Kosningar 2009
11 12 13 14 15 16 … 16 ›
Einar K Guðfinnsson efstur í prófkjöri Talning í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í NV kjördæmi hófst klukkan 9 í morgun. Nú er búið að telja 800 atkvæði eða um 27prósent samkvæmt fréttavefnum skessuhorn.is. Innlent 22.3.2009 14:07
Kristján Þór líklega í formannsframboð Heimildarmenn Vísis innan úr Sjálfstæðisflokknum segja að þeir búist við þvi að Kristján Þór Júlíusson muni bjóða sig fram til formanns á Landsfundi flokksins um næstu helgi. Innlent 22.3.2009 13:01
Súlukóngur styrkir Sjálfstæðisflokkinn Súlukóngurinn Ásgeir Þór Davíðsson, eða Geiri á Goldfinger, eins og hann er iðullega kallaður, styrkti Sjálfstæðisflokkinn um þrjúhundruð þúsund krónur fyrir alþingiskosningarnar árið 2007. Það er hæsta mögulega upphæðin sem má gefa stjórnmálaflokki. Innlent 22.3.2009 11:39
Kristján Þór hugsanlega í formannsslag Sjálfstæðismaðurinn og þingmaður Norðausturkjördæmis, Kristján Þór Júlíusson hefur boðað til blaðamannafundar á Akureyri í dag þar sem hann mun kynna áform sín um forystukjör í Sjálfstæðisflokknum, eins og hann orðar það í tilkynningu. Innlent 22.3.2009 11:00
Sjálfstæðisflokkur braut lög Sjálfstæðisflokkur braut lög þegar hann veitti þrjú hundruð þúsund króna styrk frá Neyðarlínunni viðtöku. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar segir að honum hafi ekki verið kunnugt um að styrkveitingin væri lögbrot. Þetta kom fram í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Innlent 21.3.2009 20:00
Ungir Framsóknarmenn fengu styrk Valgerðar „Þessu styrkur var fyrir norræna ráðstefnu ungs fólks sem Samband ungra Framsóknarmanna áttu aðild að, en styrkurinn var í gegnum þá," segir Valgerður Sverrisdóttir, fyrrum utanríkisráðherra, en í skýrslu ríkisendurskoðunar um fjárframlög til stjórnmálaflokka kemur fram að utanríkisráðuneytið hafi styrkt Framsóknarflokkinn um nítíu þúsund krónur. Þá gegndi Valgerður stöðu utanríkisráðherra. Innlent 21.3.2009 16:19
Utanríkisráðherrann Valgerður styrkti eigin flokk Utanríkisráðuneytið styrkti Framsóknarflokkinn um nítíu þúsund krónur árið 2006 samkvæmt gögnum Ríkisendurskoðunar um fjárframlög til stjórnmálaflokka. Þá var Framsóknarkonan Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráðherra en hún gengdi því embætti frá 2006-2007. Innlent 21.3.2009 15:01
Össur Skarphéðinsson: Útilokar samstarf við Sjálfstæðismenn Iðnaðarráðherran Össur Skarphéðinsson skrifar í pilsti á vefsvæði Eyjunnar að hann sé sammála formannsefni Sjálfstæðisflokksins, Bjarna Benediktssonar, um að flokkarinn ættu ekki að fara í samstarf eftir næstu kosningar. Innlent 21.3.2009 13:18
Meðstjórnendur kosnir hjá VG Kosning til meðstjórnanda á flokksþingi Vinstir grænna var að ljúka. Greidd voru 251 atkvæði og náðu eftirtaldir félagar kjöri sem aðalmenn í stjórn flokksins: Innlent 21.3.2009 12:58
Neyðarlínan var í meirihlutaeigu ríkisins Neyðarlínan var ekki orðinn opinbert hlutafélag þegar Sjáfstæðisflokkurinn falaðist eftir framlagi til flokksins en félagið var hinsvegar í meirihlutaeigu ríkisins. Innlent 21.3.2009 12:18
Neyðarlínan styrkti Sjálfstæðisflokkinn Opinbera hlutafélagið Neyðarlínan ohf greiddi Sjálfstæðisflokknum þrjúhundruð þúsund krónur í framlag til kosningabaráttu flokksins fyrir síðustu kosningar. Hámarks framlag til stjórnmálaafls eru þrjú hundruð þúsund krónur. Athygli vekur að ríkissjóður á 73,6 prósent í Neyðarlínunni, restin skiptist á milli Reykjavíkurborgar, Landsvirkjunnar og Orkuveitu Reykjavíkur. Innlent 21.3.2009 11:25
Steingrímur endurkjörinn formaður Steingrímur Jóhann Sigfússon var endurkjörinn sem formaður Vinstri grænna en hann hefur gegnt embættinu frá stofnun flokksins. Innlent 21.3.2009 10:41
Tuttugu vilja á þing fyrir Samfylkinguna í Reykjavík Framboðsfrestur í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, sem hefst mánudaginn 9. mars og lýkur laugardaginn 14. mars, rann út á laugardaginn. Alls bárust framboð frá 20 frambjóðendum. Innlent 2.3.2009 09:33
Lúðvík vill leiða Samfylkinguna í Kraganum Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði hefur gefið formlega kost á sér til þess að leiða lista Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lúðvíki en fyrr í dag sagði fréttastofa frá því að þetta stæði til. Innlent 27.2.2009 16:43
Þrefalt fleiri vilja Jóhönnu frekar en Ingibjörgu Rúmlega þrefalt fleiri vilja að að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra leiði Samfylkinguna í næstu Alþingiskosningum, en að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður flokksins geri það, samkvæmt nýrri könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Innlent 27.2.2009 11:58
Íslandshreyfingin gengur í Samfylkinguna Stjórn Íslandshreyfingarinnar hefur samþykkt að hreyfingin óski eftir því að gerast aðili að Samfylkingunni sem eitt af aðildarfélögum hennar og heiti henni fullum stuðningi í komandi kosningum. Stjórnin skorar á fylgismenn Íslandshreyfingarinnar að ljá þessu máli stuðning sinn og verður málið lagt fyrir aðalfund hreyfingarinnar sem fyrst. Innlent 27.2.2009 11:31
Ellefu vilja á þing fyrir Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi Ellefu hafa gefið kost á sér í prófkjör Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar vorið 2009. Prófkjörið verður rafrænt og hefst á hádegi föstudaginn 6. mars og líkur sunnudaginn 8. mars. Niðurstöður liggja líklega fyrir klukkan 18 sama dag. Innlent 27.2.2009 11:10
Katrín sækist eftir endurkjöri - vill 2. sætið Katrín Júlíusdóttir, alþingismaður, hefur ákveðið að sækjast eftir endurkjöri og býður sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi sem fram fer dagana 12.-14. mars. Innlent 27.2.2009 09:22
Magnús Þór vill sæti Kristins Magnús Þór Hafsteinsson, fyrrverandi þingmaður, hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sæti á lista Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi. Við síðustu alþingiskosningar sat Kristinn H. Gunnarsson í sætinu en hann tilkynnti í Alþingi í dag að hann hefði sagt sig úr þingflokki flokksins líkt og Jón Magnússon gerði nýverið. Innlent 26.2.2009 15:28
Sálfræðingur vill þingsæti Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins býður sig fram í 4.-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Kolbrún hefur verið löggildur sálfræðingur frá 1992 og hlaut sérfræðileyfi Landlæknisembættisins í klínískri sálfræði 2008. Innlent 26.2.2009 14:37
Helga Sigrún hjólar í Siv Helga Sigrún Harðardóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi, hefur ákveðið að gefa kost á sér í fyrsta sæti flokksins í Suðvesturkjördæmi. Siv Friðleifsdóttir situr í því sæti og sækist eftir endurkjöri. Prófkjör um efstu sæti á framboðslista framsóknarmanna í kjördæminu fer fram laugardaginn 7. mars. Ólafur Magnússon, framkvæmdastjóri Mjólku, sækist einnig eftir fyrsta sætinu. Innlent 25.2.2009 14:51
Valgeir Helgi gefur kost á sér fyrir Samfylkinguna Valgeir Helgi Bergþórsson, formaður Ungra jafnaðarmanna í Hafnarfjarði, hefur ákveðið að gefa kost á mér í 3.-5. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi. Með framboði mínu segist hann vera svara kalli kjósenda um endurnýjun á Alþingi. Innlent 25.2.2009 10:37
Anna Margrét vill á þing fyrir Samfylkinguna Anna Margrét Guðjónsdóttir, forstöðumaður skrifstofu Sambands íslenskra sveitarfélaga í Brussel, býður sig fram í 1.-3. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Innlent 24.2.2009 11:38
Magnús Orri vill 3. eða 4. sætið hjá Samfylkingunni Magnús Orri Schram, sölu- og markaðsstjóri útflutnings hjá Bláa Lóninu, býður sig fram í 3. til 4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi í komandi alþingiskosningum. Innlent 24.2.2009 08:59
Birkir og Höskuldur takast á um sæti Valgerðar Birkir Jón Jónsson varaformaður Framsóknarflokksins og Höskuldur Þórhallsson þingmaður vilja báðir leiða framboðslista flokksins í Norðausturkjördæmi. Undanfarin ár hefur Valgerður Sverrisdóttir verið oddviti flokksins í kjördæminu en hún tilkynnti nýverið að hún sækist ekki eftir endurkjöri. Innlent 23.2.2009 10:59
Undrast tal um að seinka kosningum Einar K. Guðfinsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, undrast yfirlýsingar forystumanna ríkisstjórnarinnar að hugsanlega eigi að seinka kjördegi og kjósa til þings á öðrum degi en áður hefur verið rætt um. Að hans mati er þetta sérkennilegt í ljósi þess að Samfylkingin hafi lagt á það áherslu að flýta kosningum í síðustu ríkisstjórn og Vinstri grænir hafi lagt ofuráheerslu að kosningar yrðu sem fyrst. Innlent 23.2.2009 10:43
Björk sækist eftir endurkjöri Björk Guðjónsdóttir, alþingismaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi. Hún sækist eftir 2. sæti á listanum og óskar eftir stuðningi í prófkjörinu sem fram fer 14. mars. Innlent 23.2.2009 10:28
Þóra sækist eftir 2-3. sæti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi Þóra Þórarinsdóttir fyrrverandi ritstjóri fréttablaðsins Gluggans á Suðurlandi hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2.-3. sæti á lista Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi. Innlent 23.2.2009 10:19
Bæjarstjórinn í Garði vill á þing Oddný Harðardóttir, bæjarstjóri í Garði, hefur ákveðið að gefa kost á sér í 2. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðurkjörkjördæmi. Innlent 20.2.2009 16:48
Sækist eftir forystusæti í Reykjavík Sigurður Kári Kristjánsson, alþingismaður, hefur ákveðið að bjóða sig fram í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík sem haldið verður dagana 13. og 14. mars næstkomandi vegna komandi Alþingiskosninga. Sigurður Kári sækist eftir forystusæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og óskar eftir stuðningi í 2.-3. sæti í prófkjörinu. Innlent 20.2.2009 15:47
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent