
Viðskipti innlent

Ver vaxtahækkunina: Ekki hægt að selja brauðið ódýrara en hveitið
Bankastjóri Arion banka segir að þegar stýrivextir lækki ekki í takt við lækkandi verðbólgu þá hækki verðtryggðir vextir. „Þess vegna þurftum við nýverið að hækka vexti verðtryggðra lána.“

Hafa veitt virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun
Orkustofnun gaf í dag út virkjunarleyfi fyrir Hvammsvirkjun í Þjórsá. Landsvirkjun mun í kjölfarið sækja um framkvæmdaleyfi til bæði Rangárþings ytra og Skeiða- og Gnúpverjahrepps, en mannvirki tengd virkjuninni verða í báðum sveitarfélögunum. Enn er stefnt að því að Hvammsvirkjun taki til starfa fyrir árslok 2028.

Ekki króna í þrotabúi Base parking
Ekki króna fékkst upp í lýstar kröfur í þrotabú Siglt í strand ehf., sem hét áður Base parking ehf.. Lýstar kröfur námu tæpum 59 milljónum króna.

Alma sótti tvo milljarða
Alma íbúðafélag hf. hefur lokið útboði á nýjum skuldabréfaflokki sem gefinn er út undir útgáfuramma félagsins. Seld voru skuldabréf fyrir 2,1 milljarð króna.

Árni verður hægri hönd Decks
Árni Sigurðsson, forstjóri Marels, verður næstráðandi í sameinuðu félagi JBT og Marels verði af sameiningu.

Vefsíðan hrundi innan tuttugu mínútna
Ný vefverslun áfengis opnaði í dag í samstarfi Haga Wine og Hagkaups. Framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir fólk ekki þurfa að hafa áhyggjur af afleiðingum þess á lýðheilsu eða drykkju í samfélaginu og að Hagkaup sé með ströngustu skilyrðin þegar það kemur að áfengiskaupum hér landi

Elstu starfandi fiskbúð höfuðborgarsvæðisins skellt í lás
Fiskbúðinni í Trönuhrauni í Hafnarfirði hefur verið lokað. Fiskbúðin var elsta starfandi fiskbúðin á höfuðborgarsvæðinu.

Skildu fullar körfur eftir vegna bilunar
Fjöldi viðskiptavina Bónuss hefur lent í því í morgun að geta ekki greitt með greiðslukorti vegna bilunar í færsluhirðingu hjá Verifone. Ekki liggur fyrir hvort bilunar hafi orðið vart víðar.

Verðbólga fari undir fimm prósent í lok árs
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs hækki um 0,08 prósent á milli mánaða í september og að verðbólga minnki úr 6,0 prósent niður í 5,7 prósent. Deildin á von á áframhaldandi lækkun næstu mánuði og að ársverðbólga verði komin niður í 4,9 prósent í lok árs. Íslandsbanki spáir örlítið meiri verðbólgu í lok árs.

Hagkaup hefur áfengissölu í dag
Í dag opnar ný vefverslun með áfengi á léninu veigar.eu, í samstarfi Haga Wine og Hagkaups. Viðskiptavinum gefst nú tækifæri til að kaupa áfengi á netinu og sækja í Skeifuna um leið og þeir kaupa aðrar vörur til heimilisins.

Ráðinn fjárfestatengill Icelandair
Kristófer Númi Hlynsson hefur verið ráðinn sem fjárfestatengill Icelandair.

Veðjuðu næst mest allra Evrópuþjóða
Íslendingar veðjuðu næst mest allra Evrópuríkja árið 2023 en aðeins Írar vörðu meiri fjármunum í veðmál.

Þungur róður hjá Samstöðinni
Fjölmiðillinn Samstöðin tapaði 24 milljónum króna á síðasta ári. Rekstrargjöld stöðvarinnar voru ríflega þrefalt hærri en tekjurnar.

Ráðin framkvæmdastjóri VSB verkfræðistofu
Lilja G. Karlsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri hjá VSB verkfræðistofu. Í tilkynningu segir að hún hafi tekið við 15. júlí síðastliðinn en hún hafi hafið störf hjá fyrirtækinu árið 2021 sem sviðsstjóri Byggðatæknisviðs.

Flugrisar funda í Hörpu vegna seinkana og aflýsinga
Fulltrúar flugfélaganna United, Southwest, British Airways, Virgin Atlantic, SAS, Emirates, Etihad, Icelandair og Play eru meðal þeirra sem komin eru saman til fundar í Hörpu til að ræða hvernig bæta megi upplifun farþega við röskun á flugi.

Farþegafjöldinn í ágúst svipaður og á síðasta ári
Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 281 þúsund í ágúst samkvæmt upplýsingum frá Ferðamálastofu. Þetta er svipaður fjöldi og í ágúst á síðasta ári.

Kveður ostasnakkið fyrir Wolt
Jóhann Már Helgason hefur verið ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs hjá heimsendingaþjónustunni Wolt á Íslandi. Hann hefur undanfarin fimm ár starfað sem fjármálastjóri Lava cheese.

