Ísland og ESB: samningsmarkmið, aðildarviðræður og Evran
Þótt öll ný aðildarríki ESB séu skuldbundin til að taka upp evru má fresta því um óákveðinn tíma. Ríkin sem hafa valið að taka ekki upp evru gera það af því ekki síst að það er pólitískur meirihluti fyrir sjálfstæðri peningastefnu. Þarna virðist meðal annars á ferðinni gildismat sem hverfist um fullveldið og að geta haft ákvörðunarvald yfir efnahagsstefnunni, einkum ef áföll verða.