Bakþankar
102 103 104 105 106 107 108 109 110 … 111 ›
Góðir stakkfirðingar Örnefni eru vandmeðfarin því fólk tekur við þau ástfóstri, eins og dæmin sanna. Ekki er langt síðan lá við borgarastyrjöld norður í landi vegna ágreinings um heiti á fjalli. Við sameiningu íslenskra sveitarfélaga komu upp svipuð vandamál. Sumir Keflvíkingar harðneituðu að vera annað en Keflvíkingar áfram og Njarðvíkingar tóku í svipaðan streng. Niðurstaðan var hið afleita nafn Reykjanesbær. Bakþankar 1.9.2007 06:00
Lifi Sparisjóður Dalvíkur Þetta gæti verið upphaf á gömlu lagi með Megasi: Það eru allir svo brjálaðir út í bankana. Svo gætu erindin tuttugu og sjö öll hafist á svipuðum nótum. Það eru allir svo bitrir út í bankana, það blæs ekki byrlega fyrir bönkunum... Bakþankar 31.8.2007 00:01
Þakklæti Fyrirbærið þakklæti er ekki hátt skrifað í nútímanum. Flestum finnst álíka fáránlegt að vera þakklátur og að safna sér fyrir einhverju. Til hvers að safna sér fyrir einhverju þegar maður fær lánað fyrir því á þremur mínútum? Til hvers að vera þakklátur fyrst allt kemur hvort sem er upp í hendurnar á manni? Bakþankar 30.8.2007 00:01
Marktæku krúttin Fyrir allra fyrsta skiptið sem ég hitti bankastjóra var auðmýkt mín gagnvart valdhafanum slík að ég undirbjó fundinn af kostgæfni. Andlega fyrst og fremst, því erindið var að sækja náðarsamlegast um dálítið lán. Því ákvað ég nákvæmlega hvað ég ætlaði að segja og rökin fyrir frekjunni. Jafnframt taldi ég rétt að vanda útlitið, fór í huggulegt pils, háa hæla og eyddi umtalsverðri stund í snyrtingu. Bakþankar 29.8.2007 06:00
Deyfingar fyrir aumingja Karen D. Kjartansdóttir skrifar Meðganga og fæðing er ekki sjúkdómur heldur eðlilegur hluti af lífinu, það er óeðlilegt að sjúkdómsvæða þetta ferli. Þessa klisju heyra líklega flestar barnshafandi konur og stilltar kinka þær flestar kolli til samþykkis. Bakþankar 28.8.2007 06:00
Hinir vammlausu Fyrir um það bil ári fékk fólk sem býr í eldgömlu fjölbýlishúsi í 101-hverfinu óvænt símtal frá manni sem kynnti sig sem fasteignasala. Erindið var að spyrja hvað íbúð fjölskyldunnar ætti að kosta. Svarið var að íbúðin væri alls ekki til sölu. Bakþankar 27.8.2007 05:30
Billjónsdagbók 26.8 Þegar ég hafði fullvissað mig um að var enginn í móttökunni, leyfði ég mér að dansa eins og indjánahöfðinginn „Óstöðugur vindur" hring eftir hring í kringum 12 fermetra fundarborðið, fórna höndum og hrópa í sífellu af léttgeggjaðri hrifningu: Djíníuss! Djíníuss! Bakþankar 26.8.2007 00:01
Ástandið Með reglulegu millibili blossar upp á Íslandi umræða um hið svokallaða ástand í miðbænum, en "ástandið í miðbænum" er eiginlega orðið sérstakt hugtak í íslenskri umræðu, notað af þeim sem telja miðbæinn vera gróðrastíu ofbeldis, óláta og óhreininda. Alla mína hundstíð hef ég hlýtt með litlu millibili á bölv og ragn í fjölmiðlum út af miðbænum. Bakþankar 25.8.2007 00:01
Mér til málsvarnar Góðir fundarmenn. Ég vil byrja á að biðjast forláts á þeirri töf sem orðið hefur á boðun til þessa húsfundar. Ég taldi hins vegar rétt að veita forvera mínum í formannsembætti svigrúm til að útskýra sinn þátt í málinu enda ljóst að ákvörðun um kaup og uppsetningu gervihnattadisks var tekin í hans stjórnartíð. Bakþankar 24.8.2007 06:00
