Framkvæmdastjóri NATO býður aðstoð 19. júní 2004 00:01
Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins er reiðubúinn að aðstoða Íslendinga og Bandaríkjamenn við endurskoðun á hlutverki bandaríska hersins á Íslandi. Hann segir þó að málið sé fyrst og fremst í höndum þjóðanna tveggja. Jaap De Hoop Scheffer er í sinni fyrstu heimsókn á Íslandi sem framkvæmdastjóri NATO en hefur raunar komið tvisvar til landsins áður í öðrum tilgangi. Á fundi með Davíð Oddssyni forsætisráðherra og Halldóri Ásgrímssyni utanríkisráðherra ræddi Scheffer hlutverk bandalagsins, sem hefur tekið verulegum breytingum á undanförnum árum. Hinn nýi framkvæmdastjóri ræddi einnig breytingar sem bandaríska varnarmálaráðuneytið hefur boðað á veru bandaríska flughersins hér á landi, en sem kunnugt er hafa slíkar hugmyndir fallið í grýttan jarðveg hjá íslenskum stjórnvöldum. Scheffer segist reiðubúinn að aðstoða íslensk og bandarísk stjórnvöld, verði þess óskað. Scheffer vonast til að íslensk og bandarísk stjórnvöld nái samkomulagi, án aðstoðar NATO, enda sé þarna um tvíhliða samning þjóðanna að ræða frá 1951 og því ekki málefni bandalagsins. Hann ítrekar þó að hann sé reiðubúinn að leggja málinu lið, telji þjóðirnar að hann geti orðið að liði sem einhvers konar sáttasemjari, líkt og forveri hans George Robinson gerði á sínum tíma. Engin ákvörðun hefur þó verið tekin um hvort eða hvernig framkvæmdastjóri Nato tekur þátt í viðræðum Íslendinga við Bandaríkjamenn. Davíð Oddsson forsætisráðherra sagði við sama tilefni, að málið væri enn í skoðun en engir formlegir fundir verið boðaðir til að finna lausn í deilunni.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Innlent Frambjóðandi Trump lýsti sér sem „svörtum nasista“ á klámsíðu Erlent Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Innlent Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Innlent Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu Innlent Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Innlent „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Innlent Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Innlent Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg Innlent Reyndist ekki faðir stúlknanna Innlent Fleiri fréttir Fjórir í bílnum en enginn við stýrið Fundu lík karlmanns í Reynisfjalli Sýknaður af ákæru um manndráp af gáleysi á Akureyri Ákærður fyrir að stinga lækni í kvöldgöngu „Kerfið er algjörlega að bregðast fólkinu“ Vinnuslys töluvert tíðari á Íslandi en í Noregi Áhyggjuefni að innri landamærin séu ekki betur tryggð Dæmi um að fólk hafi fallið frá á meðan beðið er eftir NPA-þjónustu Kona á níræðisaldri sá björninn í þriggja metra fjarlægð Brynjar vill herða upp á mannréttindahugtakinu Hvítabjörninn felldur: Forðaði sér inn og sendi skilaboð á dóttur sína Útilokar ekki að snúa sér að öðrum verkefnum Senda vopnaða menn á svæðið Tilkynnt um ísbjörn og þyrla gæslunnar ræst út Óska eftir myndefni af Krýsuvíkurvegi Rafrettukóngur og eigandi Drekans sakaðir um 740 milljóna brot Nafn mannsins sem lést í vinnuslysi í Árborg „Fatlaða fólkið verður fyrir miskanum“ Hart tekist á um netaveiði í Ölfusá Reyndist ekki faðir stúlknanna Boða til kyrrðarstundar því íslenskt samfélag standi á krossgötum Engar ábendingar borist þrátt fyrir ákall Ríki og sveitarfélög benda á hvort annað varðandi NPA Útlendingum á Íslandi fjölgar hratt Brynjar snýr sér að mannréttindamálum Almenn ánægja með nýtt útlit Alþingis Brynjar segir af sér Forsætisráðherra mætir fyrstur manna í Samtalið Sjálfsagt að skoða að semja við önnur ríki um að hýsa erlenda fanga Benedikt Sveinsson er látinn Sjá meira