Ástin á götunni Valsstúlkur lögðu Noregsmeistara Íslandsmeistarar Vals í knattspyrnu lögðu Noregsmeistarana í Röa að velli 4-1 í fyrstu umferð Evrópukeppni félagsliða en leikurinn fór fram í Finnlandi. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk og þær Dóra María Lárusdóttir og Guðný Óðinsdóttir sitt markið hvor. Valur mætir finnska liðinu FC United á morgun en Finnarnir sigruðu Pärnu frá Eistlandi 2-0. Sport 13.10.2005 19:39 Anelka ekki til Newcastle Nicolas Anelka mun ekki ganga í raðir Newcastle þetta fullyrti Freddi Shepherd stjónarformaður félagsins, en tyrkneska liðið Fenerbache ætlar ekki að selja Anelka. Sheppard hefur hins vegar fullvissað stuðningsmenn Newcastle að liðið muni fá til sín nýja leikmenn áður en langt um líður. Sport 13.10.2005 19:39 Toshack niðurlægir Savege John Toshack hefur ákveðið að velja ekki Robbie Savage, leikmann Blackburn, í landslið Wales. Savage hætti að gefa kost á sér á síðasta ári en ákvað í síðasta mánuði að snúa aftur í landsliðið. Toshack, þjálfari hefur hins vegar lítinn áhuga á kröftum Savage og valdi marga neðri deildarleikmenn í hans stað. Sport 13.10.2005 19:39 Upprúllun í Krikanum FH-ingar eru að bursta Grindvíkinga 4-0 í hálfleik í Landsbankadeild karla. Allan Borgvardt hefur gert tvö, Tryggvi Guðmundsson og Ásgeir Ásgeirsson eitt hvor. Sport 13.10.2005 19:40 Sigur hjá Ólafi Inga og félögum Ólafur Ingi Skúlason og félagar í Brentford, í ensku C deildinni sigurðu Chesterfield 3-1 í kvöld á heimavelli. Ólafur Ingi byrjaði leikinn en var skipt út af á 38. mínútu. Sport 13.10.2005 19:40 Landsliðshópur Suður Afríku Stuart Baxter, landsliðsþjálfari Suður-Afríku, hefur tilkynnt leikmannahópinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Íslandi sem fram fer á Laugardagsvelli næst komandi miðvikudag. Sport 13.10.2005 19:39 Ferguson viðurkennir rifrildi Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United hefur viðurkennt að hafa lennt í rifrildi við Roy Keane fyrirliða liðsins í æfingabúðum í Portúgal fyrr í sumar. Ferguson, sem er skoskur, segir að rifrildið hafi ekki verið alvarlegt en óskar sér samt að hann hefði fengið pund fyrir hvert skipti sem hann hafi rifist við Keane, en þá væri hann ríkur maður í dag. Sport 13.10.2005 19:39 Nisterlrooy mun snúa aftur Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United segir að í ár muni Ruud van Nistelrooy snúa aftur til fyrra forms eftir erfitt ár í fyrra, þar sem hann var mikið meiddur og fullyrðir að sá hollenski muni skjóta United á toppinn á ný. Sport 13.10.2005 19:39 Yfirlýsing frá Val Yfirlýsing frá knattspyrndeild Vals..
317 318 319 320 321 322 323 324 325 … 334 ›
Valsstúlkur lögðu Noregsmeistara Íslandsmeistarar Vals í knattspyrnu lögðu Noregsmeistarana í Röa að velli 4-1 í fyrstu umferð Evrópukeppni félagsliða en leikurinn fór fram í Finnlandi. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði tvö mörk og þær Dóra María Lárusdóttir og Guðný Óðinsdóttir sitt markið hvor. Valur mætir finnska liðinu FC United á morgun en Finnarnir sigruðu Pärnu frá Eistlandi 2-0. Sport 13.10.2005 19:39
Anelka ekki til Newcastle Nicolas Anelka mun ekki ganga í raðir Newcastle þetta fullyrti Freddi Shepherd stjónarformaður félagsins, en tyrkneska liðið Fenerbache ætlar ekki að selja Anelka. Sheppard hefur hins vegar fullvissað stuðningsmenn Newcastle að liðið muni fá til sín nýja leikmenn áður en langt um líður. Sport 13.10.2005 19:39
Toshack niðurlægir Savege John Toshack hefur ákveðið að velja ekki Robbie Savage, leikmann Blackburn, í landslið Wales. Savage hætti að gefa kost á sér á síðasta ári en ákvað í síðasta mánuði að snúa aftur í landsliðið. Toshack, þjálfari hefur hins vegar lítinn áhuga á kröftum Savage og valdi marga neðri deildarleikmenn í hans stað. Sport 13.10.2005 19:39
Upprúllun í Krikanum FH-ingar eru að bursta Grindvíkinga 4-0 í hálfleik í Landsbankadeild karla. Allan Borgvardt hefur gert tvö, Tryggvi Guðmundsson og Ásgeir Ásgeirsson eitt hvor. Sport 13.10.2005 19:40