Mika Á ísskápnum hanga Geðorðin 10 sem Lýðheilsustöð var svo elskuleg að senda mér um árið. Ég les sjaldnast lengur en fyrsta geðorðið þegar ég fer í skápinn, enda á það kannski best við mig: Hugsaðu jákvætt, það er léttara. Bakþankar 23.8.2007 06:00
Englar eru bestu skinn Norska prinsessan Marta Lovísa kom þjóð sinni heldur betur á óvart í sumar þegar hún sagðist geta séð engla. Hún hafði gert það gott sem knapi, sjúkraþjálfari og barnabókahöfundur en þessu áttu Norðmenn ekki von á frá henni. Þegar Marta Lovísa opnaði síðan skóla til að kenna öðrum að sjá engla, þessar tindilfættu verur, var Norðmönnum nóg boðið. Bakþankar 22.8.2007 00:01
Raup dagsins Menningarnóttin með Glitnishlaupinu innanborðs nálgaðist óþægilega hratt þetta sumarið. Vegna heitstrenginga frá í fyrra hefur það verið undirlagt af hlaupatilraunum þeirrar sem áður var þekktari af værukærri heimasetu og þrátt fyrir ríflegan undirbúningstíma hefðu reyndar tvær, þrjár vikur í viðbót verið vel þegnar. Bakþankar 21.8.2007 00:01
Færanleg lögreglustöð Sá sem býr í miðborg veit að þar er ýmislegt öðruvísi en í úthverfum. Sumt betra. Annað verra. Aðeins eitt er óþolandi og það er að búa á svæði þar sem löggan hefur gefist upp á að framfylgja landslögum. Með lögum skal land byggja – nema miðborg Reykjavíkur. Bakþankar 20.8.2007 07:00
Hugleiðing um háðung Nýlega var kvikmyndin um Simpson fjölskylduna talsett á íslensku. Ekki eru allir á einu máli um ágæti þeirrar ráðstöfunar. Bakþankar 19.8.2007 06:15
Maraþon Á hverju ári, yfirleitt um vorið eða í upphafi sumars, hvarflar að mér að það gæti verið sniðugt að stefna að því að hlaupa maraþon. Bakþankar 18.8.2007 09:00
Illt í maganum Litríkasta helgi sumarsins er yfirstaðin. Allt frá prestum yfir í teknótæfur flykktust niður í miðbæ til að veifa fánum til stuðnings samkynhneigðum. Allt var blessað í bak og fyrir og bólaði ekki á Gunnari í Krossinum, sem fjölmiðlar eru vanir að draga fram í sviðsljósið í hvert sinn sem minnst er á réttindabaráttu samkynhneigðra. Til þess að spyrja hvað honum finnist nú um þetta. Bakþankar 17.8.2007 00:01
Pönkhagfræði Eftir því sem ég kemst næst er gott að græða, en slæmt að tapa. Þessa þulu tuldrar nútímamaðurinn fyrir munni sér. Samt tapa allir á endanum í gröfinni, en það er víst önnur saga. Þangað til er hámarksgróði eina markmiðið og skiptir þá litlu hvort þrælahald komi við sögu eða ekki. Bakþankar 16.8.2007 00:01
Undrafjölskyldan í Ameríku Að ala upp heila nýja manneskju er ekki smátt verkefni heldur krefst bæði hæfileika og úthalds. Þannig geta hinir dæmigerðu foreldrar sem sumir afgreiða jafnvel þrjú eða fjögur börn talist sannkallaðar hvunndagshetjur. Bakþankar 15.8.2007 05:30
Ris bullunnar Vinsælustu brandarar allra tíma virðast fela í sér skilgreiningar á muninum á körlum og konum. Þið vitið, sniðugheit á borð við: Ef þú spyrð konu til vegar þá segir hún þér hvaða verslanir eru á leiðinni, ef þú spyrð karlmann til vegar þá miðar hann við krárnar. Bakþankar 14.8.2007 04:00
Kurteisari en flugfreyjur? ÚR því að frelsið virðist lúta viðskiptalögmálum er eðlilegt að maður spyrji hvort önnur lögmál gildi um það líka. Á það til dæmis við um frelsið sem gildir um svo margt annað - að það sem ekki er notað er tekið frá manni? „Use it or loose it" er það kallað á ensku. Bakþankar 13.8.2007 05:30
