Gund fyrir rúmlega 23 milljarða íslenskra króna.

Sport
Fréttamynd

14. sigurleikur Miami í röð

Miami Heat vann fjórtánda leik sinn í röð, sem er félagsmet í NBA-deildinni í körfubolta, í gærkvöldi. Miami skellti nýliðum Charlotte Bobcats 113-90. Dwyane Wade skoraði 26 stig og átti níu stoðsendingar. Shaquille O´Neal skoraði 16 stig. Miami er með bestan árangur í austurdeildinni með 25 sigurleiki en aðeins sjö tapleiki.

Sport
Fréttamynd

McGrady skoraði 34 stig

Tracy McGrady skoraði 34 stig þegar lið hans Houston Rockets bar sigurorð af Cleveland 98-87 í NBA deildinni í körfubolta í gærkvöldi. Chauncey Billups skoraði 32 stig fyrir meistara Detroit Pistons í 107-105 sigri á Washington. Billups skoraði sigurkörfu leiksins þegar 0,7 sekúndur voru eftir.

Sport