Fréttir
329 330 331 332 333 334 … 334 ›
Óvinsældir Bjarna sláandi Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir óvinsældir Bjarna Benediktssonar samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Maskínu sláandi. Innlent 30.12.2023 19:55
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður farið yfir nýjar niðurstöður könnunar Maskínu sem sýna að utanríkisráðherra er sá ráðherra sem flestir telja hafa staðið sig verst á kjörtímabilinu. Innlent 30.12.2023 18:00
Hræðilegt og sorglegt morðmál skekur Danmörku 81 árs gamall maður hefur verið handtekinn fyrir að myrða eiginkonu sína þremur mánuðum eftir að þau stigu fram í fjölmiðlum og lýstu yfir ósk sinni að deyja. Erlent 30.12.2023 17:39
Einstæð móðir rukkuð um tvöfalda leigu Kolbrún Jónsdóttir, einstæð móðir, hefur verið rukkuð um leigu janúarmánaðar fyrir íbúð sína í Grindavík. Líkt og aðrir íbúar bæjarins fór hún úr bænum þegar hann var rýmdur þann tíunda nóvember, en síðan hefur hún byrjað að leigja íbúð í Hafnarfirði. Hún situr því uppi með tvær rukkanir fyrir leigu í næsta mánuði. Innlent 30.12.2023 16:11
Hæfðu flóttamannabúðir á Gasa þar sem mannfall nálgast 22 þúsund Herflugvélar á vegum Ísraelshers hæfðu tvær flóttamannabúðir á miðri Gasaströndinni í dag og er lítið útlit fyrir að nokkurt hlé verði gert á átökum fyrir botni Miðjarðarhafs. Mannfall þar er nú sagt nálgast 22 þúsund manns. Hátt settur ráðamaður innan Hamas segir samtökin enn standa fast á því að fleiri gíslum verði ekki sleppt úr haldi þeirra fyrr en komið verði á ótímabundnu vopnahléi á svæðinu. Erlent 30.12.2023 15:24
Óttast að Grindvíkingar í göngutúr endi í sprungum Lögreglan á Suðurnesjum varar fólk í Grindavík við það að ganga utan vega um bæinn. Fólk gæti lent í sprungum án þess að verða þeirra vart. Innlent 30.12.2023 14:24
Einn í biluðum báti og björgunarsveitin á leiðinni Viðbragðsaðilar hafa verið kallaðir út frá Garði, Sandgerði, og Reykjanesbæ vegna lítils báts sem er úti við Garðskagavita. Í bátnum er einn maður um borð. Innlent 30.12.2023 14:05
Huga að útigangskindum í Borgarfirði - ein vafin í gaddavír Hópur fólks lagði af stað í hádeginu í Þverárhlíð í Borgarfirði til að kynna sér ástand tuttugu kinda, sem eru þar á útigangi og engin virðist hugsa um. Kindurnar eru mjög styggar og ein þeirra öll vafinn í gaddavír. Fólkið fór með hey á staðinn. Innlent 30.12.2023 13:03
Segir lögreglustjórann á Vestfjörðum vanhæfan í málinu Landssamband veiðifélaga hyggst kæra ákvörðun lögreglustjórans á Vestfjörðum um að hætta rannsókn á slysasleppingu eldislax úr fiskeldisstöð Arcitc Sea Farm í Patreksfirði í ágúst. Framkvæmdastjóri sambandsins segir ljóst að vanhæfi lögreglustjórans á Vestfjörðum í þessu máli sé algjört. Innlent 30.12.2023 12:13
