Fréttir

Tekjulágir borga minna fyrir matinn og borgar­full­trúar meira

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri lagði til á fundi borgarráðs í dag að tekjulágir geti fengið heimsenda máltíð og máltíð í félagsmiðstöðvum Reykjavíkurborgar á 1.500 krónur en ekki 1.900 eins og velferðarráð lagði til í vikunni. Á sama tíma lagði hún til að borgarfulltrúar greiddu meira fyrir hádegismat sinn. 

Innlent

Hvað ætti ungt fólk að kjósa 29. ágúst?

Ungt fólk verður í brennideplinum í Pallborðinu á Vísi í dag. Húsnæðismál, atvinnuleysi, efnahagsmál og fleiri mál verða rædd með það að markmiði að ungt fólk sé einhverju nær um hvað það á að kjósa í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst næstkomandi. 

Innlent

Hver er „mennski prentari“ Trumps? „Þú ert það eina sem skiptir mig máli“

Einn af nánustu ráðgjöfum Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, er í sviðsljósinu eftir að öldungadeildarþingmaður Demókrataflokksins nefndi hana á nafn í ræðu. Lengi hafa verið uppi spurningar um samband hennar og forsetans en hún fylgir honum hvert sem hann fer, hún sendir öðrum þjóðarleiðtogum skilaboð fyrir hans hönd, skrifar færslur á samfélagsmiðlum fyrir hann og stýrir að einhverju leyti hverjir hafa aðgang að forsetanum.

Erlent

Bíla­sali gerður að prinsi eftir faðernispróf

Ungur belgískur bílasali var gerður að prinsi við formlega athöfn fyrr á þessu ári eftir að Lárens prins gekkst við að vera faðir hans. Bílasalinn fær þó hvorki laun frá konungsfjölskyldunni né verður hann hluti af erfðaröð hennar.

Erlent

Gisti­heimili Sverris í Gríms­nesi inn­sigluð

Lögreglan innsiglaði húsnæði í Grímsnesi á mánudag en það var í sameiginlegum aðgerðum Skattsins, Alþýðusambands Íslands (ASÍ) og heilbrigðiseftirlitsins. Samkvæmt heimildum fréttastofu snúa aðgerðirnar að gistingu sem athafnamaðurinn Sverrir Einar Eiríksson rekur á svæðinu en hann hefur áður verið ákærður fyrir meiri háttar skattalagabrot.

Innlent

Hætta við að bjarga gammablossasjónauka

Leiðangur sem var ætlað að bjarga Swift-geimsjónauka bandarísku geimvísindastofnunarinnar var blásinn af  í gær. Fyrir vikið mun sjónaukinn brenna upp í lofthjúpi jarðar í haust eftir áratugalangar athuganir á gammablossum.

Erlent

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna við­vörunar um „samfélagskrísu“ í Rúss­landi

Rússum hefur ekki vegnað vel á víglínunni í Úkraínu í sumar og hafa lítið sótt fram en þó eitthvað og á nokkrum stöðum. Framsókn þeirra hefur að mestu verið bundin við víglínuna norður af Pokrovsk og í Dónetsk-héraði. Færa má þó rök fyrir því að þungamiðja stríðsins sé ekki lengur víglínan og að staðan þar skipti minna máli en langdrægar árásir Rússa og Úkraínumanna.

Erlent

Ný með­ferð gegn sortuæxlum lofar góðu

Rannsóknir benda til þess að ný meðferð við sortuæxlum dragi verulega úr líkunum á því að meinið snúi aftur eða dreifi sér. Tilkynnt var um niðurstöðurnar í gær en engar tölulegar upplýsingar fylgdu. Þrátt fyrir það hafa hlutabréf í lyfjafyrirtækinu Moderna hækkað um 170 prósent í kjölfarið.

Erlent

Ráðast í byltingar­kenndar endur­bætur í Kvosinni

Metnaðarfullt plan um endurgerð Kvosarinnar norðan Austurstrætis hefur litið dagsins ljós. Kvosin markast af Tjörninni í miðborg Reykjavíkur í suðri og Reykjavíkurhöfn í norðri. Hönnun verkefnisins er í höndum Batterísins arkitekta.