Sigur hjá Ólafi Inga og félögum Ólafur Ingi Skúlason og félagar í Brentford, í ensku C deildinni sigurðu Chesterfield 3-1 í kvöld á heimavelli. Ólafur Ingi byrjaði leikinn en var skipt út af á 38. mínútu. Sport 13.10.2005 19:40
Landsliðshópur Suður Afríku Stuart Baxter, landsliðsþjálfari Suður-Afríku, hefur tilkynnt leikmannahópinn fyrir vináttulandsleikinn gegn Íslandi sem fram fer á Laugardagsvelli næst komandi miðvikudag. Sport 13.10.2005 19:39
Ferguson viðurkennir rifrildi Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United hefur viðurkennt að hafa lennt í rifrildi við Roy Keane fyrirliða liðsins í æfingabúðum í Portúgal fyrr í sumar. Ferguson, sem er skoskur, segir að rifrildið hafi ekki verið alvarlegt en óskar sér samt að hann hefði fengið pund fyrir hvert skipti sem hann hafi rifist við Keane, en þá væri hann ríkur maður í dag. Sport 13.10.2005 19:39
Nisterlrooy mun snúa aftur Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United segir að í ár muni Ruud van Nistelrooy snúa aftur til fyrra forms eftir erfitt ár í fyrra, þar sem hann var mikið meiddur og fullyrðir að sá hollenski muni skjóta United á toppinn á ný. Sport 13.10.2005 19:39
Shearer og Parker meiddir Alan Shearer, fyrirliði Newcasstle og Scott Parker miðjumaðurinn sem Newcastle fékk frá Chelsea verða ekki með liðinu gegn Arsenal á Highbury í fyrsta leik liðsins í ensku úrvalsdeildinni sem verður á sunnudag. Þá á Shay Given, markvörður liðsins við nárameiðsli að stríða og alls óvíst hvort hann leiki með gegn Arsenal. Sport 13.10.2005 19:39
Jóhann til reynslu hjá AGF Á heimasíðu AGF í dag er greint frá því að Jóhann B. Guðmundsson knattspyrnumaður í Örgyte í Gautaborg er þessa dagana til reynslu hjá danska félaginu AGF í Árósum og það ræðst um næstu helgi, hvort honum verði boðinn samningur. Sport 13.10.2005 19:39
Ferdinand segist ekki gráðugur Varnarmaðurinn Rio Ferdinand hjá Manchester United, segir að það hafi ekki verið græðgi sem tafði undirritun nýja samnings hans í gær og blæs á sögusagnir um að hann hafi verið að bíða eftir að United samþykkti að borga honum 120.000 pund í vikulaun. Sport 13.10.2005 19:39
Sannleikanum hagrætt að mati Fram Í yfirlýsingu frá Fram segir að frjálslega sé farið með sannleikann í tengslum við félagaskipti Bo Henriksen frá Val til Fram. Sport 13.10.2005 19:39
Sigur hjá Árna Gauti og félögum Árni Gautur Arason og félagar í norska liðinu Välerenga sigruðu Club Brugge frá Belgíu 1-0 í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Manchester United sigraði Debrechen frá Ungveralandi 3-0 með mörkum frá Wayne Rooney, Ruud van Nistelrooy og Ronaldo. Úrslit kvöldsins í forkeppni Meistaradeildarinnar eru eftirfarandi.... Sport 13.10.2005 19:39
Enski boltinn á Sýn í kvöld Í kvöld verður leikið í þriðju umferð í forkeppni Meistaradeildarinnar í knattspyrnu. Manchester United mætir Debrecen frá Ungverjalandi á Old Trafforf í fyrri leik liðanna, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn klukkan 18.55. Sport 13.10.2005 19:39
Glæsilegur sigur Vals Íslandsmeistarar Vals í kvennaflokki unnu í dag frábæran 4-1 sigur á Noregsmeisturum Roa Idrettslag í Evrópukeppni félagsliða kvenna, en liðin leika í riðli sem fram fer í Finnlandi. Sigurinn hlýtur að teljast enn merkilegri fyrir þær sakir að norsk kvennalið eru talin með þeim bestu í Evrópu. Sport 13.10.2005 19:39
Norska úrvalsdeildin Einn leikur var á dagskrá í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gær. Viking og Start gerðu jafntefli, 1 - 1. Hannes Þ. Sigurðsson kom inná sem varamaður í liði Vikings í síðari hálfleik rétt eins og Jóhannes Harðarson sem leikur með Start. Sport 13.10.2005 19:39