Fengu boð frá neyðarsendi en allt var í himnalagi Áhöfnin á TF-SIF, eftirlitsflugvél Landhelgisgæslunnar, var kölluð út í gærkvöldi eftir að stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning í gegnum gervitungl um að neyðarsendir væri virkur djúpt suður af Reykjanesi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Landhelgisgæslunni, en þar kemur einnig fram að þyrlusveit gæslunnar hafi verið í viðbragðsstöðu á Reykjavíkurflugvelli vegna málsins. Innlent 30.12.2023 12:06
Áfram heimilt að dvelja í bænum þó að lögreglustjóri mæli gegn því Íbúum Grindavíkur er áfram heimilt að fara í bæinn og dvelja heima hjá sér þrátt fyrir nýtt hættumatskort sem bendi til þess að auknar líkur séu á eldgosi norðan Grindavíkur. Þetta tilkynnir lögreglustjórinn á Suðurnesjum sem fundaði í dag um stöðu mála með fulltrúum almannavarna. Innlent 30.12.2023 12:04
Hádegisfréttir Bylgjunnar Landssamband veiðifélaga hyggst kæra ákvörðun lögreglustjórans á Vestfjörðum um að hætta rannsókn á slysasleppingu eldislax úr fiskeldisstöð Arcitc Sea Farm í Patreksfirði í ágúst. Framkvæmdastjóri sambandsins segir ljóst að vanhæfi lögreglustjórans á Vestfjörðum í þessu máli sé algjört. Innlent 30.12.2023 11:46
Óprúttnir aðilar þykjast vera í Hjálparsveit skáta Hjálparsveit skáta í Kópavogi segir óprúttna aðila nú nota nafn sveitarinnar í annarlegum tilgangi. Innlent 30.12.2023 11:13
Úkraínsk körfuboltahetja fórst í stórfelldum árásum Rússa Einn fórst og fjórir særðust í loftárásum Úkraínuhers á landamærahéraðið Belgorod í suðurhluta Rússlands í gær. Þetta segir héraðsstjóri Belgorod en Bryansk-hérað varð sömuleiðis fyrir eldflaugaárásum Úkraínumanna. Erlent 30.12.2023 10:28
Bílvelta við Lögbergsbrekku Bílvelta varð við Lögbergsbrekku um hálf tíuleytið í dag. Brekkan er skammt frá höfuðborgarsvæðinu þegar keyrt er austur fyrir fjall. Innlent 30.12.2023 10:16
Tilbúin að verða formaður flokksins „Ég held ég sé nú bara mjög venjuleg stelpa af Skaganum,“ segir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttur, fjármála- og efnahagsráðherra, spurð um hver hún sé. Hún segist tilbúin í að verða formaður Sjálfstæðisflokksins og vonast til að flokksfólk treysti henni til þess að sinna því hlutverki. Innlent 30.12.2023 10:00
Þessir Íslendingar kvöddu á árinu 2023 Fjölmargir þjóðþekktir Íslendingar kvöddu á árinu 2023 sem senn er á enda. Innlent 30.12.2023 09:00
Áramótaveðrið lítur þokkalega út Spáð er austanátt með fimm til þrettán metrum á sekúndu en hvassast með suðurströndinni. Skammt vestur og suðvestur af landinu er lægðakerfi sem viðheldur austlægum áttum á landinu í dag og á morgun. Veður 30.12.2023 07:47
Ráðgáta um íslenskt ljóð í kastalaþorpi á Norður-Spáni Íslenskan telst eitt fámennasta og minnst útbreidda tungumál jarðarbúa. Fréttamaður Stöðvar 2 varð því ekki lítið hissa þegar hann fyrir hreina tilviljun sá ljóð á íslenskri tungu letrað á steinvegg í afskekktu kastalaþorpi á Norður-Spáni. Innlent 30.12.2023 07:37
Fá ekki að leigja eitt frægasta brauðbaksturssvæði landsins Sveitarstjórn Bláskógabyggðar hefur hafnað erindi heilsulindarinnar Laugarvatn Fontana um gerð leigusamnings um hverasvæðið við Laugarvatn. Sveitarstjóri segir hugmyndina ekki hafa þótt framkvæmanlega. Innlent 30.12.2023 07:01
