Kosningaspá Vísis

Fréttamynd

Kannanir sögu­lega nærri kosningaúr­slitunum

Aðeins rúmu prósentustigi skeikaði að meðaltali á skoðanakönnunum og úrslitum í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík. Stærðfræðingur segir kannanirnar hafa verið sögulega nákvæmar í ár.

Innlent
Fréttamynd

Kosningaspá Vísis: Nýr mögu­leiki opnast til hægri

Yfir helmingslíkur eru á því að Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsóknarflokkurinn gætu myndað meirihluta í borginni samkvæmt kosningaspá Vísis. Um er að ræða eina raunhæfa möguleikann á þriggja flokka meirihluta eftir að Viðreisn útilokaði samstarf við Miðflokkinn í kappræðum. Lesendur geta reiknað líkur á ólíkum möguleikum hér að neðan.

Innlent
Fréttamynd

Setja skýr skil­yrði fyrir meiri­hluta­sam­starfi í Reykja­vík

Samkvæmt nýjustu kosningaspá Vísis er Sjálfstæðisflokkurinn líklegastur til að fá sjö borgarfulltrúa og Samfylkingin sex. Vinstrið mælist áfram þriðji stærsti flokkurinn og gæti fengið þrjá menn, en þar fyrir neðan er hörð barátta um þriðja fulltrúann hjá Viðreisn og Miðflokki. Þorvaldur Davíð Kristjánsson í þriðja sæti Viðreisnar mælist með 46 prósent líkur á kjöri en Lárus Blöndal í þriðja sæti Miðflokksins með 43 prósent.

Innlent
Fréttamynd

Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“

Oddvitar í borgarstjórnarkosningum sem tæplega munu ná inn í borgarstjórn samkvæmt nýuppfærðri kosningaspá Vísis eru hvergi bangnir og segja enn langan tíma til kosninga. Oddvita Sósíalistaflokksins er spáð sæti í borgarstjórn, eins og staðan er núna.

Innlent
Fréttamynd

Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarn­veigar dvína

Sjálfstæðisflokkurinn er kominn með ríflega fjögurra prósentustiga forskot á Samfylkinguna í Reykjavík í kosningaspá Vísis. Sjöundi maður hans á nú meiri líkur á að komast inn en sjötti maður Samfylkingar. Líkur sósíalista að ná inn manni hafa aukist en Flokks fólksins dalað.

Innlent