Handbolti

Skýrsla Henrys: Úlfurinn át strákana okkar
Hvað á maður að segja? Þvílík vonbrigði þessi leikur í kvöld og mótið í heild sinni. Draumurinn um óvænt undanúrslit er dáinn og Ólympíudraumurinn færist fjær. Þetta er alls ekki nógu gott.

Samfélagsmiðlar: Wolff, Knorr, færanýting og dómarar allsráðandi
Ísland mátti þola grátlegt tap gegn Þýskalandi á EM karla í handbolta eftir mjög góða frammistöðu varnarlega. Því miður fyrir strákana okkar var færanýtingin enn og aftur skelfileg. Má segja að leikur dagsins hafi tapast þar, lokatölur 26-24 Þýskalandi í vil.

„Fannst við spila nægilega vel til að vinna Þjóðverja“
„Gríðarlega og ógeðslega svekktur að ná ekki að gera betur í dag,“ sagði Aron Pálmarsson, fyrirliði Íslands, eftir súrt tap gegn Þýskalandi á EM karla í handbolta.

„Fannst við eiga skilið að vinna þennan leik ef ég á að vera hreinskilinn“
„Mjög svekktur, fannst við eiga skilið að vinna þennan leik ef ég á að vera hreinskilinn. Spiluðum góða vörn, fórum með stór færi en fannst við spila vel,“ sagði markvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson eftir súrt tap Íslands gegn Þýskalandi á EM í handbolta.

„Þetta verður löng nótt“
Ýmir Örn Gíslason átti mjög góðan leik í kvöld í naumu tapi íslenska landsliðsins á móti Þjóðverjum. Ýmir fór fyrir vörninni sem átti sinn besta leik á mótinu.

Einkunnir Strákanna okkar á móti Þýskalandi: Janus og Ýmir frábærir en hornamenn og vítaskyttur brugðust
Íslenska karlalandsliðið í handbolta tapaði naumlega fyrir Þjóðverjum, 26-24, í fyrsta leik sínum í milliriðli 1 á EM.

Tölfræðin á móti Þýskalandi: Fjögur víti forgörðum í tveggja marka tapi
Íslenska karlalandsliðið í handbolta var nálægt því að fá eitthvað út úr leik á móti heimamönnum Þýskalands í fyrsta leik sínum í milliriðli á Evrópumeistaramótinu í Þýskalandi. Á endanum unnu Þjóðverjar tveggja marka sigur, 26-24, sem voru grátleg úrslit eftir frábæra baráttu íslenska liðsins.

Snorri Steinn: Baráttan og hjartað til fyrirmyndar
„Eins mikið og það getur sviðið. Fannst við spila vel í dag. Baráttan og hjartað til fyrirmyndar. Erfitt að biðja um meira frá sínu liði. Það var allt upp á 10 en úrslitin sem telja, stigin eru ekki að koma inn í dag,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari Íslands, eftir gríðarlega súrt tap gegn Þýskalandi í milliriðli á EM karla í handbolta.

Þjóðverjar klúðruðu íslenska þjóðsöngnum
Gestgjafarnir í Þýskalandi gerðu slæm mistök þegar spila átti þjóðsöngvana fyrir leik Íslands og Þýskalands á EM karla í handbolta í kvöld, í Lanxess Arena í Köln.

Karabatic tók met Guðjóns í sigri Frakka
Frakkland hafði betur gegn Króatíu í fyrsta leik liðanna í milliriðli á EM í handbolta en í leiknum bætti Nikola Karabatic ótrúlegt met.

Jafnt hjá Aroni og félögum
Aron Kristjánsson og lærisveinar hans í Barein gerðu jafntefli í fyrsta leik liðsins í milliriðli á Asíumótinu í handbolta.

Ein breyting á íslenska liðinu í kvöld
Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari í handbolta, hefur ákveðið að hafa þá Einar Þorstein Ólafsson og Kristján Örn Kristjánsson, eða Donna, utan hóps gegn Þýskalandi í kvöld.

Umfjöllun: Þýskaland - Ísland 26-24 | Færanýtingin kostaði sitt
Ísland mátti þola grátlegt tap gegn Þýskalandi á EM karla í handbolta eftir mjög góða frammistöðu varnarlega. Því miður fyrir strákana okkar var færanýtingin enn og aftur skelfileg. Má segja að leikur dagsins hafi tapast þar.

Austurrískur sigur skellur fyrir Íslendinga
Austurríki vann Ungverjaland, 29-30, í fyrsta leik dagsins á Evrópumótinu í handbolta. Úrslitin eru slæm fyrir Ísland í baráttunni um að komast í forkeppni Ólympíuleikanna.

Svona var EM-pallborðið: Hitað upp fyrir milliriðilinn
Íslenska karlalandsliðið í handbolta glímir við þýsku strákana hans Alfreðs Gíslasonar í fyrsta leik sínum í milliriðli 1 á Evrópumótinu í handbolta í kvöld.

