Suárez og Messi með sjö mörk saman í 7-0 sigri á strákunum hans Gary Neville Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. febrúar 2016 22:16 Það var gaman hjá þeim Luis Suarez og Lionel Messi í kvöld. Vísir/Getty
Barcelona er svo gott sem komið í bikarúrslitaleikinn á Spáni eftir ótrúlegan 7-0 sigur á Valencia í kvöld í fyrri leik liðanna í undanúrslitum spænska Konungsbikarsins en leikurinn fór fram á Camp Nou í Barcelona. Luis Suárez og Lionel Messi fóru á kostum í kvöld og voru hreinlega óstöðvandi. Þeir skoruðu öll sjö mörkin, Suárez var með fernu og Messi skoraði þrennu. Auk þess að skora fjögur mörk þá átti Luis Suárez einnig eina stoðsendingu á Messi en Neymar lagði upp mark fyrir bæði Luis Suárez og Lionel Messi í kvöld. Luis Suárez skoraði tvö fyrstu mörkin á fyrstu tólf mínútum leiksins og Messi skoraði síðan þrjú mörk frá 29. til 74. mínútu og kom Barcelona í 5-0. Luis Suárez átti síðan lokaorðið þegar hann skoraði tvö síðustu mörk leiksins á 83. og 88. mínútu. Það hefur lítið gengið hjá Valenica-liðinu síðan að Gary Neville tók við og liðið hefur enn ekki unnið í spænsku deildinni. Liðið fór hinsvegar áfram í bikarnum en eftir þessa útreið í kvöld er erfitt að sjá Neville halda starfi sínu mikið lengur. Seinni leikurinn á heimavelli Valencia í næstu viku er aðeins formsatriði eftir þessi úrslit og nú er mesta spennan að sjá hvort Sevilla eða Celta Vigo mæti Barcelona í úrslitaleiknum.
Spænski boltinn Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira