Bílslys Tigers Woods

Woods með meðvitund og bregst við áreiti eftir aðgerð
Golfstjarnan Tiger Woods er með meðvitund og bregst við áreiti eftir aðgerð sem hann undirgekkst í gærkvöld eftir að hafa slasast alvarlega í bílslysi í Los Angeles.

Tiger var með meðvitund en alvarlega slasaður á báðum fótum
Tiger Woods var með meðvitund er fólk kom að bíl hans eftir skelfilegt bílslys í kvöld. Hann var illa slasaður á báðum fótleggjum segir í frétt Independent um málið.

Óska Tiger skjóts og góðs bata
Tiger Woods, einn besti kylfingur allra tíma, lenti í skelfilegu bílslysi fyrr í kvöld. Hann þurfti í kjölfarið að fara í aðgerð vegna meiðsla á fæti eða fótum. Ekki hefur enn komið í ljós hversu alvarleg meiðslin eru en Tiger ku ekki vera í lífshættu.

Tiger Woods í aðgerð vegna meiðslanna sem hann hlaut í bílslysinu
Mark Steinberg, umboðsmaður Tiger Woods, hefur staðfest að kylfingurinn sé í aðgerð eftir að hafa lent í bílslysi fyrr í kvöld.

Tiger Woods slasaður eftir bílslys | Klippa þurfti hurðina af bílnum til að ná honum út
Tiger Woods, einn sigursælasti kylfingur allra tíma, lenti í bilslysi í kvöld. Bíll hans valt og þurfti að nota járnklippur til að klippa hurðina af bíl hans svo hægt væri að koma honum út úr bílnum.