Fjármálamarkaðir

Fréttamynd

Af frönskum ríkis­skuldum, skamm­vinnri stjórnar­setu og gildi kaup­auka

Mikil mótmælaalda gengur nú yfir suðurhluta Evrópu. Mestar voru rósturnar í Frakklandi um helgina en af fréttum fjölmiðla að dæma eru mótmælendur að brjóta allt og bramla til þess að mótmæla, svo fátt eitt sé nefnt, aðgerðarleysi í loftslagsmálum, hækkandi mjólkurverði og lélegu viðhaldi við framhaldsskóla.

Innherji
Fréttamynd

Hærri raun­vextir vega þyngra en bættur rekstur Eikar

Hækkandi ávöxtunarkrafa á skuldabréfamarkaði og lakari sjóðsstaða vega þyngra en jákvæð áhrif af auknum leigutekjum og bættri rekstrarafkomu Eikar, að mati greinenda sem hafa lækkað verðmat á félaginu lítillega. Hlutabréfaverð fasteignafélagsins er eftir sem áður talið verulega undirverðlagt á markaði.

Innherjamolar
Fréttamynd

Stór­aukið inn­flæði er­lendra aðila gæti skýrt ó­vænta styrkingu krónunnar

Mikil aukning í gjaldeyrisinnflæði erlendra aðila til landsins er að líkindum helsta skýringin á snarpri styrkingu krónunnar undanfarna mánuði. Innflæðið hefur verið allt að þrefalt meira en fyrr á árinu og gæti meðal annars helst tengst uppbyggingu gagnavera í erlendri eigu eða uppgjöri skattaskuldbindinga vegna kaupa á hugverkaréttindum Kerecis.

Innherji
Fréttamynd

Telja Arion geta losað um 100 milljarða með sömu reglum og nor­rænir bankar

Arion gæti bundið um hundrað milljörðum króna minna í eigið fé ef íslenskir bankar byggju við sambærilegar eiginfjárkröfur og aðferðafræði við áhættumat útlána og tíðkast á Norðurlöndunum, að sögn forstjóra Stoða. Í kynningu fyrir hluthöfum fjárfestingafélagsins sagði hann ljóst að íslensk skattlagning og eiginfjárreglur dragi verulega úr samkeppnishæfni bankanna og þá um leið virði þeirra á hlutabréfamarkaði.

Innherji
Fréttamynd

Frum­varp um sérís­lenskt bónusþak sagt „auka áættu í rekstri“ verðbréfa­félaga

Áform fjármálaráðherra um að viðhalda 25 prósenta hámarki á kaupaukagreiðslur starfsmanna verðbréfafyrirtækja eru til þess fallin að „auka áhættu í rekstri [þeirra] fremur en að draga úr henni,“ að mati framkvæmdastjóra Acro verðbréfa. Hann gagnrýnir að stjórnvöld hafi ákveðið að halda í séríslenskar reglur, langtum strangari en annars staðar á Norðurlöndunum, án þess að nokkur greining liggi fyrir um hvaða áhættu þeim sé ætlað að mæta.

Innherji
Fréttamynd

Kynna vaxtar­plan sem gæti skilað 300 milljarða viðsnúningi í af­komu ríkis­sjóðs

Með markvissum aðgerðum til að efla fimm helstu útflutningsgreinar landsins, sölu ríkiseigna og auknu aðhaldi í opinberum útgjöldum væri hægt að auka hagvöxt um nær helming frá núverandi spám og bæta afkomu ríkissjóðs um hátt í 300 milljarða króna á næstu fimm árum, samkvæmt tillögum sem forstjóri Stoða hefur kynnt hluthöfum. Telur hann að með slíkum aðgerðum mætti jafnframt lækka skuldir ríkissjóðs um helming og draga verulega úr vaxtakostnaði hins opinbera.

Innherji
Fréttamynd

Banda­rískur sjóðarisi selur banka­bréf fyrir marga milljarða

Bandarískur eignastýringarrisi, sem á talsvert undir í mörgum Kauphallarfélögum hér á landi, hefur á síðustu dögum staðið að sölu fyrir samtals milljarða króna í Íslandsbanka og Arion og er mögulega búið að losa um alla sína hluti í stóru skráðu viðskiptabönkunum.

