Menning

Bera saman bækur sínar

Langstærsta bókaútgáfa landsins er Forlagið og þar eru menn nú að koma sér í stellingar fyrir jólabókaflóðið, sem er þegar hafið, með sérlegu bókakaffi og jólaboði.

Menning

Aðventutónar á Akureyri

Á morgun kl. 18 verða aðventutónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands í Íþróttahúsi Glerárskóla á Akureyri. Einsöngvarar á tónleikunum eru Dísella Lárusdóttir og Jóhann Smári Sævarsson og hefjast tónleikarnir kl. 18.

Menning

Myndir á staurum

Ung listakona frá Noregi sem hér er sest að og sinnti störfum kynningarstjóra Norræna hússins, Ellen Marie Fogstad, efnir til óvenjulegrar ljósmyndasýningar á morgun í Austurstræti. Milli kl. 13 og 19 hengir hún myndir sínar á ljósastaura í Austurstræti.

Menning

Jólaóratorían á morgun

Á morgun verða tónleikar í Langholtskirkju þar sem Dómkórinn í Reykjavík, ásamt tuttugu og fimm manna hljómsveit og einsöngvurum, flytur þrjár af kantötum Jóhanns Sebastian Bach úr einu af hans helgu verkum, Jólaóratoríunni.

Menning

Jólabasar listaspíra

Á morgun kl. 12 verður opnaður Jólabasar Kling og Bang í húsnæði hópsins að Hverfisgötu 42. Verður þar opið til kl. 20. Þar mun fjölbreyttur hópur hönnuða selja verk sín, skemmtileg blanda af vöruhönnuðum, fatahönnuðum og grafískum hönnuðum.

Menning

Jólatrommur inni í verslun

Opinn trommuhringur verður haldinn í verslun Hljóðfærahússins að Síðumúla á laugardag klukkan 14. „Núna þegar skammdegið er að taka öll völd og jólastreitan er í þann veginn að ná tökum á okkur er tilvalið að setjast saman og tromma frá okkur áhyggjur og angur,“ segir í tilkynningu.

Menning

Las upp úr nýju ævintýri

J.K. Rowling, höfundur Harry Potter-bókanna, las fyrir skömmu upp úr nýrri bók sinni, The Tales of Beedle the Bard, fyrir tvö hundruð skólabörn á þjóðarbókasafninu í Skotlandi.

Menning

Skapari í innsetningu

Í tengslum við sýningu Mathilde ter Heijne í Gallery 101 Projects (gömlu smiðjunni bak við Alþjóðahúsið á Hverfisgötu) hefur sýningarstjórinn Birta Guðjónsdóttir ráðist í að skipuleggja uppákomur næstu vikur fyrir hátíðir.

Menning

Fimm skáld í Land Cruiser Þorgríms

„Nei, nei, það var engin spenna okkar á milli. Þetta er nú allt fólk sem þekkist vel og veit sem er að við stjórnum litlu hvað þessar tilnefningar varðar,“ segir Einar Kárason rithöfundur.

Menning

Axlarbrot tafði frumsýningu

„Já, við erum hérna nokkrir ógæfumenn á Grand Rokki að setja upp jólasýningu,“ segir Böggi, eða Björgúlfur Egilsson, tónlistarmaður með meiru.

Menning

Sálumessa á miðnætti

Óperukórinn í Reykjavík mun verða með sérstaka og eftirminnilega tónleika í Langholtskirkju í nótt. Þar verður flutt Requiem eftir Wolfgang Amadeus Mozart og hefst flutningurinn kl. 00.30, það er upp úr miðnætti.

Menning

Fræðasetur opnað

Í dag verður Rannsókna- og fræðasetur Háskóla Íslands á Húsavík formlega opnað. Starfsemi setursins hófst fyrir ári í bráðabirgðahúsnæði að Garðarsbraut 19, en flutti nýverið í nýtt og glæsilegt húsnæði að Hafnarstétt 3 (gamla Langaneshúsið).

