Formúla 1

Spennutryllir þegar Button vann

Bretinn Jenson Button á McLaren Mercedes vann spennuuþrunginn Fornúlu 1 kappakstur í Ástralíu í dag. Með útsjónarsemi sá hann við keppinautum sínum og fagnaði fyrsta sigrinum með McLaren liðinu, sem hann gekk til liðs við í vetur.

Formúla 1

Schumacher fannst Alonso hindra sig

Þjóðverjinn Michael Schumacher ræddi við Fernando Alonso strax eftir tímatökuna og spurði hann hvort Ferrari liðið hefði beðið hann að tefja fyrir sér í tímatökunni á einhvern hátt.

Formúla 1

Vettel og Webber í fremstu röð

Red Bull ökumennirnir Sebastian Vettel og Mark Webber náðu fyrsta og öðru sæti í tímatökunni í Mlebourne i Ástralíu í morgun, en Fernando Alonso á Ferrari varð þriðji.

Formúla 1

Hamilton ánægður með spretthörkuna

Bretinn Lewis Hamilton er hamingjusamur með McLaren fák sinn eftir æfingar föstudagsins. Hann náði besta tíma á undan Jenson Button, liðsfélaga sínum á seinni æfingunni, en Robert Kubica var fljótari á þeirri fyrri.

Formúla 1

Alonso: Red Bull menn mjög fljótir

Fernando Alonso var í basli á æfingum í morgun og náði ekki að nýta sér þurra braut á seinni æfingu af tveimur, þegar rigningarskvetta truflaði æfinguna oftar en eini sinni. Hann náði aðeins fimmtánda besta tíma og skorti því æfingatíma á brautinni

Formúla 1

Hamilton fljótastur á votri æfingu

Lewis Hamilton á McLaren reyndist allra manna fljótastur á seinni æfingu keppnisliða á götum Melbourne í morgun. Hann var einn fárra sem náði að aka á þurri braut, en rigning hefti framför margra annarra.

Formúla 1

Kubica sneggstur á götum Melbourne

Pólverjinn Robert Kubica á Renault var fljótastur allra á fyrstu æfingu keppnisliða í Mlebourne í Ástralíu í nótt. Hann ekur Renault, en Nico Rosberg á Mercedes varð annar og Jenson Button þriðji á McLaren Mercedes.

Formúla 1

Webber: Heimasigur væri kærkominn

Ástralinn Mark Webber var meðal ökumanna á formlegum blaðamannafundi FIA með nokkrum keppendum. Hann er með bíl sem gæti náð toppsæti, en telur að árangur í tímatökum skipti höfuðmáli, en hann vann tvö mót í fyrra.

Formúla 1

Schumacher: Engin skömm af árangrinum

Þjóðverjinn Michael Schumacher náði sjötta sæti í fyrsta móti ársins og segist hafa náð hámarks árangri í sinni fyrstu keppni með Mercedes. Hann varð á eftir Nico Rosberg á samskonar bíl.

Formúla 1

Sögulegur samningur Ferrari

Ferrari tilkynnti í dag framlengingu samnings við Shell, sem hefur verið í gangi frá árinu 1929. Ferrari liðið mun starfa áfram til ársins 2015 með Shell, en saman hafa fyrirtækin unnið fjölda titla og sigra í Formúlu 1, ekki síst með Michael Schumacher á sínum tíma. Fyrirtækin tvö hafa starfað saman í 450 mótum um helgina.

Formúla 1

Formúlu kappi nærri gini hákarls

Paul di Resta sem keyrir Formúlu 1 bílí fyrsta skipti á æfingum í Melbourne á föstudag fékk aðra frumraun í flasð í dag. Hann stóð nærri hákarli á strönd við Melbourne, sem var kannski ekki besta auglýsingin fyrir ferðamennskuna á staðnum. Hákarlinn hafði fest sig í flæðarmálinu.

