Fréttir
277 278 279 280 281 282 283 284 285 … 334 ›
Ekkert alvöru inngrip í frumvarpi um Airbnb Þingmaður segir frumvarp ráðherra um Airbnb íbúðir ekki leiðrétta þá vondu þróun sem hefur átt sér stað á fasteignamarkaði. Löggjafin verði að stíga lengra inn því annars er inngripið lítið sem ekkert til skamms tíma. Innlent 13.2.2024 11:20
Minnast hlýju og glettni mannsins með risastóra hjartað Fjölmargir minnast Sr. Karls Sigurbjörnssonar biskups sem lést í gærmorgun 77 ára eftir baráttu við krabbamein. Fólk minnist manns með risastórt hjarta, bros á vör og húmorinn í farteskinu. Innlent 13.2.2024 11:11
Eftirlýst í Rússlandi vegna sovéskra minnisvarða Yfirvöld í Rússlandi hafa gefið út handtökuskipun á Kaja Kallas, forsætisráðherra Eistlands. Taimar Peterkop, nokkurskonar ráðuneytisstjóri ríkisstjórnar Eistlands er einnig eftirlýstur í Rússlandi en talskona utanríkisráðuneytis Rússlands segir þau eftirlýst vegna niðurrifs á sovéskum minnisvörðum. Erlent 13.2.2024 10:55
Eyjamenn hoppandi reiðir út í Þórdísi Kolbrúnu „Þann 2. febrúar síðastliðinn var undirrituð fyrir þína hönd krafa um að Vestmannaeyjabær afhendi ríkinu stóran hluta Heimaeyjar og allar úteyjar og sker sem sameiginlega mynda það sem heitir Vestmannaeyjar.“ Innlent 13.2.2024 10:33
Segir það munu taka Evrópu tíu ár að ná vopnum sínum Armin Papperger, forstjóri vopnaframleiðandans Rheinmetall, segir það munu taka Evrópu tíu ár að ná vopnum sínum á ný. Hann segir skotfærabirgðir álfunnar á þrotum. Erlent 13.2.2024 09:06
Mikilvægt að fólk fái áheyrn og viðurkenningu á vanda sínum Framkvæmdastjóri og fagstjóri hjá Píeta samtökunum segja áríðandi að fólk fái aðstoð strax við bráðum geðrænum vanda. Þá sé einnig mikilvægt að það sé betri eftirfylgd í geðheilbrigðiskerfinu. Of margir upplifi að þeir fái ekki aðstoð þar. Innlent 13.2.2024 08:35
Heilbrigðisráðherra segir að hlustað verði á heimilislækna „Auðvitað munum við bregðast við þessari beiðni Félags íslenskra heimilislækna og leysa þetta mál, vegna þess að það skiptir miklu máli,“ sagði Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra á Alþingi í gær um tilvísanir vegna barna. Innlent 13.2.2024 07:37
Kólnar tímabundið í kvöld og í nótt Lægðin sem hefur haldið að okkur norðanáttinni fjarlægist nú smám saman og við tekur hæð suðvestur af landinu og lægðardrag á Grænlandssundi. Undir kvöld verður vindáttin orðin suðvestlæg. Gul viðvörun verður í gildi suðaustantil vegna hvassviðris í dag. Veður 13.2.2024 07:13
Telur að lögregla hafi átt við sönnunargögn Sveinn Andri Sveinsson, verjandi Sindra Snæs Birgissonar sakbornings í hryðjuverkamálinu svokallaða, telur að lögregla hafi átt við sönnunargögn í málinu, nánar tiltekið við byssu. Innlent 13.2.2024 07:01
„Komast hvert? Til tunglsins? Hvert á að flytja þetta fólk?“ Leiðtogar á Vesturlöndum virðast vera að missa þolinmæðina gagnvart Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, og aðgerðum Ísraelshers á Gasa. Erlent 13.2.2024 06:44
„Hvert getum við farið?“ Palestínskir flóttamenn og aðrir íbúar í Rafah á suðurhluta Gasa eru gríðarlega óttaslegnir í aðdraganda innrásar Ísraelshers. Harðar loftárásir hersins hafa dunið á borginni síðustu daga. Erlent 12.2.2024 23:34
Hægt verði að auka aðgengi að Grindavík Almannavarnir hafa endurmetið heildaráhættu fyrir Grindavík með tilliti til verðmætabjörgunar íbúa og fyrirtækja fyrir næstkomandi miðvikudag til föstudaga. Niðurstaðan er sú að hægt sé að opna fyrir aukið aðgengi að Grindavík. Innlent 12.2.2024 23:16
Sjálfstæðismenn í Grindavík vilja rýmri aðgengisreglur Sjálfstæðisfélag Grindavíkur skorar á ríkisstjórnina að rýmka reglur um aðgengi íbúa að eignum sínum í Grindavík. Þetta kemur fram í ályktun félagsins. Innlent 12.2.2024 22:35
Spáir næsta gosi 1. mars Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir líklegt að næsta eldgos á Reykjanesskaga verði í kringum 1. mars. Útlit sé fyrir að sama mynstur og hefur verið ríkjandi muni endurtaka sig. Þó geti jarðskjálfti eða annar atburður alltaf breytt stöðunni. Innlent 12.2.2024 21:50
Íhugar forsetaframboð af alvöru Jón Gnarr, grínisti, leikari, rithöfundur og fyrrverandi borgarstjóri, veltir því fyrir sér af alvöru að fara í forsetaframboð. Innlent 12.2.2024 21:48
Kraftaverk við hitaveitulögnina Íbúar á Reykjanesi ættu allir að vera komnir aftur með heitt vatn á ný í síðasta lagi í nótt. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir að um kraftaverk sé að ræða en fjörutíu pípulagningamenn eru í viðbragðsstöðu í kvöld. Innlent 12.2.2024 21:42
