Landsdómur
5 6 7 8 9 10 11 12 13 … 18 ›
Verjandinn of seinn í skýrslutökur yfir Baldri Vitnaleiðslur yfir Baldri Guðlaugssyni frestuðust um örstutta stund vegna þess að Andri Árnason, verjandi Geirs, var of seinn inn í réttarsalinn nú á ellefta tímanum. Innlent 7.3.2012 11:06
Drógu lappirnar í dótturfélagavæðingu Icesave Ingimundur Friðriksson, einn seðlabankastjóranna fyrrverandi, spurðist sérstaklega fyrir um það á fyrri hluta árs 2008 hvort þvinga mætti Landsbankann til að flytja Icesave í dótturfélag með lagabreytingu því Landsbankamenn höfðu lítið sem ekkert gert til að flýta fyrir flutningi reikningana úr íslenskri ábyrgð. Innlent 7.3.2012 10:57
Landsbankamenn voru ósammála um flutning Icesave til Bretlands Óeining var um það á meðal bankastjóra Landsbankans á árinu 2008 að flytja Icesave-reikningana inn í dótturfélag Landsbankans í Bretlandi. Þetta sagði Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi seðlabankastjóri, í vitnaleiðslum í Landsdómi í morgun. Innlent 7.3.2012 10:42
Allir sammála um að ógerlegt væri að minnka bankakerfið Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi seðlabankastjóri, segir að hugmynd um að minnka bankakerfið hafi verið algerlega óraunhæf þegar komið var fram á árið 2008. Þetta sagði hann þegar Andri Árnason, verjandi Geirs, spurði hann hvort miklar umræður hefðu verið um þetta á því ári. Innlent 7.3.2012 10:15
Halldór túlkar Landsdómsmálið á sinn einstaka hátt Halldór Baldursson, skopteiknari Fréttablaðsins hefur tekið sér stöðu í Landsdómi þar sem hann ætlar að varpa ljósi á málið með sínu einstaka hætti. Halldór er fyrir löngu orðinn ástsælasti skopmyndateiknari þjóðarinnar og hafa myndir hans verið fastur liður á síðum Fréttablaðsins síðustu ár. Þannig hefur Halldór sennilega teiknað flestar þær persónur sem hafa verið kallaðar fyrir Landsdóm áður. Gert er ráð fyrir að afraksturinn birtist á síðum blaðsins á næstu dögum. Innlent 7.3.2012 10:10
Telur vinnu samráðshópsins hafa verið gagnlega Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi seðlabankastjóri, segir að hann hafi talið vinnu samráðshóps um fjármálastöðugleika vera mjög gagnleg. Hann geri ekki athugasemdir við það hvernig hópnum hafi verið stýrt. Þetta kom fram í máli Ingimundar í vitnaleiðslum fyrir landsdómi í morgun. Innlent 7.3.2012 09:32
Ingimundur mættur í dóminn Vitnaleiðslur í landsdómsmálinu hófust að nýju nú strax klukkan níu. Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi seðlabankastjóri, er mættur í vitnastúku. Hann sat í bankastjórn með Davíð Oddssyni og Eiríki Guðnasyni heitnum. Ingimundur býr í Osló en er kominn í Þjóðmenningarhúsið til að bera vitni. Upphaflega var þó gert ráð fyrir að hann myndi gefa dómnum skýrslu í gegnum síma. Innlent 7.3.2012 09:03
Baldur Guðlaugsson og Bolli Þór fyrir Landsdóm í dag Réttarhöldum verður haldið áfram fyrir Landsdómi í dag og munu þá Baldur Guðlaugsson og Bolli Þór Bollason fyrrverandi ráðuneytastjórar, Jón Sigurðsson fyrrverandi stjórnarformaður Fjármálaeftirlitsins og Jón Þ. Sigurgeirsson framkvæmdastjóri skrifstofu bankastjórnar Seðlabankans, bera vitni meðal annarra. Um það bil 50 manns hafa verið boðaðir í skýrslutöku fyrir dómnum. Innlent 7.3.2012 07:02
Dagur 2 í Landsdómsmálinu - 271 Twitter færsla Öðrum degi Landsdómsmálsins lauk rétt fyrir klukkan 18:00 í dag. Davíð Oddsson, fyrrverandi formaður stjórnar Seðlabanka Íslands og núverandi ritstjóri Morgunblaðsins, hafði þá gefið skýrslu í tæplega fjóra tíma, en á undan honum höfðu Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, og Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri og fyrrverandi aðalhagfræðingur seðlabankans, gefið skýrslu. Viðskipti innlent 6.3.2012 22:41
