

Mál þar sem litáískur maður lést eftir að hafa hlotið eitt lófahögg á skemmtistaðnum Lúx í Austurstræti í Reykjavík í júní í hitteðfyrra var óvenjulegt að mati Héraðsdóms Reykjavíkur, sem dæmdi í málinu.
Íslendingur á þrítugsaldri hefur verið sakfelldur fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða litáísks karlmanns í skemmtistaðnum Lúx í Austurstræti í Reykjavík í júní í hitteðfyrra. Hann fær tveggja ára fangelsisdóm sem er skilorðsbundinn til þriggja ára.
Íslendingur á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir stórfellda líkamsárás sem leiddi til dauða litáísks karlmanns í skemmtistaðnum Lúx í Austurstræti í Reykjavík í júní í fyrra.
Mál sem varðar andlát 25 ára gamals litáísks karlmanns sem lést eftir líkamsárás síðasta sumar er komið á borð héraðssaksóknara. Enn á eftir að gefa út ákæru í málinu.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu bíður enn eftir endanlegri niðurstöðu krufningar vegna andláts karlmanns sem lést í kjölfar höfuðhöggs á skemmtistaðnum Lúx aðfaranótt þess 24. júní síðastliðinn.
Karlmaður um fertugt var í dag, í Héraðsdómi Reykjaness, úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald í þágu rannsóknar á andláti karlmanns þann 17. júní síðastliðinn, í Drangahrauni í Hafnarfirði.
Maður sem stakk annan mann á Laugavegi í miðborg Reykjavíkur í byrjun síðustu viku er enn ófundinn. Lögregla segir það óvenjulegt en vill ekki gefa upp nánari upplýsingar um hvernig leitinni að manninum miðar. Þá er rannsókn lögreglu á manndrápi á skemmtistaðnum Lúx langt komin.
Banamein karlmanns á þrítugsaldri sem lést í kjölfar líkamsárásar á skemmtistaðnum Lúx í Austurstræti fyrir tæpum tveimur vikum, var eitt höfuðhögg. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglunnar Höfuðborgarsvæðinu.
Miðlæg rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu er undir gríðarlegu álagi um þessar mundir, en auk þriggja manndrápsmála hefur hún einnig stórfellt fíkniefnasmygl til rannsóknar. Tveir Grænlendingar og einn Dani eru í haldi fyrir að smygla inn miklu magni af fíkniefnum til landsins í skútu.
Maðurinn sem lést eftir líkamsárás á skemmtistaðnum Lúx á dögunum hét Karolis Zelenkauskas og var 25 ára gamall litáískur ríkisborgari, sem búsettur hafði verið hér á landi um nokkurra mánaða skeið.
Karlmaður sem handtekinn var vegna líkamsárásar og andláts manns á skemmtistaðnum Lúx í miðborg Reykjavíkur síðustu helgi er laus úr gæsluvarðhaldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.
Bráðabirgðarniðurstöður úr krufningu manns, sem lést eftir alvarlega líkamsárás á skemmtistaðnum Lúx í Austurstræti, ættu að liggja fyrir í dag.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur staðfest að alvarleg líkamsárás sem leiddi til andláts litáísks manns á laugardagsnótt átti sér stað á skemmtistaðnum Lúx í Austurstræti. Gæsluvarðhald yfir hinum grunaða rennur út á fimmtudag.
Maðurinn sem lést í gær í kjölfar alvarlegrar líkamsárásar var litáískur. Ekki lítur út fyrir að vopnum hafi verið beitt en lögregla gefur lítið upp um málið annað en að það sé óvenjulegt miðað við önnur manndrápsmál sem eru til rannsóknar. Íslendingur á þrítugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna málsins.
Karlmaður á þrítugsaldri, sem varð fyrir líkamsárás í miðborginni í nótt, er látinn. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Karlmaður á þrítugsaldri er í haldi lögreglunnar höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás í miðborginni í nótt og verður krafist gæsluvarðhalds yfir honum.
Lögreglan handtók einstakling eftir sérstaklega hættulega líkamsárás á skemmtistað í miðborg Reykjavíkur í nótt. Samkvæmt upplýsingum lögreglu var brotaþoli fluttur meðvitundarlaus á sjúkrahús og liggur þungt haldinn á spítala.