
Enski boltinn

Mourinho telur útilokað að nokkuð lið geti náð Liverpool
Jose Mourinho er virkilega hrifinn af spilamennsku Liverpool og segir nánast ekkert geta komið í veg fyrir að þeir hampi Englandsmeistaratitlinum eftir óralanga bið.

Klopp: Skoruðum stórkostleg mörk
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, var ánægður með frammistöðu sinna manna í dag.

Guardiola aldrei verið stoltari af sínu liði
Englandsmeistarar Manchester City steinlágu fyrir meistaraefnum Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í dag en Pep Guardiola var í skýjunum með frammistöðu síns liðs.

Liverpool fór illa með Englandsmeistarana í toppslagnum
Liverpool steig stórt skref í átt að Englandsmeistaratitlinum með sannfærandi sigri á Englandsmeisturum Manchester City á Anfield í dag.

Manchester United upp í 7. sætið eftir auðveldan sigur á Brighton
Auðvelt hjá Man. United á heimavelli í dag.

Úlfarnir bitu frá sér í grannslag
Wolves og Aston Villa áttust við á Molineux.

Gömlu félagar Arons töpuðu grannaslagnum
Bristol City vann 1-0 sigur á Cardiff City er liðin mættust í ensku B-deildinni í knattspyrnu í dag. Leikið var í Wales.

Kompany segir að rígurinn milli Liverpool og Man. City hafi breyst þegar ráðist var á rútu Englandsmeistaranna
Eitt atvik á síðustu leiktíð breytti öllu á milli félaganna, segir Vincent Kompany.

Slæm helgi Aubameyang: Tap gegn Leicester og klessti 43 milljóna króna Lamborghini-bílinn sinn
Þetta var ekki góð helgi fyrir framherja og fyrirliða Arsenal, Pierre-Emerick Aubameyang, en hann var í tapliði um helgina og klessti einnig rándýran bílinn sinn.

Southgate mun fylgjast vel með Stones í stórleiknum
Gareth Southgate, landsliðsþjálfari Englands, segir að hann muni fylgjast með enska miðverðinum, John Stones, er Liverpool og Manchester City mætast í dag.

Emery ekki smeykur um að missa starfið
Unai Emery kveðst hafa séð framfarir í spilamennsku síns liðs þrátt fyrir sannfærandi tap gegn Leicester.

Stjóri Gylfa tileinkar meiddu mönnunum sigurinn
Þungu fargi af Marco Silva létt eftir sigurinn á Southampton í dag.

Viggó öflugur í sigri
Viggó Kristjánsson spilaði vel þegar Leipzig vann útisigur á Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Arsenal átti engin svör við Leicester
Leicester City er í 2.sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

Gylfi með fyrirliðabandið í lífsnauðsynlegum sigri Everton | Öll úrslit dagsins
Everton lyfti sér frá fallsætunum með sigri á Southampton.

Tottenham tókst ekki að leggja nýliðana á heimavelli
Tottenham vann síðast leik í ensku úrvalsdeildinni þann 28.september síðastliðinn.

Lánleysi Derby heldur áfram
Nottingham Forest vann 1-0 sigur á Derby er liðin mættust í grannaslag í ensku B-deildinni í knattspyrnu í dag.

Chelsea ekki í vandræðum með Palace í Lundúnarslag
Sjötti deildarsigur Chelsea í röð

Liverpool getur aftur stungið af
Liverpool fær Manchester City í heimsókn í toppslag í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu karla á Anfield á morgun.

Bestu liðin á útivelli: Sverrir Ingi í 1. sætinu og Liverpool í þriðja
Tölfræðisíðan Transfermarkt tók saman áhugaverða tölfræði í gær er þeir tóku saman bestu liðin á útivelli.

Annar mannanna sem réðst á Özil og Kolasinac dæmdur í tíu ára fangelsi
Hrottaleg árás og nú eru mennirnir sóttir til saka.

Xhaka ekki í leikmannahópnum í dag og Emery veit ekki hvort að hann spili aftur fyrir Arsenal
Granit Xhaka verður ekki í leikmannahópi Arsenal í dag er liðið mætir Leicester í hörkuleik í enska boltanum.

Fyrsti sigur Watford kom á Carrow Road
Loksins vann Watford leik þetta tímabilið í ensku úrvalsdeildinni.

Stoke komið með nýjan stjóra
Michael O'Neill er nýr knattspyrnustjóri Stoke City.

Andre Gomes gæti spilað aftur fyrir Everton á þessu tímabili
Marco Silva, knattspyrnustjóri Everton, segir að portúgalski miðjumaðurinn Andre Gomes eigi möguleika á því að spila aftur með liðinu á þessu tímabili.

Solskjær: Við þurftum á svona frammistöðu að halda
Manchester United sýndi sínar bestu hliðar í 3-0 sigri á Partizan Belgrad í Evrópudeildinni í gærkvöldi sem er eitthvað sem stuðningsmenn félagsins hafa séð alltof lítið af á þessu tímabili. Knattspyrnustjórinn Ole Gunnar Solskjær var líka ánægður með liðið.

Lögreglumaður ákærður fyrir morð á fótboltamanni
Fótboltamaðurinn Dalian Atkinson lést árið 2016 og nú fyrst hefur maður verið ákærður fyrir að hafa ollið dauða hans.

Hjartnæm stund á leik Liverpool og Manchester City um helgina
Liverpool getur náð níu stiga forskoti á Manchester City þegar liðin mætast á Anfield á sunnudaginn en þetta verða líka mikil tímamót fyrir einn 54 ára gamlan stuðningsmann Liverpool.

Forráðamenn Man. Utd. ræddu við Rangnick
Manchester United vill fá Ralf Rangnick sem yfirmann knattspyrnumála hjá félaginu.

Hugo Lloris þurfti að fara í aðgerð
Hugo Lloris, markvörður Tottenham og heimsmeistara Frakka, þurfti að gangast undir aðgerð á olnboga vegna meiðslanna sem hann varð fyrir í leik á móti Brighton í október.