Innherji
Fréttamynd

Væntingar um að sam­runi Gildis og Festu skili yfir milljarði í ár­legri sam­legð

Með sameiningu lífeyrissjóðanna Gildis og Festu er áætlað að það geti skilað árlegri samlegð upp á samtals vel yfir einn milljarð, einkum vegna lægri rekstrarkostnaðar og hagstæðari kjara við erlenda eignastýringu. Ekki er gert ráð fyrir fækkun starfsfólks vegna samrunans en mögulega þarf að skerða áunnin lífeyrisréttindi sjóðfélaga þess sjóðs sem stendur lakar tryggingafræðilega til að jafna stöðu þeirra fyrir sameiningu.

Innherji
Fréttamynd

Skuld­settustu ríkin geta ekki lengur slegið aðhaldsað­gerðum á frest

Skuldsettar þjóðir geta ekki lengur treyst á að hagvöxtur einn og sér leysi vanda ríkisfjármálanna, að mati framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Hún hvetur stjórnvöld til að hemja útgjaldavöxt og móta trúverðugar áætlanir um lækkun skulda til að draga úr verðbólgu og þrýstingi á vexti.

Innherji
Fréttamynd

Hærri vextir og sterkari króna draga verðmat Brims niður

Verðmat á Brim er lækkað nokkuð þrátt fyrir að afkomuhorfur hafi batnað eftir sterkan fyrri helming ársins. Hækkun erlendra vaxta og mikil styrking krónunnar vega þar þungt en hlutabréfagreinandi telur nú talsverðan mun á undirliggjandi verðmæti Brims og markaðsvirði sjávarútvegsfélagsins.

Innherjamolar
Fréttamynd

Halda 25 pró­senta bónusþaki þrátt fyrir mun rýmri reglur á Norður­löndum

Stjórnvöld hafa fallið frá fyrri áformum um að tvöfalda hámark breytilegra launa hjá verðbréfafyrirtækjum og leggja þess í stað til að 25 prósenta þak verði áfram við lýði hjá þeim félögum sem falla undir strangari kröfur. Takmörkunin verður því enn mun meiri en þekkist annars staðar á Norðurlöndum, þótt samhliða sé lagt til að regluverk íslenskra verðbréfafyrirtækja verði almennt einfaldað verulega og reglubyrði þeirra minnkuð.

Innherji
Fréttamynd

AGS segir skulda­stöðu ríkja þrýsta upp langtíma­vöxtum

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að vaxandi áhyggjur fjárfesta af mikilli skuldsetningu ríkja eigi þátt í þeirri skörpu hækkun sem orðið hefur á langtímavöxtum á helstu skuldabréfamörkuðum beggja vegna Atlantshafsins. Þrátt fyrir snarpar verðhreyfingar að undanförnu sér sjóðurinn þó ekki merki um óskipuleg viðskipti eða alvarlega röskun á virkni markaðanna.

Innherji
Fréttamynd

Eik kallar eftir rýmri heimildum til tíðari arð­greiðslna

Stjórnendur Eikar leggja til að lögum verði breytt þannig að skráð félög geti með einfaldari hætti dreift arðgreiðslum yfir árið, meðal annars með ársfjórðungslegum greiðslum eins og þekkist víða annars staðar. Fasteignafélagið telur núverandi fyrirkomulag óþarflega íþyngjandi miðað við nágrannalönd, draga úr samkeppnishæfni hlutabréfamarkaðarins og leiða til óhagkvæmari fjárstýringar.

Innherji
Fréttamynd

Markaðurinn van­metið gjald­eyris­inn­flæðið af upp­byggingu gagna­vera

Peningastefnan er að hjálpa við að draga úr vexti einkaneyslu og fjárfestingu, sem veldur minni innflutningi á sama tíma viðskiptakjör útflutningsgreina eru góð, en það hefur ýtt undir mikla gengisstyrkingu á krónunni og þá er líklegt að markaðurinn hafi vanmetið gjaldeyrisáhrifin af stórfelldri uppbyggingu gagnavera, að sögn seðlabankastjóra. Hann telur bankakerfið hafa búið vel í haginn til að takast á við óróleika á erlendum mörkuðum og það fyrirfinnist vart fyrirtæki sem er mjög skuldsett í erlendri mynt og gæti lent í vandræðum vegna endurfjármögnunar í útlöndum.