Menning

Brettadramað um Óþelló

Farandsýning sem hefur ferðast á milli menntaskólanna í Reykjavík og verður á ferðinni út fyrir borgarmörkin eftir jól er nú sest að í Íslensku óperunni. Almennum leikhúsgestum gefst nú eitt tækifæri til að sjá sýninguna Óþelló Parkour.

Menning

Lesið hátt á kaffihúsum

Nú er títt og hátt lesið úr nýútkomnum bókum á kaffihúsum: í kvöld verður upplestrarkvöld kl. 20 á Café Loka á Lokastíg. Vilborg Dagbjartsdóttir les upp úr bókinni Dagbók Héléne Berr, sem fjallar um örlög franskrar gyðingastúlku á tímum síðari heimstyrjaldarinnar.

Menning

Veislunni er loksins lokið

Í kvöld frumsýnir Nemendaleikhúsið Kirsuberjagarðinn eftir Anton Tsjekhov á Litla sviði Borgarleikhússins. Sýningin er hluti af lokaári árgangs í leiklistardeild Listaháskóla Íslands.

Menning

Arnaldur fær heilsíðu í TIME

Heilsíðuumfjöllun um Arnald Indriðason og höfuðpersónu hans, rannsóknarlögreglumanninn Erlend Sveinsson, er í nýjasta hefti TIME. Blaðamaðurinn Pete Gumbel telur Erlend vera arftaka útrásarvíkinganna.

Menning

Elín Ósk í Hafnarborg

Á morgun kl. 12.00 verða tíundu tónleikar ársins í hádegistónleikaröð Hafnarborgar, menningar- og listastofnunar Hafnarfjarðar. Hafnarborg hefur frá því síðla sumars 2003 staðið fyrir tónleikum í hádegi einu sinni í mánuði.

Menning

Víkingur Heiðar leikur einleik

Víkingur Heiðar Ólafsson mun leika einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands á morgun. Þar mun hinn ungi píanómeistari leika píanókonsert nr. 3 eftir Béla Bartók.

Menning

Tilnefndar til Norðurlandaverðlauna

Í gær var tilkynnt hvaða íslensk skáldverk eru tilnefnd til úrskurðar dómnefndar um Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs 2009. Íslensku valnefndina skipuðu þau Soffía Auður Birgisdóttir bókmenntafræðingur og Aðalsteinn Ásberg rithöfundur, en varamaður nefndarinnar var Jón Yngvi Jóhannsson bókmenntafræðingur.

Menning

Kór Áskirkju í kvöld

Í kvöld kl. 20 verða útgáfutónleikar í Áskirkju en kórinn þar hefur nú gefið út nýjan disk með jólalögum, Það aldin út er sprungið, og ætlar í kvöld að syngja lög úr því lagasafni. Fjögur ár eru liðin síðan Kirkjukór Áskirkju gaf út rómaðan disk með ættjarðarlögum, Það er óskaland íslenskt, sem naut mikillar hylli og var verðlaunaður.

Menning

Góð stemning í Kassanum

Það var margt um manninn á tískusýningu sem Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikkona stóð fyrir í Kassanum á fimmtudagskvöldið. Sýndir voru bolir sem hún hannaði ásamt Elínu Þórhallsdóttur í tengslum við sýninguna Utan gátta, en þær stöllur hanna undir merkinu Lollell.

Menning

Kántrímessa annan í jólum

„Þetta verður ekkert Country Road eða Devil Went Down To Georgia. Þarna verður amerísk jólastemning sem er ekki verri jólastemning en hver önnur," segir séra Guðmundur Karl Brynjarsson, sóknarprestur í Lindakirkju í Kópavogi, um sveitamessu sem þar verður haldin annan í jólum.

Menning

Þröstur endurheimti Edduna

„Já, ég er loksins búinn að fá hana,“ segir leikarinn Þröstur Leó Gunnarsson sem endurheimti Eddu-verðlaunin fyrir leik sinn í Brúðgumanum á miðvikudagskvöldið.

