Ástin á götunni
321 322 323 324 325 326 327 328 329 … 334 ›
Gilardino leikur með Milan í kvöld Markahrókurinn Alberto Gilardino sem gekk til liðs við A.C. Milan frá Parma í síðustu viku fyrir 17.2 milljónir punda leikur sinn fyrsta leik fyrir félagið í kvöld. Milan mætir Chicago Fire í kvöld vestur í Bandaríkjunum þar sem liðið er í æfingaferð. Sport 13.10.2005 19:35
Barton sektaður um 8 vikna laun Joey Barton, leikmaður Manchester City, var síðdegis sektaður um samtals 8 vikna laun af félagi sínu vegna atviks sem átti sér stað í Tælandi í síðustu viku en þar var Manchester City í æfingaferð. Sport 13.10.2005 19:35
Venesúela svíkur KSÍ Knattspyrnusamband Venesúela hefur aflýst vináttulandsleik við íslenska karlalandsliðið sem fram átti að fara á Laugardalsvelli 17. ágúst n.k. Þetta kom fram á heimasíðu venesúelska knattspyrnusambandsins fyrir skömmu en þar segir að settur hafi verið á vináttuleikur gegn Ekvador þennan dag í ágúst. Sport 13.10.2005 19:35
ÍBV komið til Færeyja Knattspyrnulið ÍBV er mætt til Færeyja þar sem liðið leikur síðari leik sinn gegn B36 í fyrstu umferð forkeppni UEFA-bikarins í Þórshöfn á morgun. Fyrri leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli á Hásteinsvelli í Eyjum þar sem Pétur Óskar Sigurðsson skoraði mark heimamanna. Leikurinn hefst klukkan 17:30 að íslenskum tíma á morgun. Sport 13.10.2005 19:35
Toppliðin unnu í 1. & 2. deild Breiðablik heldur áfram sigurgöngu sinni í fyrstu deild karla í knattspyrnu. Blikar lögðu Fjölni 2-3 á útivelli eftir að hafa komist 0-2 yfir og eru með 35 stig á toppi deildarinnar, 10 stigum á undan Víkingi R sem vann mikilvægan 0-4 útisigur á nöfnum sínum frá Ólafsvík. Toppliðin tvö í 2. deild karla unnu bæði leiki sína í kvöld. Sport 13.10.2005 19:35
Ronaldo með tvö fyrir Real Madrid Brasilíski sóknarmaðurinn Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir Real Madrid sem vann 3-1 sigur á japanska liðinu Jubilo Iwata í æfingaleik í kvöld en spænska liðið er nú í æfingaferð niðri í Asíu. Fyrirliðinn Raul skoraði eitt mark þegar hann kom Real í 1-0 áður en heimaliðið náði að jafna. Sport 13.10.2005 19:35
Benitez sæmilega sáttur Rafael Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur lýst frammistöðu sinna manna gegn Kaunas frá Litháen í Meistaradeildinni í gær sem "ágætri." Sport 13.10.2005 19:35
Forkeppni Meistaradeildar Evrópu Evrópumeistarar Liverpool áttu ekki í miklum vandræðum með að leggja Kaunas frá Litháen að velli í fyrri leik liðanna í 2. umferð forkeppni meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu í gærkvöldi. Kaunas skoraði fyrsta markið á heimavelli en Liverpool skoraði þrívegis og vann 3-1. Djibril Cisse, Jaime Carragher og Steven Gerard skoruðu mörkin. Sport 13.10.2005 19:35
Keane spilaði einn hálfleik Roy Keane, fyrirliði Man. Utd, spilaði í 45 mínútur með C-liði liðsins í æfingaleik gegn utanddeildarliðinu Rossendale í gær, þrátt fyrir að vera sagður meiddur og þess vegna ófær um að fylgja aðalliðinu í æfingaferð til Asíu. Sport 13.10.2005 19:35
