Fréttir
320 321 322 323 324 325 326 327 328 … 334 ›
Bónorðsferðin í uppnám vegna lélegs pakkadíls Jóhannes Lange og Anita Engley Guðbergsdóttir ganga í hjónaband í dag eftir átta mánaða trúlofun. Jóhannes bað Anitu í Feneyjum, í langþráðu ferðalagi. Þrátt fyrir að ferðin hafi endað með trúlofun fór flest annað úrskeiðis. Innlent 13.4.2024 15:01
Íranskir sérsveitarmenn tóku stjórn á flutningaskipi Hermenn frá Byltingarvörðum Írans tóku í morgun stjórn á flutningaskipi nærri Hormuz-sundi. Skipinu var í kjölfarið siglt inn í landhelgi Írans en skipið er sagt tengjast Ísrael, þó því sé siglt undir fána Portúgal. Erlent 13.4.2024 14:44
Aðsóknarmet slegið í Listaháskólanum Tvöfalt fleiri fleiri sóttu um nám í Listaháskóla Íslands í ár heldur en í fyrra. Skammt er síðan tilkynnt var að skólagjöld yrðu felld niður frá og með haustönn ársins 2024. Rektor hefur ekki áhyggjur af auknu brottfalli nemenda og fagnar aukinni aðsókn. Hún býst við enn frekari aðsókn á næsta ári. Innlent 13.4.2024 14:17
Sirskí segir stöðuna hafa versnað töluvert Staða Úkraínumanna á víglínunni í Austur-Úkraínu hefur versnað töluvert á undanförnum dögum. Þetta segir Oleksandr Sirskí, yfirmaður herafla Úkraínu, en hann segir Rússa hafa gefið töluvert í á undanförnum vikum. Erlent 13.4.2024 14:01
Hádegisfréttir Bylgjunnar Litlu munar á fylgi forsetaframbjóðandanna Katrínar Jakobsdóttur og Baldurs Þórhallssonar samkvæmt nýrri könnun. Prófessor í stjórnmálafræði segir þó geta skipt sköpum að kjósendahópur Katrínar líklegri til að mæta á kjörstað þar sem um eldra fólk sé að ræða. Rætt verður við hana í hádegisfréttum á Bylgjunni. Innlent 13.4.2024 12:31
„Minn tími er ekki búinn“ Bjarni Benediktsson, nýr forsætisráðherra, segist sannarlega hafa fengið sinn skerf af skoðunum frá sjálfskipuðum sérfræðingum. Hann reyni að láta þær ekki trufla sig og í mörg ár hafi rödd innra með honum sagt að „hans tími væri ekki búinn.“ Þó sé mikilvægt að svara fyrir sig á málefnalegum nótum en ekki með sleggjudómum eða netárásum. Innlent 13.4.2024 12:30
Eldri kjósendur hallast að Katrínu Litlu munar á fylgi forsetaframbjóðendanna Katrínar Jakobsdóttur og Baldurs Þórhallssonar samkvæmt nýrri könnun. Prófessor í stjórnmálafræði segir geta skipt sköpum að kjósendahópur Katrínar sé líklegri til að mæta á kjörstað þar sem um eldra fólk sé að ræða. Innlent 13.4.2024 11:32
Dyravörður á Hax handtekinn Dyravörður á skemmtistaðnum HAX í miðbæ Reykjavíkur var handtekinn í nótt, grunaður um líkamsárás. Lögregla var með mikinn viðbúnað vegna málsins en henni barst tilkynning um hugsanlega stunguárás og slagæðablæðingu. Svo reyndist þó ekki vera. Innlent 13.4.2024 10:39
Skjálfti á Reykjanesi fannst á höfuðborgarsvæðinu Jarðskjálfti varð á Reykjanesi um klukkan tíu í morgun og fannst hann á höfuðborgarsvæðinu. Skálftinn var 3,3 stig, samkvæmt upplýsingum frá Náttúruvárvakt Veðurstofu íslands. Innlent 13.4.2024 10:06
Bjarni býður til fundar Opinn fundur Sjálfstæðisflokksins fer fram á Hilton Reykjavík Nordica í dag. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra ávarpar fundinn ásamt öðrum ráðherrum flokksins. Innlent 13.4.2024 10:00
Sex stungnir til bana í verslunarmiðstöð Sex voru stungnir til bana í verslunarmiðstöð í Sydney í Ástralíu í morgun þegar maður fór að stinga fólk af handahófi. Margir eru sagðir særðir og þar á meðal ungt barn en árásarmaðurinn var skotinn til bana af lögregluþjóni. Erlent 13.4.2024 09:35
Alls 42 andmælt ástandsskoðunum NTÍ í Grindavík Alls hafa 42 sent inn andmæli vegna matsgerðar Náttúruhamfaratryggingar Íslands (NTÍ) vegna tjónamála í kjölfar náttúruhamfaranna í Grindavík. Alls hafa borist 495 tilkynningar til NTÍ þannig um er að ræða um 8,5 prósent tilkynninga. Innlent 13.4.2024 08:59
Segir útséð um hvalveiðar í sumar Kristján Loftsson, eigandi Hvals hf, segir útséð um að hvalveiðar fari fram í sumar. Matvælaráðuneytið hefur til skoðunar að veita fyrirtækinu starfsleyfi til eins árs í senn en Kristján segir að með því sé grunnur lagður að því að gera starfsemina óstarfshæfa. Innlent 13.4.2024 08:40
Mjótt á munum á milli Katrínar og Baldurs Lítill munur er á fylgi Katrínar Jakobsdóttur og Baldurs Þórhallssonar í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup um fylgi forsetaframbjóðenda. Innlent 13.4.2024 07:52
Starfsmaður á skemmtistað grunaður um líkamsárás Starfsmaður á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur var handtekinn í nótt, grunaður um líkamsárás. Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans. Innlent 13.4.2024 07:19
Sonur Biden kemst ekki hjá réttarhöldum Alríkisdómari hafnaði kröfu Hunters Biden, sonar Bandaríkjaforseta, um að vísa frá ákærum vegna skotvopnalagabrota í dag. Réttarhöld yfir Biden gætu nú hafist í sumar í miðri kosningabaráttu föður hans. Erlent 12.4.2024 23:54
Ók stórum flutningabíl viljandi á opinbera byggingu Einn er látinn og þrettán slasaðir eftir að ökumaður stórs flutningabíls ók honum viljandi inn í opinbera byggingu í Texas í Bandaríkjunum í dag. Manninum hafði verið synjað um endurnýjun á ökuréttindum. Erlent 12.4.2024 23:14
Horfa til þess að leigja húsin sem þau selja í Grindavík Forseti bæjarstjórnar Grindavíkur segist vita til þess að íbúar bæjarins horfi til þess að geta jafnvel leigt húsin sín aftur þrátt fyrir að þeir selji þau ríkinu. Gengið var frá fyrstu kaupsamningunum um íbúðarhúsnæði í Grindavík í dag. Innlent 12.4.2024 22:29
Óttast að Íran gæti ráðist á Ísrael á allra næstunni Bandaríkjastjórn segir meiriháttar árás Írana á Ísrael gæti verið yfirvofandi. Spenna á milli ísraelska og íranskra stjórnvalda hefur stigmagnast eftir að íranskur herforingi var felldur í loftárás í Sýrlandi fyrir hálfum mánuði. Erlent 12.4.2024 21:52
Safnar undirskriftum gegn foreldrum Nemandi í 10.bekk Laugalækjarskóla segir kennara hafa hemil á árgangnum alla daga og því sé ekkert því til fyrirstöðu að þeir fari einir með krökkunum í útskriftarferð. Hún stofnaði því undirskriftalista til að mótmæla fjölda foreldra í ferðina. Innlent 12.4.2024 20:31