Sigur hjá Guðjóni Guðjón Þórðarson og lærisveinar hans í Notts County sigruðu í kvöld lið Wrexham á heimavelli sínum 1-0. Mark County kom á lokamínútu leiksins. Þetta var annar leikur liðsins í ensku 3.deildinni, þeim fyrri lauk með markalausu jafntefli. Sport 13.10.2005 19:39
Úrslitin úr ensku 1.deildinni. Fjöldi leikja fór fram í ensku 1.deildinni( Championship) í kvöld. Jóhannes Karl var í liði Leicester sem sigraði Stoke, Ívar Ingimarsson var í liði Reading sem vann Brighton, Bjarni Guðjónson sat allan tíma á varamanna bekknum í liði Plymouth og það sam gerði Gylfi Einarsson í liði Leeds. Úrslit kvöldsins voru sem segir.. Sport 13.10.2005 19:39
Segir Owen að fara til Newcastle Sir Bobby Robson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Newcastle, segir að Micheal Owen eigi að fara til Newcastle, fari svo að hann yfirgefi herbúðir Real til að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina. Sport 13.10.2005 19:39
Breiðablik færist nær titlinum Stelpurnar í Breiðablik komust skrefinu nær Íslandsmeistaratitilinum í knattspyrnu þegar liðið gerði markalaust jafntefli við KR á útivelli í kvöld. Þá sigraði FH lið Stjörnunnar 2-1 í Garðabæ. Sport 13.10.2005 19:39
Gautaborg er á toppnum Gautaborg er á toppnum í Svíþjóð með 32 stig, stigi meira en Djurgarden sem er í öðru sæti. Gautaborg vann góðan útisigur á Helsingborg, 2 - 0 , en Helsingborg sem er í fjórða sæti með 30 stig hefði með sigri skotist á toppinn í deildinni. Elfsborg sigraði Hacken, 2 - 0 , og Sundsvall og Gelfe skildu jöfn, 2 - 2. Sport 13.10.2005 19:39
United yfir í hálfleik Manchester United er 1-0 yfir gegn Debrechen frá Ungverjalandi í forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Wayne Rooney gerði mark United á 7. mínútu.Þá er leik Glasgow Rangers frá Skotlandi lokið, þeir sigruðu Anorthosis frá Kýpur 2-1 á útivelli í sömu keppni. Sport 13.10.2005 19:39
Forlan verður okkur erfiður Mickael Arteta, miðjumaður Everton, segir að Diego Forlan, fyrrverandi leikmaður Man. Utd, sé sá leikmaður sem liðið óttist mest í liði Villareal, en liðin eigast við í 3. umferð Meistaradeildarinnar í kvöld. Viðueignin er sýnd í beinni útsendingu á Sýn. Sport 13.10.2005 19:39
Buryak látinn fara Stjórnarmenn úkraínska knattspyrnuliðsins Dynamo Kiev ráku í dag Leonid Buryak þjálfara liðsins þrátt fyrir að Buryak hafi aðeins stjórnað liðinu í 2 mánuði. Liðinu hefur gengið illa í úkraínsku deildinni og var slegið út í forkeppni meistaradeildar Evrópu af svissneska liðinu Thun í síðustu viku. Anatoly Demyanenko var ráðinn í stað Buryaks Sport 13.10.2005 19:39
Allardyce ekki örvæntingarfullur Sam Allardyce, stjóri Bolton, segist ekki verða orðinn örvæntingarfullur í leit sinni að nýjum leikmönnum til að fá til liðsins. Eftir að hafa fengið Javier Borgetti frá Mexíkó hefur Allardyce ekki náð að semja við neinn leikmann. Sport 13.10.2005 19:38
Dudek illa meiddur Jerzy Dudek, markvörður Liverpool fór úr olnbogalið á æfingu með liðinu í dag og missir því af upphafi móts. Meiðslin setja samt ekki strik í reikningin hjá Liverpool því liðið keypti Spánverjann Jose Reyna frá Villareal til að standa í markinu í vetur hjá liðinu. Sport 13.10.2005 19:39
Halmstad er í þriðja neðsta sæti Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði eina mark Halmstad sem beið í gær lægri hlut fyrir Örgryte 2 - 1 á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Jóhann B Guðmundsson kom inn á sem varamaður í liði Örgryte í síðari hálfleik. Sport 13.10.2005 19:38
Við þurfum ekki Jenas Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, kveðst sannfærður um að Cesc Fabregas, hinn kornungi spænski miðjumaður liðsins, geti fyllt það skarð sem Patrick Vieira skildi eftir sig þegar hann gekk til liðs við Juventus. Sport 13.10.2005 19:38
Ferdinand skrifar undir Rio Ferdinand, miðvörður Manchester United hefur skrifað undir nýjan fjöguurra ára samning við liðið. Rio gekk til lið við United sumarið 2002 og hefur unnið bæði ensku deildina og bikarkeppnina með félaginu. Sport 13.10.2005 19:39