Sól sló í gegn á tískuviku í London Fatahönnuðurinn Sól Hansdóttir hefur vakið athygli undanfarin ár og er meðal annars í miklu uppáhaldi hjá fyrrum forsetafrúnni Dorrit Moussaieff. Sól, sem heitir réttu nafni Sólveig Dóra, hefur sýnt línur sínar víða um heim og var með vel sótta sýningu á tískuvikunni í London í fyrradag. Tíska og hönnun 23.9.2026 09:30
Fjögurra ára fyrirsætusonur stal senunni Það var margt um manninn í bílakjallara Kringlunnar síðastliðinn fimmtudag. Tilefnið var tískusýning þar sem hausttískunni var gerð góð skil í glæsilegri umgjörð og lýsing, tónlist og stílisering sköpuðu einstaka stemningu. Tíska og hönnun 21.9.2026 11:57
Óttinn við að vera of venjuleg drifkrafturinn „Ég klæði mig auðvitað fyrst og fremst fyrir sjálfa mig en það væri líka frekar dapurlegt að skapa öll þessi listaverk og sýna aldrei neinum þau,“ segir hin tvítuga Emma Kjartansdóttir, fatahönnunarnemi í LHÍ og tískuáhugakona með meiru. Tíska og hönnun 16.9.2026 11:31
Tískan við þingsetningu: Sólgleraugu, haustlitir og Sigmundur Ernir stal senunni Tíska og hönnun 8.9.2026 15:35
„Ég vil ekki sjá neina punga takk fyrir“ „Mig langaði ekkert til að vera skvísa fyrr en töluvert seinna. Ég rakaði líka af mér allt hár þegar ég var tólf ára bara af því ég gat það,“ segir hin 21 árs gamla Aðalfríður Mekkín Samúels, sem er oftast kölluð Mekkín. Hún er mikill tískuunnandi, er óhrædd við að skera sig úr og hefur sannarlega gaman að því að klæða sig upp en hún ræddi við blaðamann um stílinn sinn og fataskáp. Tíska og hönnun 19.8.2026 20:02
María Hrund á lista Vogue yfir þau best klæddu Hin 24 ára gamla María Hrund naut sín í botn á tískuviku í Kaupmannahöfn full af innblæstri á meðan hún veitti tískuinnendum sjálf mikinn innblástur með frumlegum og skemmtilegum klæðaburði. María starfar sem verslunarstjóri Andrá Reykjavíkur og lifir og hrærist í heimi tískunnar. Tíska og hönnun 11.8.2026 13:28
„Hef engar áhyggjur af því hvað þeim finnst“ „Ég elska þegar fólk klæðist litríkum fötum, það birtir svo til á móti gráa veðrinu hér heima,“ segir hin nítján ára gamla Rakel María Gísladóttir. Rakel starfar sem plötusnúður og hefur mikinn áhuga á tjáningarformi tískunnar. Hún ræddi við blaðamann um fataskápinn, persónulegan stíl, að hunsa álit annarra og fleira fjör. Tíska og hönnun 7.8.2026 07:01
Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Mörkin á milli tísku, myndlistar og gjörningalistar eiga það til að vera óljós og eitt listform flæðir gjarnan yfir í annað. Listamennirnir Þorleifur Thorlacius Þrastarson og Rökkvi Kárason hafa verið að leika sér að einmitt þessu í sköpun sinni og afhjúpuðu afraksturinn með allsherjar tískusýningu í bílakjallara Molans í Kópavogi. Tíska og hönnun 28.7.2026 17:00
„Betra að vera sein og sæt en fljót og ljót“ „Ég hef gaman af því þegar eitthvað sérstakt eða umdeilt kemur í tísku og setur Internetið alveg á hliðina,“ segir hin 21 árs gamla Snædís Baldursdóttir sem elskar tísku og hlakkar alltaf til að klæða sig upp. Hún starfar á leikskóla og sem stuðningsfulltrúi í grunnskóla samhliða því að sinna fyrirsætustörfum í frítíma sínum. Í haust stefnir hún á lögfræðinám við Háskóla Íslands. Tíska og hönnun 27.7.2026 20:01
Heitast að vera aðeins of fín, alltaf „Ég trúi ekki á tískubönn. Þú getur púllað nánast hvað sem er ef þú berð það með sjálfstrausti,“ segir 23 ára gamli fatahönnuðurinn Stella Michiko. Stella lýsir sér sem eilífum safnara og starfar sömuleiðis hjá tískuversluninni Aftur sem hún elskar. Hún útskrifaðist úr fatahönnun frá LHÍ í vor og tískan er órjúfanlegur hluti af hennar tilveru. Tíska og hönnun 12.7.2026 20:00
Stórbrotinn stíll Zendayu Það er of vægt til orða tekið að segja að leikkonan Zendaya beri af í klæðaburði. Engin önnur stjarna kemst með tærnar þar sem hún hefur hælana og undanfarið hefur henni tekist að toppa sjálfa sig algjörlega. Tíska og hönnun 7.7.2026 14:00
Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tískuhúsið Schiaparelli er eitt það heitasta í dag og vekur alltaf hvað mesta athygli á tískuvikum víða um heim. Daniel Roseberry er listrænn stjórnandi merkisins og einkennist hönnun hans af gríðarlegri sköpunargleði og frumlegheitum sem hafa aldrei sést fyrr. Tíska og hönnun 6.7.2026 15:54
Osaka best klædd á Wimbledon Tennisdrottningin Naomi Osaka fer alltaf eigin leiðir í tískunni og ber af hvert sem hún fer, þá sérstaklega þegar hún hitar upp fyrir tennisleiki. Þessi tískubrautryðjandi er þekkt fyrir tískuáhættu og klæðin hennar segja alltaf skemmtilega sögu. Tíska og hönnun 2.7.2026 07:03