Að óbreyttu endi málið með lögsóknum Framkvæmdastjóri félags atvinnurekenda segir vonbrigði að nýr matvælaráðherra vilji ekkert aðhafast vegna nýrra og afar umdeildra búvörulaga. Hann hefði talið að betur færi á því að friður ríkti um greinina í stað ósættis og málaferla næstu árin. Innlent 12.4.2024 19:57
Hafa sterkar skoðanir á hrókeringum og nýrri ríkisstjórn Fyrsti fundur nýrrar ríkisstjórnar undir forystu Bjarna Benediktssonar fór fram í morgun. Þjóðin hefur eitt og annað við breytingarnar að athuga og flestir sem fréttastofa ræddi við voru ófeimnir við að segja sína skoðun á málunum. Innlent 12.4.2024 19:45
Kviknaði í rafhlaupahjóli í Breiðholti Eldur kviknaði í rafhlaupahjóli í sameign í blokk í Bakkahverfi í Breiðholti nú í kvöld. Mikill reykur hlaust af brunanum og þurftu slökkviliðsmenn að reykræsta sameignina. Innlent 12.4.2024 19:41
Almannavarnir greiða umframorkunotkun í Grindavík Almannavarnir hafa ákveðið að hjálpa fasteignaeigendum í Grindavík við að standa straum af kostnaði vegna hærri rafmagns- og hitaveitureikninga á meðan aðgerðir til að verja hús fyrir frostskemmdum í kjölfar náttúruhamfaranna stóðu yfir. Innlent 12.4.2024 16:49
Skotinn í höfuðið fyrir framan tólf ára son sinn Sænskur maður var skotinn til bana fyrir framan tólf ára son sinn á miðvikudaginn. Feðgarnir voru þá að ganga í gegnum undirgöng og á leið í sund í bænum Skärholmen, úthverfi Stokkhólms, þegar hinn 39 ára gamli Mikael Kängan var skotinn af ungum mönnum. Erlent 12.4.2024 16:13
Táningar sakaðir um skipulagningu hryðjuverkaárása Lögregluþjónar í Þýskalandi hafa handtekið fjóra táninga, tvo drengi og tvær stúlkur, sem grunuð eru um undirbúning hryðjuverkaárása í nafni Íslamska ríkisins. Þrjú voru handtekinn í Norðurrín Vestfalíu og einn í Stuttgart. Erlent 12.4.2024 15:25
Fyrstu kaup Þórkötlu í Grindavík gengin í gegn Fasteignafélagið Þórkatla gekk í dag frá fyrstu kaupsamningunum um kaup íbúðarhúsnæðis í Grindavík. Viðkomandi fasteignareigendur munu fá greitt út 95 prósent af kaupverði eigna þeirra í næstu viku. Innlent 12.4.2024 15:15
Páll segir dóminn efla sig frekar en hitt Páll Vilhjálmsson framhaldsskólakennari og bloggari var í dag sakfelldur í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ærumeiðingar um Aðalstein Kjartansson, blaðamann Heimildarinnar. Hann ætlar að áfrýja málinu. Innlent 12.4.2024 14:50
Hæstiréttur skoðar ekki ellefu ára gamalt slys í Sinfó Hæstiréttur mun ekki taka fyrir skaðabótamál sem sviðsmaður Sinfóníuhljómsveitar Íslands höfðaði gegn hljómsveitinni og tónlistarhúsinu Hörpu vegna vinnuslyss. Innlent 12.4.2024 14:40
Gosið helst stöðugt og landris heldur áfram Eldgos sem hófst í Sundhnúksgígsröðinni þann 16. mars síðastliðinn helst enn stöðugt og hefur landris í Svartsengi haldið áfram á svipuðum hraða síðan í byrjun apríl. Innlent 12.4.2024 14:30