Innherji
Fréttamynd

Telur litla veltu og virkni á hluta­bréfa­markaði vera „raun­veru­legt vanda­mál“

Seðlabankastjóri telur minnkandi virkni á íslenskum hlutabréfamarkaði, meðal annars samhliða sífellt meiri samþjöppun lífeyriskerfisins, vera „raunverulegt vandamál“ og segir ástæðu til að ræða hvort stjórnvöld eigi að skapa aukna hvata fyrir almenning til að fjárfesta á markaði. Lífeyrissjóðir séu í eðli sínu langtímafjárfestar og því verði hlutabréfamarkaður þar sem þeir eru ráðandi seint mjög líflegur.

Innherji
Fréttamynd

Mælist til að bankarnir „safni eigin fé“ og séu um­fram kröfur Seðla­bankans

Núna þegar það kann að reyna á viðnámsþrótt fjármálakerfisins, meðal annars vega óróleika á alþjóðlegum mörkuðum og erfiðrar stöðu á byggingamarkaði, þá er ástæða fyrir viðskiptabankana að huga að því að „safna eigin fé“ og vera tilbúna til að takast á við möguleg áföll, að sögn seðlabankastjóra. Arðgreiðslur og kaup bankanna á eigin bréfum hafa verið með mesta móti að undanförnu og nema samtals yfir hundrað milljörðum frá áramótum.

Innherji
Fréttamynd

Á­hersla ESB á mið­stýringu er „við­varandi á­skorun“ fyrir EES-samninginn

Aukin miðstýring innan Evrópusambandsins, sem meðal annars er ætlað að efla samkeppnishæfni álfunnar, gæti skapað hættu á „viðvarandi áskorunum“ fyrir EES-samninginn og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu, að mati varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Hann segir breytta heimsmynd kalla á að Ísland leiti sér alþjóðlegs skjóls en styrki um leið eigin viðnámsþrótt.

Innherji
Fréttamynd

Telja að hallinn geti orðið yfir fjöru­tíu milljarðar þrátt fyrir fyrir­heit um af­gang

Útlit er fyrir að afkoma ríkissjóðs á árinu 2027 verði umtalsvert lakari en lagt er upp með í nýju fjárlagafrumvarpi, að mati greinenda Acro, sem telja líklegustu sviðsmyndina vera halli upp á 43 milljarða. Forsendur frumvarpsins eru sagðar of bjartsýnar, „svo ekki sé fastar að orði kveðið“, miðað við hægari efnahagsumsvif og án frekari aðgerða sé erfitt að sjá hvernig markmið um fimm milljarða afgang geti gengið eftir.

Innherji
Fréttamynd

Sendir röng skila­boð og hreyfir við verðbólgu­væntingum á brot­hættum stað

Afleiðingarnar af því að boða hækkun á gjöldum ríkisins í samræmi við verðbólgu, sem hefur verið gert í síðustu tveimur fjárlagafrumvörpum, verða til þess að hreyfa við verðbólguvæntingum sem eru fyrir á „brothættum stað“, að sögn varaseðlabankastjóra, og að Seðlabankinn myndi gjarnan vilja sjá þetta endurhugsað. Hann segir jákvætt að aðhaldsstigið í ríkisfjármálum eigi að aukast á milli ára og varar við því að fara í meiri launahækkanir á vinnumarkaði, einkum núna þegar það er að myndast „mikill slaki í þjóðarbúinu.“

Innherji
Fréttamynd

Seðla­bankinn bætir í gjald­eyris­kaupin þegar evran fór undir 140 krónu múrinn

Ekkert lát er á gengisstyrkingu krónunnar, meðal annars drifin áfram af góðum viðskiptakjörum í sumum útflutningsgreinum og innflæði í ríkisverðbréf, og í vikunni fór hún undir gildið 140 gagnvart evrunni í fyrsta sinn í fjögur ár. Seðlabankinn ákvað á sama tíma að bæta í reglubundin gjaldeyriskaup sín en segist samt telja að þau hafi „ekki teljandi áhrif“ á gengið við núverandi aðstæður.

Innherji
Fréttamynd

Fram­kvæmda­stjóri AGS varar við víta­hring skulda, verð­bólgu og hækkandi vaxta

Skuldir hins opinbera í heiminum stefna í að fara yfir hundrað prósent af landsframleiðslu innan áratugar og eru nú þegar þær mestu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varar við því að þrálát verðbólga og veik staða ríkisfjármála geti þrýst langtímavöxtum enn hærra og kallað á harðari peningastefnu hjá seðlabönkum margra ríkja.

Innherji