Innlent

„Tengsl Ís­lands og Eist­lands eiga sér sér­staka sögu“

Forsetahjónin Halla Tómasdóttir og Björn Skúlason hófu þriggja daga ríkisheimsókn til Eistlands í gær. Gestgjafar þeirra eru forseti Eistlands, Alar Karis, og eiginkona hans, Sirje Karis. Markmið heimsóknarinnar er að styrkja góð tengsl Íslands og Eistlands.​​​​‌‍​‍​‍‌‌‌‍‌‍‍‌‌‍‌‌‍‍‌‌‍‍​‍​‍​‍‍​‍​‍‌​‌‍​‌‌‍‍‌‍‍‌‌‌​‌‍‌​‍‍‌‍‍‌‌‍​‍​‍​‍​​‍​‍‌‍‍​‌​‍‌‍‌‌‌‍‌‍​‍​‍​‍‍​‍​‍‌‍‍​‌‌​‌‌​‌​​‌​​‍​‍‌‍‌‍‌‍‌​‍‌​‌‍‌‌‌‌​‌‍‍‌​‍‌‌‍‍‌‌​‌‍​‌‍​‌‌‍‍‌‍‌​‌​​‍‍‌‌‍‌‍‌‌‌​‍‌‍​‌‍‌‌‌‍​​‍‍‌‍​‌‌​​‌​​​‍‌​‌‌​‌‌‌‌‍‌​‌‍‍‌‌‍​‍‌‍‍‌‌‍‍‌‌​‌‍‌‌‌‍‍‌‌​​‍‌‍‌‌‌‍‌​‌‍‍‌‌‌​​‍‌‍‌‌‍‌‍‌​‌‍‌‌​‌‌​​‌​‍‌‍‌‌‌​‌‍‌‌‌‍‍‌‌​‌‍​‌‌‌​‌‍‍‌‌‍‌‍‍​‍‌‍‍‌‌‍‌​​‌​‌​​‌‍​‌‍‌‍​​‍​​‌​​‌​​​‌​‍‌​‌‍​‌​‌​​‍​‍‌​‌​​​​​‌​‌‌​‍‌​‍​​‌‍​​​​‍‌​‍‌​​​​‌‌‌‍‌‍‌‍​‍​​​​‌​​​‍​​​​‌‌‍‌‍‌‍‌‌​​​‍‌‌​‌‍‌‌​​‌‍‌‌​‌‌‍‍‌‍‌‌‌‌‌​​‍‌​​‌‍​‌‌‌​‌‍‍​​‌‌​​‌‍​‌‌‍‌‌‍‌‌‌​​‍‌‌‌‌‍‍‌‌‍​‌‍‌​‌‍‌‌‌​‍​‍‌‌​‌‌‌​​‍‌‌‌‍‍‌‍‌‌‌‍‌​‍‌‌​​‌​‌​​‍‌‌​​‌​‌​​‍‌‌​​‍​​‍​​‌‍​​​‌​‍​​​‌‍‌​​‌‌​‍‌​​‍‌‍‌​‌‍‌‌‌‍​‌​‍‌‌​​‍​​‍​‍‌‌​‌‌‌​‌​​‍‍‌‍​‌‍‌‍‍‌‌​‌‍‌‌‌‍‍‌‌​​‍‌‌​‌‌‌​​‍‌‌‌‍‍‌‍‌‌‌‍‌​‍‌‌​​‌​‌​​‍‌‌​​‌​‌​​‍‌‌​​‍​​‍​​‌‌‍‌‍‌‍​‍​‌‌​‌‌​‌‌‍​‌​​‌‌‍‌‌‌‍​‍​​‍​‌​​‍‌‌​​‍​​‍​‍‌‌​‌‌‌​‌​​‍‍‌‍​‌‍‍​‌‍‍‌‌‍​‌‍‌​‌​‍‌‍‌‌‌‍‍​‍‌‌​‌‌‌​​‍‌‌‌‍‍‌‍‌‌‌‍‌​‍‌‌​​‌​‌​​‍‌‌​​‌​‌​​‍‌‌​​‍​​‍​‍​​​‌​‌​‌‍​‌‌‍‌‍​‍​‌‍‌‍​​‌​‌​​​‍​​‍​‍‌​‍‌‌​​‍​​‍​‍‌‌​‌‌‌​‌​​‍‍‌‌​‌‍‌‌‌‍​‌‌​​‌‍​‍‌‍​‌‌​‌‍‌‌‌‌‌‌‌​‍‌‍​​‌‌‍‍​‌‌​‌‌​‌​​‌​​‍‌‌​​‍‌​‌‍​‍‌‌​​‍‌​‌‍‌‍‌‍‌‍‌​‍‌​‌‍‌‌‌‌​‌‍‍‌​‍‌‌‍‍‌‌​‌‍​‌‍​‌‌‍‍‌‍‌​‌​​‍‍‌‌‍‌‍‌‌‌​‍‌‍​‌‍‌‌‌‍​​‍‍‌‍​‌‌​​‌​​​‍‌‌​​‍‌​‌‍‌​‌‌​‌‌‌‌‍‌​‌‍‍‌‌‍​‍‌‍‌‍‍‌‌‍‌​​‌​‌​​‌‍​‌‍‌‍​​‍​​‌​​‌​​​‌​‍‌​‌‍​‌​‌​​‍​‍‌​‌​​​​​‌​‌‌​‍‌​‍​​‌‍​​​​‍‌​‍‌​​​​‌‌‌‍‌‍‌‍​‍​​​​‌​​​‍​​​​‌‌‍‌‍‌‍‌‌​​​‍‌‍‌‌​‌‍‌‌​​‌‍‌‌​‌‌‍‍‌‍‌‌‌‌‌​​‍‌‍‌​​‌‍​‌‌‌​‌‍‍​​‌‌​​‌‍​‌‌‍‌‌‍‌‌‌​​‍‌‌‌‌‍‍‌‌‍​‌‍‌​‌‍‌‌‌​‍​‍‌‌​‌‌‌​​‍‌‌‌‍‍‌‍‌‌‌‍‌​‍‌‌​​‌​‌​​‍‌‌​​‌​‌​​‍‌‌​​‍​​‍​​‌‍​​​‌​‍​​​‌‍‌​​‌‌​‍‌​​‍‌‍‌​‌‍‌‌‌‍​‌​‍‌‌​​‍​​‍​‍‌‌​‌‌‌​‌​​‍‍‌‍​‌‍‌‍‍‌‌​‌‍‌‌‌‍‍‌‌​​‍‌‌​‌‌‌​​‍‌‌‌‍‍‌‍‌‌‌‍‌​‍‌‌​​‌​‌​​‍‌‌​​‌​‌​​‍‌‌​​‍​​‍​​‌‌‍‌‍‌‍​‍​‌‌​‌‌​‌‌‍​‌​​‌‌‍‌‌‌‍​‍​​‍​‌​​‍‌‌​​‍​​‍​‍‌‌​‌‌‌​‌​​‍‍‌‍​‌‍‍​‌‍‍‌‌‍​‌‍‌​‌​‍‌‍‌‌‌‍‍​‍‌‌​‌‌‌​​‍‌‌‌‍‍‌‍‌‌‌‍‌​‍‌‌​​‌​‌​​‍‌‌​​‌​‌​​‍‌‌​​‍​​‍​‍​​​‌​‌​‌‍​‌‌‍‌‍​‍​‌‍‌‍​​‌​‌​​​‍​​‍​‍‌​‍‌‌​​‍​​‍​‍‌‌​‌‌‌​‌​​‍‍‌‌​‌‍‌‌‌‍​‌‌​​‍‌‍‌​​‌‍‌‌‌​‍‌​‌​​‌‍‌‌‌‍​‌‌​‌‍‍‌‌‌‍‌‍‌‌​‌‌​​‌‌‌‌‍​‍‌‍​‌‍‍‌‌​‌‍‍​‌‍‌‌‌‍‌​​‍​‍‌‌‌‌‌