Woodgate meiddur enn og aftur Það á ekki af varnarmanninum Jonathan Woodgate að ganga. Nú hefur hann enn einu orðið fyrir meiðslum og er líklegur til að missa af fyrstu vikum komandi keppnistímabils á Spáni. Sport 13.10.2005 19:35
Baptista ekki til Arsenal Sókanarmiðjumaður spænska liðsins Sevilla, Julio Baptista hefur engan áhuga á að að ganga til liðs við enska liðið Arsenal. Baptista, sem er brasilískur vill vera kyrr á Spáni og fá spænskt vegabréf. Arsene Wenger, knattspyrnusjóri Arsenal er hins vegar sagður ekki vera búinn að gefa upp alla von. Sport 13.10.2005 19:35
Fimm í eins leiks bann Fimm leikmenn í Landsbankadeildinni voru í gær dæmdir í eins leiks bann. Davíð Þór Viðarsson FH og Sölvi Sturluson úr KR voru reknir af velli en Bjarnólfur Lárusson KR fær leikbann vegna 6 gulra spjalda og Eyjamennirnir Andri Ólafsson og Heimir Snær Guðmundsson vegna fjögurra gulra spjalda. Sport 13.10.2005 19:35
Helgi Sig lék gegn Barcelona Helgi Sigurðsson og félagar í danska knattspyrnuliðinu AGF Aarhus máttu þola 0-4 tap á mánudagskvöld gegn spænska stórliðinu Barcelona en leikurinn var liður í undirbúningsferð Barca í Danmörku. Helgi var ekki í byrjunarliði AGF í leiknum en kom inn á í síðari hálfleik. Sport 13.10.2005 19:35
Leikur við Venesúela í lausu lofti Knattspyrnusamband Venesúela segir á heimasíðu sinni að landsleik milli Íslands og Venesúela í knattspyrnu, sem fyrirhugaður var 17. ágúst, hafi verið aflýst.Geir Þorsteinsson, framkvæmadstjóri knattspyrnusambands Íslands, segir þessa tilkynningu ótímabæra Sport 13.10.2005 19:35
Stuttgart í undanúrslit Stuttgart sigraði Bayern München í undanúrslitum þýska deildarbikarsins 2-1 í kvöld í Alianz Arena nýja heimavelli Bayern München. Roy Makaay gerði mark Bayern en þeir Hitzlsperger og Stranzl mörk Stuttgart sem er stjórnað af Giovanni Trapatoni fyrrum þjálfara Bayern München. Sport 13.10.2005 19:35
Bjarni Þór var bestur í Svíþjóð Mótshaldarar alþjóðlega U18 mótsins sem fram fór í Falkenberg í Svíþjóð völdu Bjarna Þór Viðarsson fyrirliða Íslenska liðsins besta leikmann mótsins. Bjarni Þór hlaut að launum veglegan bikar. Sport 13.10.2005 19:34
Þórður ætlar sér í landsliðið á ný Með tilkomu nýs þjálfara hjá Stoke City, Johan Boskamp, hefur Þórður Guðjónsson fengið fleiri tækifæri með liðinu, en hann var ekki í náðinni hjá forvera Boskamp,Tony Pulis. "Ég ætla mér að vinna mér sæti í liðinu aftur og vonandi dugar frammistaða mín í vetur með Stoke City til þess að komast í hópinn á nýjan leik," segir Þórður. Sport 13.10.2005 19:35
Nunez kominn til Celta Vigo Antonio Nunez hefur skrifað undir þriggja ára samning við spænska liðið Celta Vigo en hann kemur frá Evrópumeisturum Liverpool. Nunez er því aftur kominn í spænska boltann eftir misheppnaða dvöl á Anfield. Sport 13.10.2005 19:34
Figo til Inter? Ítalska liðið Internazionale leiðir kapphlaupið um miðjumanninn Luis Figo hjá Real Madrid samkvæmt fréttum fjölmiðla á Ítalíu í gær. Enska liðið Liverpool er þó enn í baráttunni um leikmanninn. Sport 13.10.2005 19:35
Nýliðar Wigan fá Henchoz Wigan Athletic, nýliðarnir í ensku úrvalsdeildinni, hafa náð samkomulagi við svissneska landsliðsmanninn Stephane Henchoz. Þessi fyrrum varnarmaður Liverpool hefur undanfarna viku æft með Wigan og náði að sannfæra knattspyrnustjórann Paul Jewell um að hann sé vænlegur kostur. Sport 13.10.2005 19:34
