Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Björn Berg Gunnarsson skrifar 5. maí 2026 07:03 Björn Berg Gunnarsson svarar lesendum Vísis aðra hverja viku. Hægt er að senda honum spurningu í spurningaforminu hér fyrir neðan. Vísir/Vilhelm 64 ára karlmaður spyr: „Sæll Björn. Ef þú geymir fé á verðtryggðum bankareikningi, er þá eðlilegt að greiða fjármagnstekjuskatt af verðtryggingunni? Reikningseigandi er ekki að hagnast neitt á því að geyma féð, það á eingöngu að halda sínu verðgildi. Er að hugsa þetta út frá barnabörnum sem eru að byrja að spara fyrir fasteign. Get ég með góðu móti ráðlagt barnabörnunum að leggja inn á verðtryggða reikninga, ef reikningurinn heldur ekki verðgildi sínu þar sem þú greiðir 22% fjármagnstekjuskatt af verðtryggingunni?“
Það er óneitanlega sérkennilegt að vera rukkaður um skatt af engri arðsemi. En þannig er nú skattkerfið okkar. Endrum og sinnum hefur verið rætt um að endurskoða skattstofn fjármagnstekjuskatts svo eingöngu raunávöxtun sé skattlögð, en einhverra hluta vegna virðist lítill áhugi hafa verið á þeirri breytingu eða illa gengið. Munurinn á raun- og nafnávöxtun Þeir vextir sem greiddir eru af bankabókum, sem og verðtrygging verðtryggðra reikninga, er kölluð nafnávöxtun. Sem dæmi má nefna að ef óverðtryggður reikningur ber 7% vexti á ári er nafnávöxtun hans líka 7% það árið. Ef verðtryggður reikningur ber 1,7% vexti og verðbólga er 5,2% á tímabilinu er nafnávöxtunin sömuleiðis rétt tæp 7%, eða: (1+0,017)x(1+0,052)-1 Þú getur reiknað út nafn- og raunávöxtun í þessari reiknivél. Fjármagnstekjuskattur er greiddur af nafnávöxtun Spari barnabörn þín fyrir íbúðarkaupum á verðtryggðri bankabók, verður 22% fjármagnstekjuskattur dreginn af allri nafnávöxtun bókarinnar, eins og þú nefnir. Hafi þau sem dæmi lagt fyrir 10 milljónir króna á þann verðtryggða reikning sem nefndur var áður ætti ávöxtun þeirra það árið að vera: 10.000.000 kr. x 0,0699 = 699.000 kr. Verðbólgan hefur þó rýrt verðgildi peninganna um 5,2% og er raunveruleg ávöxtun þeirra aðeins 1,7% raunvextir bókarinnar, eða 170.000 kr. Nú er fjármagnstekjuskattur þó dreginn af nafnávöxtuninni: 699.000 kr. x 22% = 153.780 kr. Skatturinn nemur því 90% af raunávöxtun. Hins vegar má ekki gleyma frítekjumarki fjármagnstekna, sem draga má m.a. frá ávöxtun bankareikninga. Frítekjumarkið nemur 300.000 kr. hjá einstaklingi á ári og fæst sá skattur sem greiddur er af þeim 300.000 kr. endurgreiddur ári síðar. Skattlagning að teknu tilliti til frítekjumarksins er því minni, en þó afar mikil: (699.000 kr. – 300.000 kr.) x 22% = 87.780 kr. Skatturinn nemur því, þegar upp er staðið, um 52% af raunverulegri ávöxtun sparnaðarins. Fengist sama nafnávöxtun af óverðtryggðri bankabók væru áhrifin þau sömu og því hallar ekki sérstaklega á verðtryggðar bækur í þessu samhengi. Þetta er gott að hafa í huga þegar fjárfest er og sparað. Taka þarf tillit til hárra skatta og jafnvel kostnaðar sem til fellur við ávöxtun fjármuna. Vegna skerðinga getur ávöxtun verið verulega neikvæð Enn meiri eru áhrifin þegar sparifjáreigandi fær einnig greiðslur frá almannatryggingum. Auk þess sem greiddur er fjármagnstekjuskattur af nafnávöxtun eru greiðslur skertar vegna nafnávöxtunar. Því er alls ekki óalgengt að skattar og skerðingar verði meiri en sem nemur raunávöxtun fjármunanna. Það þýðir þó alls ekki að það borgi sig að geyma spariféð undir koddanum, þar sem verðbólgan nær að kveikja í seðlabuntinu þar, rétt eins og bankabókinni. Svona eru reglurnar í dag og lítið sem bendir til þess að skatturinn lækki í bráð. Raunar var fjármagnstekjuskattur af leigutekjum hækkaður um helming um síðustu áramót og oftar heyrist rætt um enn frekari hækkanir en lækkanir. Hvettu barnabörnin þó til að gefast ekki upp þótt á móti blási. Þau ná vonandi að viðhalda hið minnsta raunvirði þess sem lagt er fyrir og geta þar að auki nýtt viðbótarlífeyri sinn skattfrjálst við fyrstu kaup.