Félagar opna Fiskbúðina við Sundlaugaveg á ný
Aron Elí Helgason og Egill Makan munu á næstu vikum opna á ný Fiskbúðina við Sundlaugaveginn. Verslunin er elsta fiskverslun höfuðborgarsvæðisins og var lokað skyndilega í vor. Fiskbúð hefur verið rekin í húsnæðinu frá árinu 1947.

Eyrún og Þorgils til SI
Eyrún Arnarsdóttir og Þorgils Helgason hafa verið ráðin til Samtaka iðnaðarins.

Play bætir við áfangastað í Króatíu
Flugfélagið Play hefur hafið miðasölu á áætlunarferðum til borgarinnar Pula í Króatíu. Um er að ræða annan áfangastað félagsins til Króatíu en boðið hefur verið upp á ferðir til Split.

Stefnt á 41 milljarðs króna hallarekstur ríkissjóðs
Gert er ráð fyrir að hallarekstur ríkissjóðs dragist saman um sextán milljarða króna á milli ára og nemi 41 milljarði króna árið 2025 samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sem var kynnt í morgun. Þar er boðað aðhald til þess að ná tökum á verðbólgu og vöxtum.

Matorka fékk samþykkta greiðslustöðvun
Héraðsdómur Reykjaness hefur samþykkt beiðni landeldisfyrirtækisins Matorku um greiðslustöðvun. Fyrirtækið fór fram á greiðslustöðvun til að tryggja sanngirni gagnvart öllum kröfuhöfum í yfirstandandi samningum.

Hlutur Skeljar stækkar eftir áreiðanleikakönnun
Áreiðanleikakönnunum í tengslum við samruna Samkaupa og tiltekinna félaga í samstæðu Skeljar fjárfestingafélags er lokið. Nú er áætlað að hlutur Skeljar í sameiginlegu félagi verði 47 prósent en áður var áætlað að hann yrði 42,7 prósent.

Öllu starfsfólki Northern Light Inn sagt upp
Öllu starfsfólki hótelsins Northern Light Inn var sagt upp síðustu mánaðamót eða alls 25 manns. Friðrik Einarsson eigandi hótelsins kallar eftir því að rekstrarstyrkir stjórnvalda til fyrirtækja í Grindavík verði endurskoðaðir. Hann geti aðeins greitt laun með því að hafa hótelið lokað. Á meðan það er lokað verði bókunarstaða áfram léleg.

Kristrún Lilja stýrir nýju sviði hjá Orkuveitunni
Kristrún Lilja Júlíusdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður nýrrar einingar, stafrænnar stefnumiðaðrar umbreytingar hjá Orkuveitunni. Kristrún kemur frá Íslandsbanka, þar sem hún hefur gegnt lykilhlutverki sem forstöðumaður daglegra bankaviðskipta.

Mannlíf sektað vegna tóbaksauglýsinga
Fjölmiðlanefnd sektaði fjölmiðlafyrirtækið Sóltún, sem rekur fjölmiðilinn Mannlíf, um 250 þúsund krónur fyrir að brjóta á lögum um fjölmiðla með því að auglýsa bæði nikótín- og áfengisvörur á vef Mannlífs í keyptri umfjöllun á vef miðilsins.

Bónus og Jysk ríða á vaðið í Korputúni
Forsvarsmenn Bónuss og Jysk hafa samið við Reiti um verslunarhúsnæði í Korputúni. Vegagerð er þegar hafin í nýju atvinnuhverfinu, sem rísa mun við Vesturlandsveg á mörkum Reykjavíkur og Mosfellsbæjar. Svæðið tilheyrir Blikastaðalandi í Mosfellsbæ þar sem fyrirhuguð er umfangsmikil uppbygging nýs íbúðahverfis.

Sætanýtingin aldrei verið betri
Flugfélagið Play flutti 187.960 farþega í ágúst 2024, sem er 1,8 prósenta aukning frá ágúst í fyrra þegar félagið flutti 184.926 farþega. Sætanýtingin í nýliðnum ágústmánuði var 91,6 prósent, sem er met í einum mánuði hjá félaginu en um er að ræða 2,7 prósenta aukningu frá ágúst í fyrra þegar sætanýtingin var 88,9 prósent.

Gerður í Blush orðlaus yfir auglýsingum Play
Eigandi kynlífstækjaverslunarinnar Blush segist orðlaus yfir auglýsingum flugfélagsins Play þar sem stór kvenmannsbrjóst og stinnur karlmannskroppur koma við sögu. Margir gagnrýna auglýsingarnar en aðrir segja fólki að anda með nefinu og kunna vel að meta.

Fimm ára samningar heyra sögunni til hjá Ölmu
Alma íbúðafélag sem hingað til hefur gert allt að fimm ára leigusamninga hefur ákveðið að bjóða aðeins upp á 13 mánaða leigusamning. Tilefnið er ný húsaleigulög sem tóku gildi um mánaðamótin.