Brot af því besta úr Kryddsíldinni: „Þú ert sjálfur dóni, Davíð“ Kryddsíld verður á dagskrá Stöðvar 2 klukkan 14:00 á gamlársdag, líkt og síðustu 33 ár. Hægt verður að kaupa stakan þátt fyrir þá sem ekki eru áskrifendur Stöðvar 2. Innlent 30.12.2023 07:01
Minnst þrjátíu látnir í umfangsmestu loftárásum Rússa til þessa Minnst þrjátíu manns létu lífið í umfangsmestu loftárásum Rússa í Úkraínu til þessa. Einnig særðust meira en 160 þegar sprengjum ringdi yfir Kænugarð, Ódessu, Dnípropetrovsk, Karkív og Lvív í morgun. Erlent 29.12.2023 22:32
Ísraelsmenn dregnir fyrir dóm fyrir þjóðarmorð Suður-Afríka kærði í dag Ísraelsríki í Alþjóðadómstólnum fyrir brot á þjóðarmorðslögum vegna innrásar þess í Gasa. Erlent 29.12.2023 20:33
Ingibjörg bar þremur kálfum á Tannstaðabakka Kýrin Ingibjörg á bænum Tannstaðabakka í Hrútafirði gerði sér lítið fyrir í vikunni og bar þremur kálfum, tveimur nautum og einni kvígu. Aðeins einn kálfur var lifandi, annað nautið. Innlent 29.12.2023 20:30
Hundraðasta ferð ársins á Esjuna tileinkuð Klöru Vaskir göngugarpar arka nú upp Esjuna og einn þeirra í hundraðasta sinn á árinu. Ferð þessi er tileinkuð ungri hetju sem slasaðist alvarlega í hoppukastalaslysi. Innlent 29.12.2023 20:03
Sex milljarða Grindavíkurgarðar miklu stærri en í Svartsengi Auknar líkur eru á eldgosi norðan Grindavíkur og hætta er talin á hraunflæði inn í bæinn. Byrjað verður að reisa gríðarstóra varnargarða við Grindavík strax eftir helgi. Bæjarstjóri telur að uppbygging garðanna fái Grindvíkinga til að flytja heim. Innlent 29.12.2023 20:00
Gefur ekkert fyrir tal um ómöguleika og vill senda út fulltrúa til að hjálpa Ríkisstjórnin segir í skoðun hvernig hægt sé að ná fólki með dvalarleyfi á Íslandi út úr Gasa en dómsmálaráðherra segir stöðuna flókna og að horft sé til hinna Norðurlandaþjóðanna og fullyrðir að þar hafi engar fjölskyldusameiningar átt sér stað. Íslensk baráttukona gefur lítið fyrir tal um ómöguleika og segir að Ísland þurfi, eins og aðrar þjóðir, að senda sinn fulltrúa út til hjálpar fólkinu. Innlent 29.12.2023 19:48
Létust í snjóflóði á skíðum í Ölpunum Bresk kona og sonur hennar eru sögð hafa látist í frönsku Ölpunum þegar snjóflóð féll við Mont Blanc. Erlent 29.12.2023 19:24
Mátti ekki gefa börnunum perlur íslenskrar myndlistar skömmu fyrir andlátið Átta málverk, öll eftir merka íslenska myndlistarmenn, voru miðlæg í dómi sem Hæstiréttur kvað upp í dag. Málið varðaði gerning aldraðs manns þar sem hann ráðstafaði verkunum til afkomenda sinna. Það gerði hann í desember 2018, tveimur mánuðum áður en hann lést 95 ára að aldri. Innlent 29.12.2023 19:22
Danir senda freigátu í Rauðahafið Danir ætla að senda freigátu í Rauðahafið og Adenflóa sem öryggisráðstöfun í kjölfar fjöldamargra árása Húta á svæðinu. Þetta segja utanríkisráðherra Lars Løkke Rasmussen og varnamálaráðherra Troels Lund Poulsen. Erlent 29.12.2023 18:46