Man Utd sigraði Peking Manchester United sigraði Peking Hyundai 3-0 í hádeginu í dag í Kína en liðið er statt þar í æfingaferð. Paul Scholes gerði tvö marka United en nýji maðurinn Park ji-sung frá Suður Kóreu gerði þriðja markið en það var hans fyrsta í United búningi. Sport 13.10.2005 19:35
Liverpool sigraði 3-1 Liverpool sigraði lið Kaunas frá Litháen 3-1 í Litháen í annarri umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Kaunas komst yfir með marki frá Baravicius en þeir Cisse, Carrager og Gerrard úr víti svöruðu fyrir Liverpool. Sport 13.10.2005 19:35
Hlutbréf í Newcastle rjúka upp Hlutabréf í enska úrvalsdeildarliðinu Newcastle hækkuðu um tæp 18% í dag eftir að orðrómur komst á kreik um að tveir fjárfestar hefðu hug á að kaupa 28,5% hlut Sir John Hall, eins aðaleigenda félagsins og fyrrverandi stjórnarformanns. Sport 13.10.2005 19:35
Liverpool gegn Kaunas í kvöld Allt bendir til þess að miðjumaðurinn Steven Gerrard verði orðinn klár fyrir Evrópuleik Liverpool gegn Kaunas í kvöld. Hann þurfti að hætta á æfingu á mánudagskvöld vegna meiðsla á ökkla en er líklegast klár fyrir leik kvöldsins. Sport 13.10.2005 19:34
Stelpurnar steinlágu gegn Finnum Íslenska landsliðið í knattspyrnu kvenna 21 árs og yngri tapaði fyrir Finnum 4-1 í leik um 5. sætið á Norðurlandamótinu í Svíþjóð í dag. Margrét Lára Viðarsdóttir skoraði mark Íslands. Sport 13.10.2005 19:35
Bolton að styrkja sig Enska úrvalsdeildarliðið Bolton Wanderes heldur áfram að styrkja sig með nýjum leikmönnum og nú hefur liðið fengið til sín Abdoulaye Diagne-Faye frá Lens í Frakklandi á lánssamningi til eins árs. Sport 13.10.2005 19:34
Anderlecht burstaði Nefchi FH banarnir í Nefchi fengu slæman skell í Belgíu í kvöld er liðið tapaði 5-0 fyrir Anderlecht í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Seinni leikur liðanna verður í Azerbadjan eftir rúma viku. Þá sigruðu Árni Gautur Arason og félagar hans í norska liðinu Valerenga lið Haka frá Finnlandi 1-0 en leikurinn fór fram í Noregi. Sport 13.10.2005 19:35
Davids til Tottenham Hollendingurinn Edgar Davids, sem er á mála hjá Inter Milan gengur að öllum líkindum til liðs við enska úrvalsdeildarliðið Tottenham síðar í vikunni. "Hann er mjög fjölhæfur miðjumaður, hann vinnur boltann, hann getur stjórna spili liðs, með frábært úthald og magnað persónuleika," sagði Martin Jol, knattspyrnustjóri Tottenham um Davids. Sport 13.10.2005 19:35
Anderlecht 2-0 yfir gegn Neftchi Anderlecht frá Belgíu er komið 2-0 yfir eftir aðeins 23 mínútna leik gegn FK Neftchi frá Aserbaídjan í forkeppni Meistaradeildar Evrópu en það var einmitt FK Neftchi sem sló út FH-liðið 4-1 samanlagt í fyrstu umferðinni. Mörkin skoruðu Tihinen á 20. mínútu og Jestrovic á 23. mínútu. Sport 13.10.2005 19:35
Liverpool yfir í hálfleik Liverpool er yfir í hálfleik gegn Kaunas í Litháen 2-1 í 2. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Baravicius kom Kaunas yfir en þeir Cisse og Carrager gerðu mörk Liverpool. Sport 13.10.2005 19:35