Björn Berg Gunnarsson Fjármálin með Birni Berg Fjármál heimilisins Tengdar fréttir Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? 30 ára karlmaður spyr: „Blessaður Björn, við konan erum að flytja til Íslands frá Danmörku og viljum kaupa okkur hús, helst utan höfuðborgarsvæðisins. Við þurfum því að safna okkur töluverðum pening. Spurning mín til þín er því hvað þurfum við að hafa í huga? Eru einhver tips & trick fyrir fyrstu kaupendur? Eigum við að safna pening á sparnaðarreikning (sem í dag hefur góða vexti)? Allar hugmyndir vel þegnar. Bestu kveðjur.” 24. mars 2026 07:00 Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? 30 ára karl spyr: Hvernig finnur maður betur jafnvægið á milli eyðslu og sparnaðar? Ég hef haldið ítarlegt bókhald um öll föst útgjöld í excel og alla neyslu síðan ég keypti mína fyrstu íbúð 24 ára. Ég er almennt duglegur að spara og borga reglulega aukalega á lánið mitt. Hinsvegar á ég stundum erfitt með að „spreða“. Ég hugsa oft „ég ætti nú frekar að setja peninginn á lánið en að kaupa X“. Er þetta óhjákvæmileg afleiðing fjármálalæsis? Góð ráð þegin til að nota peninginn stundum í eitthvað gaman og „heimskulegt“. 24. febrúar 2026 07:01 Mest lesið Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira
Hvernig safna ég fyrir húsnæðiskaupum? 30 ára karlmaður spyr: „Blessaður Björn, við konan erum að flytja til Íslands frá Danmörku og viljum kaupa okkur hús, helst utan höfuðborgarsvæðisins. Við þurfum því að safna okkur töluverðum pening. Spurning mín til þín er því hvað þurfum við að hafa í huga? Eru einhver tips & trick fyrir fyrstu kaupendur? Eigum við að safna pening á sparnaðarreikning (sem í dag hefur góða vexti)? Allar hugmyndir vel þegnar. Bestu kveðjur.” 24. mars 2026 07:00
Hvar liggur jafnvægið í eyðslu og sparnaði? 30 ára karl spyr: Hvernig finnur maður betur jafnvægið á milli eyðslu og sparnaðar? Ég hef haldið ítarlegt bókhald um öll föst útgjöld í excel og alla neyslu síðan ég keypti mína fyrstu íbúð 24 ára. Ég er almennt duglegur að spara og borga reglulega aukalega á lánið mitt. Hinsvegar á ég stundum erfitt með að „spreða“. Ég hugsa oft „ég ætti nú frekar að setja peninginn á lánið en að kaupa X“. Er þetta óhjákvæmileg afleiðing fjármálalæsis? Góð ráð þegin til að nota peninginn stundum í eitthvað gaman og „heimskulegt“. 24. febrúar 2026 07:01