Patrekur og Ásgeir spáðu í EM-spilin og nýtt spálíkan opinberað
Háskólinn í Reykjavík bauð til HR stofu í tengslum við EM í handbolta. Dr. Peter O‘Donoghue, prófessor við íþróttafræðideild HR, hefur gert nýtt spálíkan fyrir mótið sem tekur tillit til úrslita í riðlunum. Hann fór yfir spálíkanið og skoðaði einnig möguleika íslenska landsliðsins á að komast í forkeppni Ólympíuleikanna.

„Þá ættuð þið að heyra í okkur uppi á herbergi“
Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, lætur neikvæðni annarra í garð liðsins eftir tapið slæma gegn Ungverjalandi ekki á sig fá. Leikmenn séu sjálfir mun óvægnari í gagnrýni á eigin frammistöðu en blaðamenn.

Strákarnir hans Dags björguðu málunum í lokin
Japanska handboltalandsliðið er enn ósigrað í Asíukeppninni eftir sigur á Íran í fyrsta leik sínum í milliriðlinum.

Strákarnir okkar gefa langfæstar sendingar á Evrópumótinu
Mörgum finnst vanta meiri hraða og meira tempó í sóknarleik íslenska handboltalandsliðsins á Evrópumótinu í handbolta í Þýskalandi og tölfræðin styður þá skoðun.

Besta lið Evrópu betlaði pening: Pínlegasta augnablikið á ævinni
Kvennalið Vipers hefur unnið Meistaradeild Evrópu í handbolta undanfarin þrjú ár en norska félagið þurfti að grípa til örþrifaráða til að forðast gjaldþrot.

„Við ætlum að skemma stemninguna þeirra“
Ómar Ingi Magnússon vonast eftir að fyrsti „heili, góði“ leikur Íslands á EM í handbolta komi í kvöld, í „geggjaðri“ stemningu í Lanxess-höllinni í Köln þar sem Ísland mætir Þjóðverjum.

EM í dag: Goðsögnin og túlkurinn Alfreð
Henry Birgir Gunnarsson og Sindri Sverrisson eru líkt og íslenska landsliðið mættir í snjókomuna í Köln eftir langa lestarferð frá München í gær. Fram undan er risaleikur við Þjóðverja í kvöld.

„Góður leikur í dag gæti sprengt þetta allt upp“
„Núna er það mitt að rífa drengina í gang og fá menn til að trúa á þetta aftur. Finna það að það er eitthvað þarna sem við þurfum bara aðeins að losa um,“ segir Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsþjálfari í handbolta, fyrir leikinn við Þýskaland á EM í kvöld.

„Þeir boluðu Guðmundi í burtu, fengu sinn mann inn og verða að stíga upp“
Leikmenn íslenska karlalandsliðsins í handbolta verða að girða sig í brók og sýna betri frammistöðu. Þeir geti ekki lengur skýlt sér á bak við landsliðsþjálfarann. Þetta segir Einar Jónsson, þjálfari karlaliðs Fram.

Alfreð Gíslason ætlar að syngja báða þjóðsöngvana
Áhuginn á Alfreð Gíslasyni, landsliðsþjálfara Þýskalands, og þýska liðinu er magnaður. Það var heldur betur fjölmennt á fjölmiðlafundi hans í Lanxess-höllinni í gær. Það var her manna að elta kóng handboltans í landinu.

„Ég verð honum ævinlega þakklátur“
„Hann hefur haft gríðarleg áhrif [á mig og minn feril], örugglega einna mest,“ segir Aron Pálmarsson um Alfreð Gíslason, fyrrverandi læriföður sinn, sem stýrir Þýskalandi gegn Íslandi á EM í kvöld.

Besta sætið: „Fá Donna inn hægra megin, fórna Ómari og fórna Viggó“
Stefán Árni Pálsson ræddi við þá Einar Jónsson og Rúnar Kárason í nýjasta þætti hlaðvarpsþáttarins Besta sætið en þar var farið yfir leik Íslands og Ungverjalands á EM í handbolta í gærkvöldi.

„Getur annað hvort lagst niður eða reynt að rísa upp“
Bjarki Már Elíasson, hornamaður íslenska karlalandsliðsins í handbolta, sagði liðið hafa svekkt sig mikið á tapinu gegn Ungverjum í gær. Hann kvaðst þó bjartsýnn fyrir leikinn á morgun og telur liðið geta stillt saman strengi sína.

Valur rústaði Haukum í toppslagnum
Valur gerði sér lítið fyrir og vann 30-19 gegn Haukum í toppslag Olís deildar kvenna. Eftir jafnan leik lengst af hrundi Haukaliðið og skoraði aðeins eitt mark síðustu tuttugu mínútur leiksins.

Svíar með fullt hús stiga eftir sigur gegn Slóveníu
Svíþjóð vann 28-22 gegn Slóveníu í fyrsta leik milliriðilsins á Evrópumótinu í handbolta.