Formúla 1

Hamilton horfir til sigurs

Ástralir virðast gera í því að leyfa Formúlu 1 ökumönnum að upplifa eitthvað meira en kappakstur þessa mótshelgina, því Lewis Hamilton var settur á stýrið á skútu í Sydney eftir að hafa flogið til Ástralíu. Það er ágæt upphitun fyrir kappaksturinn á sunnudag og hann svaraði síðan spurningu á kynningu hjá Vodafone eftir túrinn.

Formúla 1

Vettel lærði kasta bjúgverpli

Sebastian Vettel og Mark Webber eru liðsfélagar hjá Red Bull og þykja líklegir til afreka á götum Melbourne á heimavelli Webbers. Vettel voru kennd réttu handtökin við að kasta bjúgverpli, sem er vinsælt atferli í Ástralíu.

Formúla 1

Alonso: Fjögurra liða slagur framundan

Spánverjinn Fernando Alonso sem vann fyrsta Formúlu 1 mót ársins telur að fjögur lið verði í slagnum um sigur í Ástrralíu um helgina. Hann vann fyrsta mót ársins og ræddi málin á vefsíðu sinni.

Formúla 1

Heimavöllurinn gæti hjálpað Webber

Ástralinn Mark Webber verður í faðmi heimamanna í Melbourne í Ástralíu um næstu helgi og á Red Bull sem talinn er brjálæðislega fljótur að einum keppinaut hans, Lewis Hamilton. Þeir aka báðir Albert Park brautina í Melbourne um helgina.

Formúla 1

Schumacher nýtur mests stuðnings

Formúlu 1 áhugamenn um heim allan tóku þátt í víðtækri könnun á vegum FOTA, samtaka keppnisliða og F1 racing tímaritsins í vetur. Samkvæmt henni er Michael Schumacher með mest fylgi ökumanna.

Formúla 1

Rússar fagna nýliðanum í Formúlu 1

Vitaly Petrov frá Rússlandi keyrði í sínu fyrsta Formúlu 1 móti í Barein á dögunum og stökk úr sautjánda sæti á ráslínu í það ellefta. En svo bilaði bíllinn eftir góða spretti.

Formúla 1

Formúla 1 styður umferðarátak

Formúlu 1 lið hafa ákveðið að styðja við alþjóðlegt umferðarátak sem kallast Make Roads Safe og verða allir bílar merktir átakinu frá og með ástralska kappakstrinum.

Formúla 1

Webber: Ekkert lið er skothelt

Mark Webber segir að ekki sé spurning að áreiðanleiki Red Bull bílanna verði eins og best verður á kosið, þó lið hans hafi lent í ýmsum vandræðum í fyrsta móti ársins. Sebastian Vettel, félagi Webber missti af mögulegum sigri, þegar vélin bilaði í Red Bull bíl hans. Hann hafði leitt mótið i Barein frá byrjun.

Formúla 1

Rosberg stenst Schumacher snúning

Nico Rosberg hefur borið sig vel og staðið sig vel eftir að Michael Schumacher gekk til liðs við Mercedes liðið. Mikil athygli hefur fylgt endurkomu hans og viss pressa myndast á Rosberg að standa sig, en hann hefur staðið sig með prýði.

Formúla 1

Konungur Spánar styður Alonso

Ferrari menn eru hæstánægðir með fyrsta sigurinn í Formúlu 1 og Fernando segist tileinka sigurinn Luca Montezemolo, forseta Ferari þar sem hann hafi haft trú á getu hans.

Formúla 1

Ecclestone: Engin krísa í Formúlu 1

Bernie Ecclestone segir að ekki sé ástæða til að örvænta þó Formúlu 1 mótið í Barein hafi ekki staðiði undir væntingum. Það þótti einsleitt og heldur tilþrifalítið, eftir að reglur um búnað og fleiri áttu að seja meira fjör í leikinn.

Formúla 1