Innlent

Hótar þeim hörmungum sem eiga í við­skiptum við Íran

Donald Trump virðist hafa ákveðið að breyta um taktík til að neyða stjórnvöld í Íran að samningaborðinu. Til viðbótar við stöðugar árásir stendur nú til að einangra landið efnahagslega og hefur Bandaríkjaforseti hótað hverjum þeim sem eiga í viðskiptum við Íran alvarlegum afleiðingum.

Erlent

Fleiri þing­menn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara

Í það minnsta 29 þingmenn ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið þann 29. ágúst. Sumir þingmenn vilja ekki gefa upp afstöðu sína á meðan aðrir svara ekki fyrirspurn. Fleiri segja nei en já af þeim 51 sem svara. 

Innlent

Ísraels­her viður­kennir að hafa skotið fimm ára stúlku

Ísraelsher hefur í fyrsta sinn viðurkennt að hafa, árið 2024, hafið skotárás á bíl sem í var sex manna palestínsk fjölskylda, þar á meðal fimm ára gömul stúlka, Hind Rajab, sem lést seinna af sárum sínum. Ísarelsher greindi frá því í dag að hefja ætti rannsókn á atvikinu. 

Erlent

Vaxta­hækkunin geti gert illt verra

Breskur hagfræðingur hjá New Economics Foundation gagnrýnir ákvörðun Peningastefnunefndar í dag. Hún telur háa stýrivexti hafa hafa slæm áhrif á efnahag Íslands.

Innlent

Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra

Halldóra Fríða Þorvaldsdóttir, formaður bæjarráðs Reykjanesbæjar, er efst á lista Tekjublaðs Frjálsrar verslunar yfir tekjuhæstu sveitarstjórnarmenn á síðasta ári. Hún var þá með rúmlega þrjár og hálfa milljón króna í laun á mánuði.

Innlent

Settu saman fyrsta ís­lenska fjölerfðamengið

Vísindamenn Íslenskrar erfðagreiningar hafa sett saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið, eins konar kort sem gefur nákvæmari mynd af breytileika í erfðaefni Íslendinga en áður hefur þekkst. Aðferðin greinir sex prósentum fleiri erfðabreytileika og hefur þegar leitt í ljós áður óþekktan breytileika sem margfaldar líkur á að greinast með Parkinsonsveiki fyrir sextugt.

Innlent

Sam­mála því að erfitt haust sé í vændum

„Þetta er afleit tímasetning,“ segir Kolbrún Halldórsdóttir formaður BHM um stýrivaxtahækkunina sem tilkynnt var í morgun. Hún bendir á að hagkerfið sé þegar farið að kólna og að aukið atvinnuleysi fylgi í kjölfarið.

Innlent

Betur fór en á horfðist þegar flutninga­bíll valt

Vinna við að færa flutningabíl sem valt í aðrein frá Reykjanesbraut við Ártúnsbrekku á níunda tímanum í morgun af vettvangi tók rúmar sjö klukkustundir. Umferð var stýrt um svæðið á meðan og gekk það vel þrátt fyrir að einhverjar teppur hafi myndast.

Innlent