Billjónsdagbók 12.8. OMXI15 var 8.280,24, þegar ég setti upp nýju 55.000 króna hlaupaskóna með metangashælpúðum og títaniljafjöðrun, og Nasdaq var 2.547,33 þegar ég hafði hlaupið tíu kílómetra og fannst ég jafnnálægt hruni og friðuðu grásleppuhjallarnir við Ægisíðu. Ég staulaðist niður í fjöru og tók pásu á bak við stein. Púlsinn var 178. Bakþankar 12.8.2007 00:01
Gangan Að öllum líkindum munu nokkrir tugir þúsunda Íslendinga halda niður í miðbæ í dag og taka þátt í hátíð homma og lesbía, ganga í skrúðgöngu niður Laugaveginn eða standa á gangstéttinni og fylgjast með. Ég sjálfur hyggst ekki ganga í þetta skiptið, enda er ég dálítið brenndur af þeirri reynslu, satt að segja. Bakþankar 11.8.2007 00:01
Duglegur Ein lífseigasta mýtan um Íslendinga (sem enginn heldur reyndar fram nema við sjálf) er sú að þeir séu allra þjóða duglegastir. Rökin eru yfirleitt á þá leið að augljóst sé að aðeins harðgert úrvalsfólk hafi getað tórt á þessu harðbýla landi öldum saman og af þeim harðjöxlum séum við komin. Bakþankar 10.8.2007 06:00
Kringlan, 2067 Voðalega er þessi krúttlegur, segir forseti Íslands, Guðrún Lára Dagbjartsdóttir, og veifar ævagömlum gemsa. Hún og forsætisráðherrann, Ari Walczak-Thors, eru mætt til að vera viðstödd þegar tímahylkið í Kringlunni er opnað, 68 árum eftir að það var innsiglað. Bakþankar 9.8.2007 06:45
Jag är döden Íbúar Fårø voru vanir að svara upp í tunglið þegar aðkomufólk spurði hvar Ingmar Bergman byggi. „Annars hefði hann aldrei fengið frið," segir leigubílstjórinn sem ekur mér norður eftir eyjunni. Á svona degi er hægur vandi að átta sig á því hvers vegna leikstjórinn hreiðraði hér um sig. Bakþankar 8.8.2007 00:01
Íslandssaga Breiðavík var næsti áfangastaður. Kirkjan sem reist var af drengjunum sem þar voru geymdir fyrr á öldinnni var læst. Ég leit inn um rauðlitað glerið og virti fyrir mér kvalasvip Krists á altaristöflunni áður en við grilluðum á hvítri ströndinni. Bakþankar 7.8.2007 00:01
Dýr hraði Nú er ég einn af þessum ökumönnum sem keyra vanalega eins og englar, þó ég segi sjálfur frá, og gæti þess iðulega að keyra ekki of hratt enda er ég ósköp sjaldan á hraðferð, þannig séð, og liggur afskaplega lítið á. Bakþankar 4.8.2007 07:00
Í gettóinu Þegar ég var þrettán upphófst hryðjuverkafaraldur í skólanum mínum, flugeldar voru sprengdir í klósettum og ruslafötum. Skólastjórinn gekk í bekki með sundurtætta ruslatunnu undir hendinni og einkennisklæddan lögregluþjón undir hinni, sem sagði að allir yrðu að ,,æxla ábyrgð á eigin gjörðum“. Bakþankar 3.8.2007 00:01
Frjálshyggju ég Nei, nú nenni ég ekki þessari endalausu neikvæðni lengur, að vera eitthvað fúll þótt frábært fólk sé orðið svo ógeðslega ríkt að svokölluðu venjulegu fólki hreinlega blöskri. Ég nenni heldur ekki heimsendaspánum, að allt sé að fara til fjandans út af mengun. Bakþankar 2.8.2007 00:01
Konurnar sex Í þessari viku þegar komandi verslunarmannahelgi bindur endahnútinn á sumarið, er útsvarið sígilt umræðuefni í fjölmiðlum. Annars vegar hversu mikið ríkustu menn hafa greitt eða ekki greitt í skatta og hins vegar hversu illa Samband ungra sjálfstæðismanna kann við að opinber gjöld séu opinber. Bakþankar 1.8.2007 04:00
„Öllum er fkn drull, haltu kjafti“ Bríet Bragadóttir,Hjördís Lára D. Ingólfsdóttir,Kristjana Anna Dagnýjardóttir Skoðun
Hvernig getum við gert Ísland að eftirsóttum stað fyrir barnafjölskyldur? Birgitta Sigurðardóttir Skoðun