Innlent

Fann sér ekki stað hjá for­setanum eftir breytingar

Una Sighvatsdóttir, sem gegnt hefur stöðu sérfræðings á skrifstofu forseta Íslands undanfarin ár, segir að það hafi verið mikill heiður og ánægja að gegna trúnaðarstörfum fyrir tvo forseta lýðveldisins. Hún hafi ákveðið að róa á ný mið vegna þess að hún hafi ekki fundið sér stað í breytingum sem hafa verið boðaðar á skrifstofunni.

Innlent

Var á yfir 200 kíló­metra hraða þegar slysið varð

Ökumaður missti stjórn á bíl sínum á ofsahraða, lenti á afleggjara, kastaðist yfir hann og stöðvaðist utan vegar eftir rúma fimmtíu metra. Ökumaður og farþegi létust af völdum fjöláverka en samkvæmt gögnum úr árekstrareftirlitskerfi var bíllinn á 201 kílómetra hraða þegar slysið varð.

Innlent

Hefja söfnun fyrir geðheilbrigðisúrræði í minningu Bryn­dísar Klöru

Vitundarvakningu og söfnun fyrir Bryndísarhlíð, nýja þjónustumiðstöð og geðheilbrigðisúrræði fyrir börn og ungmenni sem hafa orðið fyrir ofbeldi, var ýtt úr vör í Iðnó í gær. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands flutti ávarp við tilefnið en hún er jafnframt verndari Minningarsjóðs Bryndísar Klöru.

Innlent

Ekki tíminn fyrir stjórnar­and­stöðu til að stunda tafarleiki

Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir að nú á tímum, þegar fólk sé óttaslegið og reitt vegna heimsástandsins, sé ekki tíminn fyrir stjórnarflokka til að reisa skýjaborgir eða háleitar væntingar. Þá sé ekki tíminn fyrir stjórnarandstöðu að stunda tafaleiki til að hægja á framfaramálum sem njóti stuðnings þjóðarinnar. 

Innlent

Er­lendir ríkis­borgarar rúm­lega helmingur at­vinnu­lausra

Atvinnuleysi minnkaði um 0,2 prósentustig milli mánaða og mældist atvinnuleysi 3,7 prósent í maímánuði, samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. Um 54 prósent fólks á atvinnuleysisskrá eru erlendir ríkisborgarar. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir erfiðara að koma erlendu fólki aftur í vinnu.

Innlent

„Fólk er í á­falli yfir þessu“

Fréttir af fyrirhuguðum breytingum hjá flugfélaginu Play voru áfall fyrir starfsfólk að sögn forseta Íslenska flugstéttafélagsins. Hann segir lagalega óvissu fylgja því að flugrekstur Play verði skráður í öðru landi og að fréttirnar hafi komið starfsfólki í opna skjöldu.

Innlent

Fjölmiðla­frum­varpið „ein alls­herjar­hefndar­för gegn Morgun­blaðinu“

Sigríður Á. Andersen þingmaður Miðflokksins segir frumvarp Loga Einarssonar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra sem felur í sér breytingar á styrkjum til einkarekinna fjölmiðla hefndarför gegn Morgunblaðinu. Frumvarpið sé ekki til þess fallið að skila fé til skattgreiðenda heldur til að „smyrja því“ til annarra einkarekinna fjölmiðla. 

Innlent

„Þingið hefur verið svipt að­haldi sínu“

„Fjárlaganefnd var sniðgengin. Þingið hefur verið svipt aðhaldi sínu. Ráðherrar svara ekki í þingsal, heldur í útvöldum fjölmiðlum. Þetta eru ekki smávægileg frávik. Þetta eru alvarleg merki um að þingræðinu sé ekki sýnd tilhlýðileg virðing.“

Innlent

Ógn lofts­lags­breytinga við fæðuöryggi stór­lega van­metin

Öfgakenndar hitabylgjur stuðla ekki aðeins að fjölgun dauðsfalla heldur geta þær valdið alvarlegum meðgönguvandamálum en yfirvísindaráðgjafi nýrrar evrópskrar nefndar, sem Katrín Jakobsdóttir veitir forystu, segir leiðtoga heimsins vanmeta þau áhrif sem loftslagsbreytingar komi til með að hafa á fæðuöryggi.

Innlent

Fastir á Kefla­víkur­flug­velli í þrjá daga án út­skýringa

Fjórir verkamenn frá Belarús sátu fastir á Keflavíkurflugvelli í þrjá daga eftir að hafa fengið synjun um að koma til landsins. Þeir segjast aldrei hafa fengið að vita hvers vegna þeim var haldið þar. Sá sem réði mennina í vinnu segir þá ekki einu sinni hafa getað keypt sér að borða.

Innlent

Hvalurinn kominn út á haf

Háhyrningurinn sem strandaði í Grafarvogi í gærkvöldi er kominn út í haf og er frjáls ferða sinna. Hann var kominn út fyrir skerin við flæðarmálið um hálfsexleytið í dag, en björgunarmenn stugguðu við honum og fylgdu honum út fyrir grynningarsvæðið.

Innlent

Fastir í flug­stöðinni í fjóra daga og Trump-Tesla í Kefla­vík

Fjórir verkamenn frá Belarús sátu fastir á Keflavíkurflugvelli í fjóra daga eftir að hafa fengið synjun um að koma til landsins. Þeir segjast aldrei hafa fengið að vita hvers vegna þeim var haldið þar. Sá sem réði mennina í vinnu segir þá ekki einu sinni hafa getað keypt sér að borða.

Innlent

Hæsti­réttur stað­festir nauðgunar­dóm Najeb

Hæstiréttur hefur staðfest fimm ára fangelsisdóm Najeb Mohammad Alhaj Husin, fyrrverandi starfsmanns grunnskóla í bæjarfélagi á Norðurlandi vestra, fyrir brot, þar á meðal nauðgun, gegn stúlku í unglingadeild skólans.

Innlent

Vinnu­slys við Suður­lands­braut

Einn var fluttur á sjúkrahús eftir vinnuslys á vinnusvæði á Suðurlandsbraut upp úr hádegi í dag. Dælubíll slökkviliðs og tveir sjúkraflutningabílar voru kallaðir út vegna slyssins.

Innlent

Fót­bolta­gláp, ráfandi djammarar og nú fljúgandi nef­hjól

Rannsókn Rannsóknarnefndar samgönguslysa vegna nefhjóls lítillar flugvélar sem féll á Austurvöll í gær er á frumstigi. Íbúasamtökin Hljóðmörk segja um að ræða enn eitt dæmið þar sem öryggi fólks er ógnað í grennd við flugvöllinn. Eigendur flugvélarinnar harma atvikið.

Innlent

Stendur í stafni fyrir sam­evrópska nefnd WHO um lýðheilsu

Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, bindur miklar vonir við að ný samevrópsk nefnd um lýðheilsu og loftslagsbreytingar muni koma að miklu gagni í baráttunni gegn loftslagsvánni. Áhrifin séu áþreifanleg nú þegar með hitabylgjum, þurrkum og flóðum.

Innlent

Stór­auka þjónustu Strætó í lok sumars

Strætó mun stórauka þjónustu sína en frá og með 17. ágúst 2025 verður umfangsmikil þjónustuaukning í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Þessi aukning er hluti af Samgöngusáttmálanum og rekstraráætlun Strætó og skref í átt að nýju leiðaneti, sem á að taka gildi árið 2031.

Innlent