Krýndur tískukóngur fótboltans Norska fótboltastjarnan Erling Haaland hefur spilað sig inn í hjörtu margra fótboltaunnenda og eru fáir leikmenn sem hafa vakið jafn mikla athygli á HM í ár, sérstaklega ef marka má samfélagsmiðilinn TikTok. Hann er ekki bara stjarna í fótboltanum því hann virðist vera einn sá vinsælasti hjá tískuheiminum líka. Tíska og hönnun 1.7.2026 11:01
Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin „Mamma stelpunnar tók á móti mér, hringdi í dóttur sína og var ekkert rosalega ánægð,“ segir hin 23 ára gamla Elísabet Krista um ógleymanleg kaup á uppáhalds flíkinni sinni. Krista, eins og hún er oftast kölluð, er nýútskrifuð úr viðskiptafræði frá Háskóla Íslands, starfar sem flugfreyja og er mikil tískuáhugakona en hún ræddi við blaðamann um tískuna, fataskápinn og fleira. Tíska og hönnun 30.6.2026 11:31
Synir Britney gengu tískupallinn í París Jayden James og Sean Preston, synir hinnar heimsfrægu söngkonu Britney Spears, vöktu athygli og lukku á tískuvikunni í París á dögunum þegar þeir gengu tískupallinn fyrir hátískuhönnuði. Strákarnir, sem eru nítján og tuttugu ára gamlir, eru að stíga sín fyrstu skref í bransanum. Tíska og hönnun 29.6.2026 13:14
„Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ „Lífið er alltof stutt til að klæða sig ekki upp,“ segir hin 33 ára fjölhæfa tískudrottning Telma Fanney. Telma er meistaranemi í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík og samhliða náminu starfar hún sem hóptímaþjálfari í World Class og stuðningsráðgjafi á íbúðarkjarna. Hún er sömuleiðis mikill tískuunnandi og óhrædd við að skína skært. Tíska og hönnun 26.6.2026 07:00
„Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ „Það skiptir mig held ég bara mestu máli að klæðast fötum sem gleðja mig og það er ekki verra ef þau gleðja aðra í leiðinni,“ segir hin 32 ára gamla Margrét Sif Sigurðardóttir sem starfar sem lyfjafræðingur hjá Alvotech og er mikill tískuunnandi. Tíska og hönnun 22.6.2026 20:00
Hannaði frægasta brúðarkjól ársins Stórstjarnan og popp-prinsessan Dua Lipa giftist leikaranum Callum Turner á Sikiley 6. júní og var um að ræða stærsta stjörnubrúðkaup ársins. Mikil leynd hefur ríkt yfir öllu sem átti sér stað í brúðkaupinu og þá hafa tískuunnendur verið sérstaklega forvitnir að vita hverju Dua Lipa kaus að klæðast. Nú hefur það verið afhjúpað. Tíska og hönnun 22.6.2026 10:31
Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Skikkja, eða ponsjó, Jökuls Júlíussonar úr Kaleo vakti sannarlega athygli á tónleikum á Þingvöllum í gær. Konan sem prjónaði skikkjuna segist strax í dag hafa fengið fjölda fyrirspurna vegna hönnunarinnar en hún segist hvorki selja flíkur né uppskriftir. Skikkjan er nú komin í eigu Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands. Tíska og hönnun 21.6.2026 13:43
Dóttir Obama í íslenskri hönnun Malia Obama skartaði hælaskóm frá íslenska skómerkinu Kalda í vikunni er hún sótti opnunarhátíð safns sem tileinkað er forsetatíð föður hennar, Baracks Obama fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Tíska og hönnun 20.6.2026 11:50
Heitustu tískutrendin í sumar Litagleði og glamúr lifnar við á sumrin hérlendis og virðast fleiri þora að taka áhættu þegar sólin skín. Ný trend skjótast fram sem eru þó oftar en ekki gömul og endurnýtt, enda tískan þekkt fyrir það að fara í hringi. Tíska og hönnun 16.6.2026 09:51
„Það má herma“ „Eftir því sem ég verð öruggari í eigin skinni þá tek ég fleiri sénsa og það er svo miklu skemmtilegra,“ segir rekstrarþróunarstjórinn Ásthildur Bára Jensdóttir sem er mikil tískupæja og alltaf vel til höfð. Ásthildur rekur sitt eigið fyrirtæki sem sérhæfir sig í markaðsráðgjöf og hefur alla tíð haft áhuga á klæðaburði. Tíska og hönnun 10.6.2026 20:00
Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM Heimsmeistaramótið í fótbolta hefst á morgun, fimmtudaginn 11. júní, en meðal þeirra sem hafa sest niður, rætt sín á milli og loks spáð fyrir um hvernig úrslit mótsins fara eru stelpurnar í fataversluninni Kjólum og konfekti. Sex kjólar í fánalitum skarta sem stendur búðarglugga verslunarinnar og segist eigandi aldrei hafa séð eins marga karlmenn stoppa við búðargluggann til að virða kjólana fyrir sér. Tíska og hönnun 10.6.2026 17:08
„Ég sef í gallabuxum“ „Amma var ótrúlega skapandi og efnileg í öllu og ég er svo þakklátur að seinasta verkefni hennar var fyrir mig,“ segir hinn 21 árs gamli Úlfur Ísberg sem er mikill tískuunnandi. Úlfur hefur nám í fatahönnun við Listaháskóla Íslands í haust og er nú þegar farinn að vekja athygli í samfélaginu fyrir einstaklega skemmtilegan klæðaburð. Tíska og hönnun 6.6.2026 07:01