Tvær flugvélar rákust saman í háloftunum Tvær einkaflugvélar rákust saman á flugi við Vestmannaeyjar í gær. Flugmaður og farþegi voru í annarri vélinni en aðeins flugmaður í hinni. Innlent 12.2.2024 20:40
Veist að þingmanni: „Hann langaði bara að hræða mig“ Formaður utanríkismálanefndar varð fyrir aðkasti mótmælanda fyrir utan Alþingi í dag. Maður sem kom askvaðandi að henni þegar hún kom út úr þinghúsinu kastaði hlut í bíl hennar og hellti úr skálum reiði sinnar. Innlent 12.2.2024 19:52
Staðfastur á því að árás með miklu mannfalli hafi verið afstýrt Fulltrúi hjá Europol, sem er verkefnastjóri hóps sem skoðar hryðjuverk hægrisinnaðra öfgamanna, gerði tvær skýrslur um hryðjuverkamálið svokallaða, en Europol kom að rannsókn málsins. Hann bar vitni í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Innlent 12.2.2024 19:41
Breiðfylkingin segir SA eiga næsta leik Forystufólk breiðfylkingarinnar kom saman til fyrsta fundar innan eigin raða eftir að þau lýstu viðræðurnar við SA árangurslausar síðast liðinn föstudag. Þá lá fyrir samkomulag um launaliðinn og samningstíma til fjögurra ára Innlent 12.2.2024 19:30
Þrátt fyrir mikið tap er forstjóri Play bjartsýnn Það skýrist á næstu vikum hvort stærstu hluthafar Play hafi áhuga á leggja félaginu til aukið hlutafé. Félagið hefur tapað meiru fé á fyrstu þremur árum sínum en WOW tapaði á sex árum. Forstjóri Play er bjartsýnn og segir félagið ekki bera neinar vaxtaberandi skuldir. Innlent 12.2.2024 19:16
Blæs á gagnrýni um að ekkert hafi verið gert Forstjóri HS Orku vísar á bug gagnrýni á að ekki hafi verið lögð varalögn við Svartsengi. Vinna síðustu þriggja ára hafi nýst vel. Innlent 12.2.2024 18:52
Ríkið vill fá stóran hluta Vestmannaeyja Ríkið hefur gert kröfu um að Vestmannaeyjabær afhendi ríkinu stóran hluta Heimaeyjar, auk allra úteyja og skerja sem mynda Vestmannaeyjar. Bæjarstjórn Vestmannaeyjabæjar furðar sig á málinu og krefst þess að krafan verði dregin til baka. Innlent 12.2.2024 18:29
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Heitt vatn streymir að nýju á hús á Suðurnesjum en ný heitavatnslögn frá Svartsengi var tekin í notkun í morgun. Við verðum í beinni frá Reykjanesi í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við bæjarstjóra Reykjanesbæjar um stöðuna. Þá skoðum við nýju lögnina í fylgd með forsætisráðherra og forstjóra HS Orku sem segja að enn sé margt óunnið. Innlent 12.2.2024 17:59
Fólk búið undir alls konar vendingar Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, heimsótti Svartsengi í dag og bar nýja hitaveitulögn augum. Hún segir þrekvirki hafa verið unnið á staðnum. Mikilvægt sé að byrja að líta til framtíðar og huga að náttúruvá í framtíðarskipulagi. Innlent 12.2.2024 17:43
Spyr hvort eigi ekki líka að girða gamla fólkið af Formaður Landssambands eldri borgara segir uppbyggingu húsnæðis fyrir eldra fólk í Gunnarshólma vera vonda hugmynd sem gangi þvert gegn öllum ríkjandi áherslum í málaflokknum. Hann efast um að velferð eldra fólks hafi ráðið för við ákvörðunina. Innlent 12.2.2024 17:13
Karl Sigurbjörnsson biskup er látinn Karl Sigurbjörnsson biskup lést í morgun á gjörgæsludeild Landspítalans í Reykjavík en hann var 77 ára að aldri. Innlent 12.2.2024 16:40
Sagður kalla Netanjahú drullusokk Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, er sagður pirraður út í Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísrael, og hefur kallað hann drullusokk. Það hefur hann meðal annars gert í samræðum við stuðningsmenn forsetaframboðs síns og snýst reiði forsetans að mestu um það hvernig Netanjahú hefur haldið á spöðunum varðandi hernað Ísrael á Gasaströndinni. Erlent 12.2.2024 16:16
Kennedy biðst afsökunar á Super Bowl-auglýsingu Robert F. Kennedy yngri hefur beðið fjölskyldu sína afsökunar á auglýsingu tengdri framboði hans til forseta Bandaríkjanna. Hluti af auglýsingu hans fór í að sýna andlit frænda hans heitins, John F. Kennedy, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Erlent 12.2.2024 16:10
Sáralítið mælist af loðnu Önnur yfirferð loðnumælinga á árinu er langt komin og segir í tilkynningu Hafrannsóknarstofnunnar að „mjög lítið“ hafi mælst af loðnu. Eftir standi að fara yfir Vestfjarðamið og Suðausturmið. Innlent 12.2.2024 15:44