Viðtalið við Davíð Oddsson í heild sinni "Það var kannski þægilegra að gera það, það var í samræmi við óskhyggjuna. Við erum þannig gerð að við viljum heyra góðar fréttir frekar en slæmar,“ sagði Davíð Oddsson, fyrrum formaður bankastjórna Seðlabankans, eftir að hann hafði gefið skýrslu fyrir Landsdómi í dag. Hann var spurður að því afhverju forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar hefðu trúað bankamönnum um stöðu bankanna fyrir hrun frekar en aðvörunarorðum. Innlent 6.3.2012 21:29
Dýrmætar heimildir að myndast í Landsdómsmálinu Hafi einhvern tímann verið ástæða til að nýta undanþágur til að senda beint úr dómssal þá er það í Landsdómsmálinu. Þetta segir sagnfræðingur en dýrmætar heimildir eru að myndast sem öruggara er að geta stuðst við milliliðalaust. Innlent 6.3.2012 18:44
Þessi eiga eftir að bera vitni í Landsdómi Nú eru tveir dagar liðnir af réttarhöldum yfir Geir H. Haarde fyrir Landsdómi. Málið hófst á skýrslutöku yfir Geir sjálfum í gær en í dag mættu þeir Björgvin G. Sigurðsson, Arnór Hannibalsson og Davíð Oddsson. Innlent 6.3.2012 18:18
Vitnaleiðslum lokið í dag Vitnaleiðslum er lokið í dag í Landsdómi sem fram fer í Þjóðmenningarhúsinu . Það hefst aftur klukkan níu í fyrramálið. Þá mun Ingimundur Friðriksson, fyrrverandi seðlabankastjóri bera vitni. Innlent 6.3.2012 18:00
Landsdómur: Annar dagur - Sjötta samantekt Breki Logason og Þorbjörn Þórðarson fréttamenn fara yfir stöðu mála í Landsdómsmálinu og hvernig málin hafa gengið fyrir sig í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Innlent 6.3.2012 17:44
Taldi Fjármálaeftirlitið allt of veikt Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, segist ekki hafa komið áhyggjum sínum af því hve veikt Fjármálaeftirlitið á Íslandi var fyrir hrun formlega á framfæri við stjórnvöld. En hann hafi samt ekki legið á þessari skoðun sinni. Hann hafi óhikað gert Fjármálaeftirlitinu sjálfu grein fyrir þessari skoðun sinni. Innlent 6.3.2012 17:29
"Þú talar ekki svona við mig drengur" Davíð Oddsson segir að í ljós hafi komið við bankahrunið að Fjármálaeftirlitið væri mjög veikt. Þá hafi komið í ljós daginn eftir Glitnir var þjóðnýttur að viðmið Fjármálaeftirlitsins um það hvað var talið tengdir aðilar var orðið mjög frjálslegt Innlent 6.3.2012 16:17
Segir Ingibjörgu hafa viljað 40 milljarða evra lán fyrir bankana Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra lagði til að bönkunum yrði bjargað með því að útvega 30 til 40 milljarða evra. Þetta sagði Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, fyrir landsdómi á fjórða tímanum í dag. Hann sagði að það hefði verið dauði fyrir ríkið að fara þá leið. Innlent 6.3.2012 15:47
Landsdómur: Annar dagur - Þriðja samantekt - myndskeið Breki Logason og Þorbjörn Þórðarson fréttamenn fara yfir stöðu mála í Landsdómsmálinu. Í myndskeiðinu má sjá þegar Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, mætir í Þjóðmenningarhúsið. Úr beinni útsendingu á Vísi klukkan 14. Innlent 6.3.2012 15:21
Bankastjórarnir héldu að bankarnir myndu hrynja 2006 Halldór Ásgrímsson, þáverandi forsætisráðherra, hringdi í Davíð Oddsson, þáverandi seðlabankastjóra, á laugardegi sumarið 2006 vegna áhyggna bankastjóra viðskiptabankanna af því að bankarnir yrðu komnir á hausinn tveimur dögum seinna. Davíð greindi frá þessu í Landsdómi í dag. Innlent 6.3.2012 15:18
Davíð segist hafa fengið áhyggjur löngu fyrir fall bankanna Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóri, segist hafa haft áhyggjur af stöðu bankanna löngu áður en komið var fram á árið 2008. Ekki hafi allir verið sammála honum í fyrstu. Hann sagði að það sem hefði meðal annars valdið áhyggjum hans hafi verið hvernig fyrirtæki hafi verið keypt upp á ógnarhraða, fyrirtæki rekin ár eftir ár án þess að nokkur sýnilegur hagnaður væri af starfsemi þeirra og of mikið gert úr viðskiptavild þegar eignarstaða fyrirtækja var bókfærð. Innlent 6.3.2012 14:52
Davíð mættur í Landsdóm Davíð Oddsson er kominn í hús, en hann mun nú bera vitni fyrir Landsdómi. Davíð var seðlabankastjóri þegar hrunið varð og er ein af lykilpersónunum í sögu hrunsins. Það er því beðið með eftirvæntingu um það hvað Davíð mun segja um málið. Innlent 6.3.2012 14:13
Hefði verið tilgangslaust að hafa Icesave í dótturfélagi "Icesave reikningarnir hefðu aldrei haft neinn tilgang fyrir bankana ef þeir hefðu verið í dótturfélagi,” sagði Arnór Sighvatsson, fyrrverandi aðalhagfræðingur Seðlabankans, fyrir Landsdómi í dag. Innlent 6.3.2012 14:07
Eins og dauðvona krabbameinssjúklingur "Þarna var dauðvona krabbameinssjúklingur að fá hjartaáfall" sagði Arnór um fall bankanna þegar hann bar vitni fyrir Landsdómi nú eftir hádegið. Hann sagði að lausafjárvandi banakanna væri eins og hjartaáfall en eiginfjárvandi eins og krabbamein fyrir banka. Innlent 6.3.2012 13:51
Landsdómur: Annar dagur - Önnur samantekt Breki Logason og Þorbjörn Þórðarson fréttamenn fara yfir stöðu mála í Landsdómsmálinu og það sem gerðist milli klukkan fyrir hádegi í dag. Þá sat fyrir svörum Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra. Innlent 6.3.2012 13:44
Arnór Sighvatsson ber vitni næst Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, er kominn til þess að bera vitni í Landsdómsmálinu. Arnór var aðalhagfræðingur Seðlabankans í aðdraganda hrunsins en varð aðstoðarseðlabankastjóri þegar lögum um bankann var breytt og Davíð Oddsson, Eiríkur Guðnason og Ingimundur Friðriksson létu af störfum. Innlent 6.3.2012 13:28
Vitnaleiðslum yfir Björgvin lokið Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, segist ekkert vita hvers vegna honum var haldið frá fundum með fulltrúum ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans þegar ákveðið var að ríkissjóður tæki yfir 75% hlut í Glitni í lok september 2008. Innlent 6.3.2012 12:42
Beiðni um beina útsendingu frá Landsdómi hafnað Landsdómur hefur hafnað beiðni fréttastofu Stöðvar 2, Bylgjunnar og Vísis, um að að koma fyrir myndavél í dómsal þannig að hægt verði að senda réttarhöldin yfir Geir H. Haarde út í beinni útsendingu. Innlent 6.3.2012 12:16
Tóku Icesave-vandann mjög alvarlega Íslensk stjórnvöld tóku Icesave-vandann mjög alvarlega, af því að hann ógnaði stöðugleika á viðkvæmum tímum,” sagði Björgvin G. Sigurðsson í vitnaleiðslum fyrir Landsdómi nú skömmu fyrir hádegið. Hann sagði að vandinn hefði oft verið ræddur. Í huga Geirs Haarde hafi aldrei komið til greina að Ísland tæki á sig ábyrgð á reikningum sem íslensk yfirvöld tóku engan þátt í að stofna. Innlent 6.3.2012 12:03
Landsdómur: Annar dagur - Fyrsta samantekt Breki Logason og Þorbjörn Þórðarson fréttamenn fara yfir stöðu mála í Landsdómsmálinu og það sem gerðist milli klukkan 10 og 11 í morgun. Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, er mættur í Þjóðmenningarhúsið en Björgvin G. Sigurðsson, fyrrverandi viðskiptaráðherra, sat fyrir svörum. Innlent 6.3.2012 11:55
Landsdómur: Dagur 2 hafinn - myndskeið „Þetta gengur allt samkvæmt áætlun," sagði Geir H. Haarde þegar hann mætti fyrir Landsdóm laust fyrir klukkan 10 í morgun. Innlent 6.3.2012 11:27
Keppast við að tjá sig um skrif Þórðar: Kristrún taki stóra áhættu með að halda honum á lista Innlent