Menning

Einleikur Jóns Atla vekur athygli ytra

Jón Atli Jónasson frumsýnir eftir áramót einleik sinn Djúpið. Ingvar E. Sigurðsson fer þar með hlutverk manns sem lendir í skip-skaða og þarf að synda til lands. Á meðan sundinu stendur horfist skipbrotsmaðurinn í augu við það sem skiptir hann mestu máli í lífinu.

Menning

Kvennakórar heiðra Jón

Á morgun er fyrsti sunnudagur í aðventu og þá munu nokkrir kvennakórar víðs vegar af landinu frumflytja jólalagið Ég heyrði þau nálgast, eftir tónskáldið Jón Ásgeirsson.

Menning

Kennileiti úr minni þjóðar

Þrír karlmenn, tvær kynslóðir, Finnbogi og Ólafur Haukur fæddir 45 og 47, Óskar Árni fæddur 59. Þrjár bækur sem rekja æskuár, tvær styðja frásögnina myndefni sem tengjast textunum. Sögusviðið er í kjarna sínum hverfið: Njálsgata, Jófríðarstaðahverfið austan við Eiði og Þingholtin, en í endurminningunni er leitað víðar: Óskar Árni fer lengst, austur á Langanes og alla leið til Winnipeg.

Menning

Holberg-verðlaun veitt

Á miðvikudag voru Holberg-verðlaunin veitt í Osló. Bandaríski bókmenntafræðingurinn Fredric R. Jameson þáði viðurkenninguna og 4,5 milljónir norskra króna fyrir að hafa dregið menningarfræði inn í sögulegt samhengi.

Menning

Nýr höfundur mættur

Í dag kl. 14 flytur Útvarpsleikhúsið nýtt íslenskt leikrit á Rás 1 Ríkisútvarpsins, Spor eftir Starra Hauksson. það er frumraun hans í Útvarpsleikhúsinu. Verkið dregur upp ljóðræna mynd af lífinu í kjölfar áfalls sem markar djúp spor í tilveruna. Andri er að verða þrítugur og býr einn. Í dag er afmælisdagur móður hans. Andri kemst ekki í afmælið því hann er upptekinn, eða kannski er hann upptekinn af því að vilja ekki mæta. Fyrir ári, á þessum degi, gerðist nokkuð sem olli straumhvörfum í lífi hans, fjölskyldunnar og vinahópsins. En örlögin grípa í taumana og Andri fær ekki lengur umflúið að horfast í augu við atburðinn – og sjálfan sig um leið.

Menning

Hirðfífl íslenska krimmans

„Já, ætli ég sé þá ekki bara hirðfífl íslenska krimmans? Er það ekki fínt? Það eru þau sem hafa hin raunverulegu völd. Rödd sannleikans. Eins og ástandið er í dag held ég að hinir titlarnir séu ekkert sérlega eftirsóknarverðir,“ segir Ævar Örn Jósepsson sem á föstudag sendi frá sér sinn fimmta krimma: Land tækifæranna.

Menning

Framlag Haralds

Einn helsti áhrifamaður þjóðarinnar á síðustu öld var Haraldur Nielsson. Á morgun er þess minnst með málþingi í Þjóðarbókhlöðu að 140 ár eru liðin frá fæðingu hans og öld liðin frá því hann gaf út umdeilda þýðingu á Gamla testamentinu. Á málþinginu talar sonur Haralds, Jónas Haralz, fyrrverandi bankastjóri, um föður sinn og prófessorarnir Pétur Pétursson, Gunnlaugur A. Jónsson, Erlendur Haraldsson og Gunnar Kristjánsson prófastur fjalla um ævi og störf Haralds.. Dagskráin hefst í Fríkirkjunni í Reykjavík með messu kl. 11 og málþingið hefst í Þjóðarbókhlöðunni kl. 13.15. Sýningin verður opnuð kl. 15.30.

Menning