Jean-Rémi Chareyre

Fréttamynd

Af sköpunar­g­leði Við­skiptaráðs

Gagnrýni er gagnleg, en aðeins svo lengi sem hún er uppbyggileg. Kolefniskvótakerfi Evrópusambandsins (ETS-kerfi) hefur enn ratað á forsíðu dagblaða og netmiðla eftir að Viðskiptaráð gaf út skýrslu um áhrif kerfisins á Ísland.

Skoðun
Fréttamynd

Eru kórallar á leið í sögu­bækurnar?

Kórallar, þessar merkilegu lífverur sem eru einhvers konar líffræðilegir blendingar (tilkomnir vegna samlífis dýrs og plöntu) hafa verið til staðar á jörðinni í hundruð milljóna ára, mun lengur en við framagosarnir úr homo sapiens fjölskyldunni.

Skoðun
Fréttamynd

Orkuskiptin sem engu máli skiptu

Í nýlegri aðsendri grein á Vísi gerði ég að umtalsefni það sem ég tel vera landlægur ósiður, og felst í því að réttlæta aðgerðaleysi í loftslagsmálum með því að vísa í landfræðilega „sérstöðu“ Íslands. En stundum er líka vísað í annars konar „sérstöðu“: þingkona og fyrrverandi orkumálastjóri hélt því nýlega fram að „við á Íslandi“ værum komin „miklu lengra“ en aðrar þjóðir á sviði orkuskipta. Að reyna að draga úr olíunotkun á Íslandi væri „eins og að kreista safa úr rúsínu,“ sagði þingkonan.

Skoðun
Fréttamynd

Um kosningar, gul­rætur og verð­bólgu

Í aðdraganda kosninga vaknar alltaf sama spurningin: um hvaða málefni munum við kjósa? Í lýðræðissamfélagi er ekki alveg ljóst hver hefur dagskrárvaldið: eru það stjórnmálaflokkarnir sem setja ákveðin mál á dagskrá með því að hafa þau ofarlega á stefnuskrá sinni og fjalla um þau í blaðagreinum og viðtölum?

Skoðun
Fréttamynd

Vara við meiri­háttar skorti á kopar eftir 2025

Alþjóða Orkustofnunin (IEA) varar við því í nýrri skýrslu að framboð af kopar og öðrum málmum muni ekki duga til að fullnægja eftirspurn miðað við áætlanir um orkuskipti og kolefnishlutleysi árið 2050.

Skoðun